Feykir


Feykir - 09.05.2018, Blaðsíða 2

Feykir - 09.05.2018, Blaðsíða 2
Enn lætur blessað vorið bíða eftir sér, allt hvítt niður í miðjar hlíðar, ófærð á heiðum og ískaldur útsynningur herpir allt sem hægt er að herpa á kroppnum ef maður vogar sér út fyrir hússins dyr. Aumingja litlu lömbin sem ættu helst að vera skoppandi í sólskininu, bítandi nýgræðing- inn úti á túni þurfa að hírast á húsi og blessaðar humlurnar sem eru kærkominn vorboði og voru farnar að láta á sér kræla í vorinu sem kom um miðjan apríl hafa séð sitt óvænna og dregið sig í hlé. Þá er líklega best að hafa það í huga sem bölsýnismennirnir segja að ef veðrið er of gott á vorin hefnist okkur fyrir með afspyrnu slæmu sumri! Ég hef reyndar aldrei séð neitt orsakasamhengi þar á milli en ég kýs að trúa því – núna. En sem betur fer hefur nú verið hægt að halda yl á sálinni undanfarna daga hér í Skagafirðinum þar sem menningarlífið hefur staðið í blóma eins og venjan er á Sæluviku. Ótal viðburðir hafa staðið til boða fyrir gesti og gangandi, flestir framreiddir af heimamönnum sem hafa fulla ástæðu til að vera ánægðir með sig. Það er nefnilega alls ekki sjálfgefið að hægt sé að bjóða upp á vikulanga stórglæsilega menningardagskrá árlega, stútfulla af alls kyns fjölbreytilegum atriðum í ekki stærra samfélagi. Meðal þess sem ég fékk að njóta í Sæluviku var dagskráin Börn fyrir börn sem er virkilega skemmtilegt framtak, ég kíkti í fjárhúsin á Grænumýri og fékk smá smjörþef af sauðburði sem er lífsnauðsynlegt að fá árlega, ég hlustaði á Einar Kárason segja Grettissögu í Kakalaskála, að vísu er Einar enginn Skagfirðingur og það var Grettir ekki heldur, en það var engu að síður stórskemmtilegt á að hlýða. Ég sá myndlistarsýningu og fór á atvinnulífssýningu en það sem stendur þó upp úr er stórfín kvöldstund á sýningu hjá Leikfélagi Sauðárkróks sem ég held að sé ekki vafi á að sé sú besta sem ég hef séð hjá þeim lengi. Handritið er auðvitað bara þessi venjulegi farsi en úr honum tókst að gera frábæra sýningu. Þar small allt saman og var virkilega faglega gert. Næsta mál er svo vonandi að bregða sér yfir fjallið og sjá sýningu hjá leiklistardeild Höfðaskóla. Miðað við það sem ég sá hjá þeim í fyrra er full ástæða til að hlakka til. Hver segir svo að menningin sé bara fyrir sunnan? Fríða Eyjólfsdóttir, blaðamaður LEIÐARI Af veðri og viðburðum Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum besta hugmyndin eða hug- myndirnar valdar úr og settir peningar í að gera þær að veruleika. Samkeppnin verður opin þeim sem búsettir eru í Skagafirði og skila inn við- skiptahugmynd og munu fulltrúar aðilanna þriggja skipa dómnefnd og velja sigurvegara í lok verkefnistímans. /PF Karl Friðriksson frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Gunnsteinn Björnsson Sveitarfélaginu Skagafirði og Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri KS við undirritun viljayfirlýsingar fjármögnunar á Ræsing Skagafjörður. MYND: PF Ræsing Skagafjörður Hugmyndasamkeppni um nýsköpun Heildarafli síðustu viku á Norðurlandi vestra var 282.034 kíló. Tveir bátar lönduðu á Hvammstanga og voru þeir með sjö tonn, á Hofsósi lönduðu fimm bátar tæpum sjö tonnum og á Skagaströnd bárust 44 tonn á land með 21 bát. Til Sauðárkróks bárust svo 