Feykir - 09.05.2018, Qupperneq 4
AÐSENT : Björg Baldursdóttir skrifar
Vinnuvaka Sambands skagfirskra kvenna – Ágóði fyrir samfélagið
Aðalfundur Sambands
skagfirskra kvenna, SSK var
haldinn á Hólum í Hjaltadal
fyrir stuttu. Sambandið er
samstarfsvettvangur allra
starfandi kvenfélaga í
Skagafirði. Kvenfélögin eru
tíu og 240 konur starfa innan
þeirra. Meðal
samstarfsverkefna
kvenfélaganna er að halda
s.k. Vinnuvöku í byrjun mars.
Vinnuvakan var fyrst haldin
árið 1982, það ár var ár
aldraðra og í tilefni af því
komu konur víða um land
saman í sínum héruðum eina
helgi til að útbúa hluti fyrir
basar. Ágóðinn af basarnum
rann síðan til góðgerðarmála.
Samband skagfirskra kvenna
heldur enn þessum sið, þótt
framkvæmdin sé ekki með
nákvæmlega sama hætti og
1982. Nú er það fyrst og fremst
kaffisala, þar sem boðið er til
glæsilegs kaffihlaðborðs auk
köku og munabasars.
Undanfarin ár hafa verið
haldnar þematengdar sýningar
á Vinnuvökunni.
Síðast var sýndur skófatn-
vöktu veski Sólveigar á Dýja-
bekk. Voru þau af ýmsu tagi en
áttu það öll sammerkt að vera
einstaklega falleg og vel með
farin. Ekki síst var áhugavert
og skemmtilegt að Sólveig lét
fylgja sögu hvers veskis.
Áður hafa verið sýningar á
gömlum kjólum, sjölum og
hyrnum, barnafötum og hött-
um.
Nú skipta kvenfélögin með
sér verkum í framkvæmd
Vinnuvökunnar, bakstri og
öðru sem þarf að sinna.
Sú ákvörðun var tekin á
fyrstu árum Vinnuvökunnar,
að ágóðinn ætti aldrei að fara
úr héraði og aldrei til ein-
staklinga. Var ekki brugðið út
af þeim vana. Að þessu sinni
var Samfó hópnum afhent
gjafabréf upp á 400 þúsund
krónur en til að veita bréfinu
viðtöku fyrir hönd hópsins
voru mætt: Ólafur Ólafsson,
Hafdís Ólafsdóttir og Hafdís
Steinarsdóttir. Þau voru afar
þakklát og Hafdís Steinars-
dóttir sagði aðeins frá Samfó
hópnum sem er geðræktar-
hópur fólks sem einhverra
hluta vegna er ekki úti á
vinnumarkaðnum. Þau hittast
tvisvar í viku til að styðja hvert
annað og hafa gaman saman.
Einkunnarorð hópsins, sem
kom fyrst saman árið 2012, er:
Trúnaður, traust, virðing.
Hópurinn er algjörlega
sjálfbær að öðru leyti en því að
Sveitarfélagið Skagafjörður
lætur þeim eftir Hús frítímans
til að funda í svo styrkurinn
kemur að góðum notum.
Eitt af markmiðum kven-
félaganna í landinu er að
styrkja góð málefni og stuðla
að góðum verkum í samfélagi
sínu. Þar láta skagfirskar kven-
félagskonur ekki sitt eftir
liggja. Eru þeim öllum færðar
bestu þakkir fyrir ómetanlegt
starf í þágu samfélagsins.
Stjórn sambandsins skipa:
Björg Baldursdóttir, Hátúni;
Aldís Axelsdóttir, Laufhóli;
Valgerður Inga Kjartansdóttir,
Hóli; Guðrún Kristín Eiríks-
dóttir, Sólheimum; Sigurveig
Dögg Þormóðsdóttir, Sauðár-
króki; Sigurlína Kristinsdóttir,
Sauðárkróki og María Reyk-
dal, Starrastöðum.
Björg Baldursdóttir
Björg Baldursdóttir, Hafdís Ólafsdóttir, Ólafur Ólafsson, Hafdís Steinarsdóttir og
Ásbjörg Valgarðsdóttir. AÐSENDAR MYNDIR
Frá aðalfundi SSK. Engilráð Margrét Sigurðardóttir fundarstjóri í pontu.
aður af ýmsu tagi auk veskja.
Mátti þar líta allt frá virðu-
legum ráptuðrum til sam-
kvæmisveskja. Sérstaka athygli
AÐSENT : Inga Katrín D. Magnúsdóttir skrifar
Allt í rusli í Skagafirði?
