Feykir - 02.05.2018, Blaðsíða 14
Magdalena Berglind
Björnsdóttir, kennari við
Blönduskóla, hefur mikið
yndi af bóklestri. Hér deilir
hún því með okkur hvaða
bækur höfða helst til hennar
og óhætt er að segja að þar
er farið yfir vítt svið enda
segir hún húsið orðið yfirfullt
af lesefni.
Hvaða bækur voru í uppáhaldi
hjá þér þegar þú varst barn?
-Ég er bókaormur og hef verið
alla tíð, finnst alveg dásamlega
notalegt að sitja með góða bók
og gleyma mér í dálitla stund
– eða langa. Ég var svo heppin
sem barn og unglingur að fá
bækur reglulega að gjöf og
eiga alltaf margar bækur. Núna
hef ég það í raun að atvinnu að
reyna að heilla börn og
unglinga til mín í hóp
bókaorma.
Ég hef þó ekki alltaf lesið
mikið, til dæmis las ég
afskaplega lítið af skáldsögum
frá lokum grunnskóla til loka
framhaldsnáms. Þá voru hinar
ýmsu fræðibækur uppi við
öllum stundum, til mismikillar
ánægju eða yndisauka. Þegar
börnin svo fæddust breyttust
aðstæður aftur og þá voru alls
kyns barnabækur um allt hús.
Núorðið ræð ég lesefninu sjálf
og það er afar ljúft.
Hvers konar bækur lestu helst?
Ég hef undanfarin ár helst sótt
í spennusögur eftir íslenska
höfunda – Arnald og Yrsu og
nú nýverið bækur Ragnars
Jónassonar. Það er svo gaman
þegar bækur gerast á kunnug-
legum slóðum hér á Norður-
landi. Ég á þó nóg eftir á því
sviðinu, t.d. Stefán Mána og
Árna Þórarinsson svo ein-
hverjir séu nefndir. Mér þykja
skrif rithöfundanna Vilborgar
Davíðsdóttur og Brynhildar
Þórarinsdóttur mjög skemmti-
leg. Þær hafa skrifað bækur
sem hafa höfðað vel til mín,
bæði fyrir börn og fullorðna,
með sögulegri tengingu og
svolitlu víkingaþema. Sérstak-
lega góð blanda.
Það er gott fólk, miklir
lestrarhestar, í kringum mig
og reglulega fæ ég ábendingar
um bækur sem ég verð að lesa.
Sem dæmi um bækur sem ég
hef fengið ábendingar um eru
Dalalífsbækur Guðrúnar frá
Lundi, sem voru afar skemmti-
legar og svo Afdalabarn – sem
fékk þá góðu umsögn hjá
vinkonu að væri ég í leit að
núvitundarstundum ætti ég að
lesa þá bók. Nægjusemi og
rólegheit fengu alveg nýja
merkingu eftir þann lestur.
Napolí-bækur Elenu Ferr-
ante tóku talsverðan lestrar-
tíma nú í vetur. Það voru ófáar
stundir í jólafríinu sem ég
varði (ekki „eyddi“) í lestur
þeirra bóka – og er svo þakklát
fyrir að hafa fæðst á Íslandi, þó
svo draumalandið sé Ítalía.
Eftir þær bækur var alveg
nauðsynlegt að létta efnið og
andann talsvert og er ég búin
að lesa tvær bækur eftir Jenny
Colgan síðan. Litla bókabúðin
í hálöndunum og Litla bakarí-
ið við Strandgötu voru báðar
alveg yndislegar og stóðu
undir þeim flottu dómum sem
þær höfðu fengið hjá góðum
vinkonum. Ég bíð spennt eftir
fleiri bókum frá þeim stöllum í
bókaútgáfunni Angústúru.
Vinnu minnar vegna les ég
alltaf að minnsta kosti eina
Íslendingasögu á hverjum
vetri. Hegg menn í herðar
niður, reyni að útskýra
fjölskyldutengsl og hverjir
Þorbjörn, Þorgeir, Þorsteinn,
Þorgrímur, Þóroddur – og allir
hinir karlarnir sem báru nöfn
sem byrjuðu á Þ-i, eru. Afar
hressilegt lesefni í hvert sinn.