225 tonn með 13 skipum og bátum. /FE Aflatölur á Norðurlandi vestra 29. apríl til 5.maí 2018 21 bátur landaði á Skagaströnd SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG HVAMMSTANGI Mars HU 41 Grásleppunet 1.576 Onni HU 36 Dragnót 5.438 Alls á Hvammstanga 7.014 HOFSÓS Geisli SK 66 Handfæri 704 Skáley SK 32 Grásleppunet 1.233 Skotta SK 138 Grásleppunet 775 Von SK 21 Grásleppunet 3.129 Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 785 Alls á Hofsósi 6.626 SKAGASTRÖND Alda HU 112 Lína 4.304 Arndís HU 42 Handfæri 864 Auður HU 94 Grásleppunet 2.382 Bergur sterki HU 17 Grásleppunet 5.531 Blíðfari HU 52 Handfæri 847 Dagrún HU 121 Grásleppunet 5.178 Dísa HU 91 Grásleppunet 619 Fengsæll HU 56 Grásleppunet 2.387 Geiri HU 69 Handfæri 816 Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 791 Hafdís HU 85 Grásleppunet 3.629 Jenný HU 40 Handfæri 873 Kambur HU 24 Grásleppunet 5.054 Kópur HU 118 Handfæri 376 Loftur HU 717 Handfæri 758 Már HU 545 Grásleppunet 1.637 Óli á Stað GK 99 Lína 43 Svalur HU 124 Handfæri 363 Sæfari HU 212 Grásleppunet 5.195 Sæunn HU 30 Handfæri 1.530 Víðir EA 423 Handfæri 808 Alls á Skagaströnd 43.985 SAUÐÁRKRÓKUR Badda SK 113 Grásleppunet 610 Dagur SK 17 Rækjuvarpa 10.214 Drangey SK 2 Botnvarpa 192.086 Fannar SK 11 Grásleppunet 2.214 Fálki ÞH 35 Grásleppunet 3.858 Gjávík SK 20 Handfæri 418 Hafey SK 10 Grásleppunet 4.162 Kaldi SK 121 Grásleppunet 2.413 Maró SK 33 Handfæri 781 Már SK 90 Grásleppunet 3.554 Steini G SK 14 Grásleppunet 711 Sæfari SK 100 Grásleppunet 3.364 Vinur SK 22 Handfæri 649 Alls á Sauðárkróki 225.034 Verkefnið Ræsing Skagafjörður, sem hugsað er sem samkeppni um viðskiptaáætlanir í Skagafirði, mun fara af stað næsta haust en skrifað var undir viljayfirlýsingu um fjármögnun verkefnisins á Atvinnulífssýningunni sl. laugardag. Það voru þeir Karl Friðriks- son frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Gunnsteinn Björnsson frá sveitarfélaginu Skagafirði og Þórólfur Gíslason kaupfélags- stjóri KS sem rituðu nöfn sín undir yfirlýsinguna en verk- efnið verður auglýst með haustinu. Gunnsteinn segir að um hugmyndasamkeppni um nýsköpun sé að ræða og verður Húnaþing vestra Nýtt lag og ljóð Einars Georgs Einarssonar vekur athygli Vortónleikar Kórs eldri borgara í Húnaþingi vestra voru í Hvammstangakirkju þann 1. maí. Stjórnandi kórsins er Ólafur Rúnarsson og undirleikari Elínborg Sigurgeirsdóttir. Kórinn flutti blandaða dagskrá kórlaga úr ýmsum áttum og má segja að dagskráin hafi verið létt og vorleg. Mesta athygli vakti frumflutningur á lagi og ljóði Einars Georgs Einarssonar er nefn- ist Húnaþing vestra, fagur óður til sveitarfélagsins. Einnig komu fram á tónleikunum fimm söng- nemar úr Tónlistarskóla Húnaþings vestra og sungu einsöng þau: Hallfríður Ólafsdóttir, Kristín Guðbjörg Jónsdóttir, Ingi Hjörtur Bjarnason, Friðrik Már Sigurðsson og Elvar Logi Friðriks- son auk kennara þeirra, Ólafs Rúnarssonar, stjórnanda kórsins. Kirkjan var fullsetin og virtust gestir skemmta sér hið besta og gæddu sér síðan á glæsilegum kaffiveitingum í safnaðarheimilinu að loknum tónleikunum. Kórinn nýtur stuðnings frá Upp- byggingasjóði Norðurlands vestra. /Guðmundur Haukur 2 18/2018

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.