Feykir


Feykir - 21.02.2018, Side 3

Feykir - 21.02.2018, Side 3
Blönduós Verndarsvæði í byggð Á fundi sveitarstjórnar Blönduósbæjar þann 13. febrúar sl. var samþykkt að leggja fram tillögu til mennta- og menningar- málaráðherra um verndar- svæði í byggð innan þéttbýlisins á Blönduósi. Tillagan fjallar um verndar- gildi byggðar sem spannar rúm 140 ár og stendur á 17,5 hektara svæði innan við ós Blöndu. Er hér annars vegar um að ræða gamla bæjarkjarnann á Blönduósi og hins vegar að- liggjandi svæði sjálfsþurftar- byggðar á árbakkanum og í Klifamýri. Útmörk svæðisins miðast við fjörumál og fylgja þau síðan sandinum við árósinn og árbakkanum að norðanverðu austur að vestari lóðarmörkum fjölbýlishússins við Hnjúka- byggð 27. Þar sveigja mörkin í suðurátt að götunni Hnjúka- byggð og liggja þau síðan meðfram henni uns kemur að mótum Þingbrautar, sem þau fylgja síðan í suður- og vesturátt að rótum malarhjallans, þ.e. Miðholts- og Neðribrekku, en þau marka útmörk verndar- svæðisins að sunnanverðu allt til sjávar, að því er segir á vef Blönduósbæjar. Þar segir einnig: „Sögu svæðisins má í grófum dráttum skipta í tvö ámóta löng tímabil, þ.e. annars vegar tíma upp- byggingar á árabilinu 1876-1950 og hins vegar kyrrstöðu- og hnignunarskeið, sem þá tók við og enn varir. Þrátt fyrir stöðnun og áföll á liðnum áratugum hefur svæðið haldið sínum sjarma. Andrúmsloft fyrri tíma grúfir yfir og skapar afar sérstaka og eftirsóknarverða stemmningu á svæðinu. Til- finningin um sjálfbæra bæjar- kjarnann sem iðaði af mannlífi og naut stuðnings af sveitinni innan við og sjónum fyrir utan. Áningarstaðarins þar sem ferðafólk gat hvílt lúin bein. Hér eru einstök verðmæti sem mikilvægt er að halda vel utan um og byggja upp af fagmennsku og virðingu. Með tillögu um verndarsvæði í byggð verður saga, menning og varðveislugildi svæðisins fest í sessi.“ Til grundvallar tillögunni er Aðalskipulag Blönduósbæjar 2010 - 2030 og fyrri tillögur að aðalskipulagi, Húsakönnun á Blönduósi 2015, Fornleifa- skráning Blönduósbæjar frá 2007, ítarleg samantekt um byggðina innan verndarsvæð- isins í greinargerð tillögunnar og greining á núverandi svip- móti svæðisins, sem einnig birtist í greinargerð tillögunnar. Tillagan, ásamt greinargerð og uppdráttum, mun liggja frammi á skrifstofu Blönduós- bæjar, Hnjúkabyggð 33, frá 21. febrúar til og með 4. apríl næstkomandi. Hægt er að gera athuga- semdir við tillöguna fram að þeim tíma. Þær skal senda skriflega til skipulags- og bygg- ingarfullrtúa eða á netfangið byggingafulltrui@blonduos.is /FE Gamli bærinn á Blönduósi. MYND: FE 08/2018 3

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.