Svo les ég líka barna- og
unglingabækur, ég verð jú að
geta mælt með bókum við
nemendur mína. Bækur
Ævars vísindamanns varð ég
til dæmis að lesa því ég gat
alveg ómögulega skilið
hvernig hægt væri að lesa
bækur á annan hátt en frá
fyrstu blaðsíðu til þeirrar
síðustu. Í stuttu máli sagt þá
var alveg frábærlega
skemmtilegt að velja framhald
hvers kafla – og ef manni
líkuðu ekki örlögin að bakka
þá bara og velja eitthvað
annað. Stórskemmtilegar
bækur sem hafa fengið
verðskuldaða athygli og hvatt
marga lestrarhestana (og líka
hina) til að lesa.
Ljóðabækur eru líka alltaf
nálægar þó svo ég lesi þær
sjaldnast frá upphafi til enda.
Keypti eina slíka nú nýverið af
Magdalena Berglind. MYND ÚR EINKASAFNI
( BÓK-HALDIÐ ) frida@feykir.is
Hefur alla tíð
verið bókaormur
Magdalena Berglind Björnsdóttir á Blönduósi / kennari
Blönduósingnum Haraldi Ægi
Guðmundssyni. Bókin heitir
Lífið bak við augun og í henni
eru góð ljóð og sterk tenging
við heimahagana. Náttúran
spilar stóra rullu og eins og
með bækur Ragnars þá fannst
mér ljúft að þekkja til aðstæðna
héðan þegar ég las ljóðin hans
Halla.
Hvaða bók/bækur eru á
náttborðinu hjá þér þessa
dagana? -Varðandi bækurnar á
náttborðinu þá er bókin
Sköpunarsögur eftir Pétur
Blöndal búin að vera dágóða
stund á náttborðinu hjá mér.
Eiginmaðurinn þurfti að hafa
talsvert fyrir því að finna hana
fyrir ein jólin en hann hafði
heyrt mig tala um að mig
langaði að eignast þessa bók.
Ég er búin að horfa lengi og
djúpt í augu rithöfundanna á
forsíðunni, búin að blaða í
henni og lesa kafla og kafla – en
enn hef ég ekki getað skrifað
eins og þeir meistarar sem
veittu viðtöl í bókinni góðu...
En vonin lifir.
Skilaboðaskjóðan var næst-
um því lesin í ræmur hér á
árum áður. Stundum var óskað
eftir því að byrja bara á
kaflanum þar sem nátttröllið
mætti, stundum var hins vegar
alveg nauðsynlegt að hlaupa
yfir þann kafla ef hjörtun voru
eitthvað lítil þann daginn.
Dásamlegt ævintýri og fjöl-
skyldan fór meira að segja að
sjá leikritið saman, í svo miklu
uppáhaldið var sagan. Sama
má segja um bækurnar um
Benedikt Búálf, þær voru í
miklu uppáhaldi hjá börnunum
og auðvitað fórum við að sjá
leikritið þegar það var sett upp.
Hvað kaupirðu eða eignast að
jafnaði margar nýjar bækur yfir
árið? -Núorðið kaupi ég helst
ekki bækur fyrir sjálfa mig,
bara börnin, enda húsið orðið
yfirfullt. Heldur reyni ég að
nota Héraðsbókasafnið á
Blönduósi en þar er frábær
þjónusta, svo ekki sé talað um
hversu vel grunnskólanum er
sinnt af starfsfólki bókasafnsins.
Það er alltaf reiðubúið til að
taka á móti okkur og opna
safnið fyrir bekki eftir því
hvenær best hentar – enda um
að gera að kynna þetta flotta
safn fyrir ungu kynslóðinni
okkar.
Áttu þér uppáhaldsbókabúð?
-Ég á ekki uppáhaldsbókabúð,
finnst jafn gaman að spóka mig
um og verja (ekki „eyða“) tíma
í bókabúðum. Ekki er verra ef
þar er kaffihús líka og hægt að
tylla sér.
Stund með bókum allt um
kring er ávísun á góða stund.
Framsóknarflokkurinn
í Skagafirði óskar
Skagfirðingum
og gestum þeirra
gleðilegrar Sæluviku
Frambjóðendur Framsóknar verða með bás á
atvinnulífssýningunni 5. og 6. maí þar sem
við vonumst til að hitta sem flesta.
Tryggjum áframhaldandi
framsókn fyrir Skagafjörð
14 17/2018