Ýmislegt hefur áunnist í
endurvinnslumálum síðustu áratugi.
Stefna Flokku á Sauðárkróki vegna
endurvinnslu er skýr: Við flokkum til
að halda umhverfi okkar hreinu og
„draga úr sorpi og rusla-
haugum úti í náttúrunni
[og] til að auka líkurnar á
því að við getum skilað
komandi kynslóðum
jörð sem er enn lifandi,
rík af auðlindum og
velmeð farin” (af
heimasíðu Flokku).
Hér eru göfug markmið á
ferð. Ef unnið væri að
þeim markvisst með
sorphirðu værum við
sannarlega vel sett, en raunveruleikinn
er sannarlega ekki í takt við markmiðið.
Sorphirðu og endurvinnslu í þéttbýli
hefur fleytt fram síðustu ár, en dreifbýlið
hefur orðið alveg eftir í þessum
málaflokki (að undanskilinni hirðingu
á rúlluplasti og hræjum).
Nú er gámurinn – ég meina
mælirinn, fullur!
Íbúum í dreifbýlinu er ætlað að nota
gámasvæðin í sínu nærumhverfi eða
gera sér ferð til Sauðárkróks og nýta sér
aðstöðuna þar. Raunveruleikinn er þó
sá að skynsamlega hönnuð og aðgengi-
leg gámasvæði finnast svo gott sem
hvergi í Skagafirði nema á
Sauðárkróki. Skipulagi
svæðanna, stærð og/eða
fjölda gámanna miðað við
íbúafjölda og merkingum
þeirra er víðast hvar mjög
ábótavant. Sæmilegt aðgengi
að opnum gámum (t.d. með
rampi) er hvergi fyrir hendi.
Þá er víðast ekki boðið upp á
fullnægjandi flokkun. Eins
og staðan er í dag eru
ruslagámar oft á tíðum
yfirfullir og bið eftir því að
þeir séu tæmdir, þannig að sorp flæðir
ýmist upp úr þeim eða er skilið eftir við
gámana. Þurfi fólk að leggja upp í
langferð til að skila af sér sorpi, er ljóst
að hvorugur kosturinn er sérstaklega
aðlaðandi eða hagkvæmur fyrir íbúa.
Íbúar sveitafélagsins borga fyrir
sorphirðu (sjá Gjaldskrá á heimasíðu
Sveitarfélagsins). Þetta gildir bæði um
íbúa í þéttbýli og dreifbýli. Það er
óforsvaranlegt að íbúar í dreifbýlinu
borgi fyrir sorphirðu en fái hvorki
sæmilega aðstöðu né aðstoð við að
standa sómasamlega að frágangi.
Meirihluti sveitarstjórnar hefur
verið aðgerðalítill í umhverfismálum
og hefur verið fátt tíðinda af þeirra
hálfu í umhverfis- og samgöngunefnd.
Umbætur í sorphirðu og flokkun hafa
rekið nokkuð á reiðanum síðustu ár og
hefur ástand farið hratt versnandi.
Samningar við ÓK gámaþjónustu hafa
t.d. verið lausir frá því í haust. Nú rétt
fyrir kosningar er að sjá einhverja
hreyfingu í langþráðum lagfæringum á
gámasvæðum, þó enn sé bið eftir að
framkvæmdir verði að veruleika. Hætt
er við að málin sofni aftur ef ekki verða
breytingar á stjórn Sveitarfélagsins. Þá
má í framhaldinu spyrja: hvað með öll
hin gámasvæðin? Verður biðin eftir
úrbótum á öðrum gámasvæðum í
Skagafirði annar áratugur eða tveir?
Þetta þolir enga bið.
Hvað er til ráða?
Endurvinnslumál eru sameiginlegt
verkefni íbúa og sveitarstjórnar. Ábyrgð
íbúa felst í að ganga um gámasvæði af
virðingu og samviskusemi. Ábyrgð
kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn felst í
að útbúa gámasvæði sem bjóða upp á
að gengið sé vel um þau og að sjá til
þess að sorphirða sé ásættanleg. Þessi
vegferð verður að hefjast hjá sveitar-
félaginu.
Ég vil beita mér fyrir því að gáma-
svæðin, sorphirða og endurvinnsla
verði okkur Skagfirðingum til sóma. Ég
hlakka til að sjá þjónustu við dreifbýlið
aukna, með bættri aðstöðu víðsvegar
um Skagafjörð.
Inga Katrín D. Magnúsdóttir
skipar 6. sæti á lista VG og Óháðra
Spilliefni. MYND AÐSEND
4 18/2018