Feykir - 11.10.2017, Síða 11
RÉTTUR 1
Kinda Carpaccio
Fyrir fjóra
350 gr kindafille (hryggvöðvi)
snyrt
1 sítróna
2 msk jómfrúarolía
100 gr parmaostur
4 msk jómfrúarolía
1 msk balsamedik
salt
pipar
Aðferð: Skerið filleið í mjög
þunnar sneiðar. Leggið á plast og
annað plast yfir. Berjið, eða fletjið
út með kökukefli eins þunnt og
hægt er án þess að klessa kjötið of
mikið.
Stráið gæðasalti og nýmöluðum
svörtum pipar á diskana fjóra og
leggið kjötið ofan á. Blandið olíu og
ediki saman og penslið yfir kjötið á
diskunum. Setjið smá salat að eigin
vali á hvern disk og stráið
parmaosti yfir. Berið fram
sítrónubát með hverjum disk.
RÉTTUR 2
Grafið lamb með
rauðrófusósu
fyrir fjóra
3 dl gróft salt
2 msk. sykur
1 msk. nítritsalt, má sleppa
500 g kindafillet eða annar góður
vöðvi, fitu- og sinalaus
1 msk. rósmarín
1 msk. tímían
1 msk. basil
1 msk. rósapipar
½ msk. dillfræ
½ msk. sinnepsfræ
Aðferð: Blandið saman salti, sykri
og nítritsalti og hyljið filleið með
blöndunni. Geymið við stofuhita í
4 – 6 klst. og skolið þá saltblönduna
af. Blandið öllu kryddi saman og
veltið kjötinu upp úr því. Geymið
kjötið í kæli yfir nótt. Kjötið
geymist vel í kæli í 7 daga.
Rauðrófusósa:
1 msk. dijon-sinnep
1 tsk. worcestershire-sósa
1 msk. hunang
1-2 msk. balsamedik
2 msk. rauðrófusafi
salt
nýmalaður svartur pipar
1 ½ dl olía
Aðferð: Setjið allt nema olíu í skál
og blandið vel saman. Hellið
olíunni saman við í mjórri bunu og
hrærið vel í á meðan með písk.
Skerið kjötið í fallegar sneiðar og
berið fram með rauðrófusósunni
og blönduðu salati.
RÉTTUR 3
Góður skyndibiti
350 g kinda innralæri (eða
aðrir fitu- og sinalausir vöðvar)
3 msk hvítlauksolía
1 tsk grískt lambakrydd
nýmalaður pipar
salt
3 msk smjör
0.25 tsk paprikuduft
4 pítubrauð nokkur salatblöð
2 tómatar, vel þroskaðir
en þéttir, skornir í sneiðar
0.5 rauðlaukur, skorinn í sneiðar
Aðferð: Kjötið skorið í þunnar
sneiðar, sett í skál og hvítlauksolíu,
lambakryddi, pipar og salti hrært
saman við og látið marinerast áður
en það er steikt á pönnu. Smjörið er
brætt og paprikudufti, pipar og
salti og e.t.v. örlitlu lambakryddi
eða oregano hrært saman við. Efri
hlið brauðanna pensluð vel með
smjörinu og þeim síðan raðað á
grind eða bökunarplötu. Brauðin
hituð á 180° C þar til þau eru farin
að taka lit. Brauðin eru svo opnuð
og fyllt með salatblöðum,
kjötbitum og grænmeti og afgang-
inum af smjörinu e.t.v. dreypt yfir.
Borið fram t.d. með tzatziki eða
annarri kaldri jógúrt- eða skyrsósu.
Verði ykkur að góðu!
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Mýri, Ómar og Reimar.
Feykir spyr...
Hvað gerðir
þú við
peningana
sem frúin í
Hamborg
gaf þér?
Spurt á Facebook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Keypti mér heitan pott.“
Klara Björk Stefánsdóttir
„Ég verslaði á netinu.“
Maríanna Margeirsdóttir
„Ég kannast ekkert við neina
frú frá Hamborg og hvað þá
einhverja peninga frá henni,
hvaðan hefur þú þessar
sögur?“
Áskell Heiðar Ásgeirsson
„Spara, inn á reikning.
Safna fyrir bíl.“
Róbert Smári Gunnarsson
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Ef þér er ekki að mistakast öðru hverju er það merki um
að þú sért ekki að gera neitt frumlegt. – Woody Allen
Tveir góðir forréttir
úr kindakjöti
Hinir árlegu Bændadagar verða haldnir í Skagfirðingabúð á
Sauðárkróki í vikunni og þá er um að gera að næla sér í ódýran og
góðan bita. Lambakjötið er sívinsælt til matreiðslu en ekki má
gleyma því að kindakjötið getur verið það líka. Kindafille, (og fleiri
vöðvar), er t.d. afbragðsgott í forrétti og skyndibita.
Hér meðfylgjandi eru þrjár uppskriftir sem geta gert kindakjötið
að hinum ljúffengasta bita í veislunni eða bara handa fjöllunni um
helgina. Uppskriftirnar eru fengnar af lambakjöt.is og naut.is og
yfirfærðar á kindakjötið. Grafið lamb með rauðrófusósu. Mynd: Lambakjöt.is
( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) palli@feykir.is
38/2017 11
Ótrúlegt, en kannski satt..
Svefn er mikilvægur eðlilegri líkamsstarfsemi og góðri heilsu.
Svefnleysi getur valdið vanlíðan og þreytu á daginn, og langvarandi
svefnleysi eykur hættuna á ýmsum kvillum og geðrænum
vandamálum. Ótrúlegt, en satt, þá tekur það að meðaltali sjö mínútur
að sofna fyrir meðalmanneskjuna.
Bóndinn / Vísnagátur Sigurðar Varðar
Fyrstu tvær hendingarnar segja
hvað bærinn heitir, þriðja lína
bóndinn og sú fjórða hver
faðirinn er.
Áttundi býr á víða vangi,
á votu landi.
Úr fjarska greindi fagra tóna.
Faðirinn festi á sig skóna.