Feykir - 09.05.2018, Page 7
Úrslit Vísnakeppni Safnahúss
Skagfirðinga voru kynnt á setningu
Sæluviku á dögunum og var eftir-
farandi pistill fluttur þar af því tilefni.
Ég vil trúa því að ekki sé haldin
ærleg Sæluvika nema Vísnakeppni
Safnahússins fylgi með, enda ennþá
vinsæl meðal hagyrðinga. Telst
undirrituðum til að nú sé komið að
þeirri 43. en keppninni var komið á
árið 1976.
Reglurnar eru líkt og áður
einfaldar og góðar; annars vegar að
botna fyrirfram gefna fyrriparta og
eða semja vísu um ákveðið málefni.
Að þessu sinni var umsjónarmaður
óvenju frjálslegur og leyfði
fyrripartasmiðum að ráða efnistökum
annars fyrripartsins en hörð fyrirmæli
fengu þeir um að setja eitthvað saman
sem viðkemur ferðamönnum og
Skagafirði. Þá fékk að fljóta með auka
fyrripartur sem snéri að komandi
kosningum.
Frá því að ég tók við umsjón
þessarar keppni hef ég getað leitað
til sömu fyrripartasmiðanna þeirra
Hreins Guðvarðarsonar og Haraldar
Smára Haraldssonar og vil ég þakka
þeim fyrir. Líklega hefur verið
sæmilegt veður úti þegar þeir tóku
sig til við yrkingar því vorið var þeim
hugleikið í frjálsa valinu.
Hreinn kom með þessa parta:
Vetur hopar, vorið nær
völdum næstu daga.
og
Fjallahringur fagur hér
ferðalanga tælir.
En Smári þessa:
Vorið skilið vísu á
í veðurblíðu sinni.
Ekki virðist amalegt
yfir fjörð að líta.
Og í tilefni sveitarstjórnakosninga lét
Smári þennan fyrripart fljóta með.
Kosningarnar koma brátt
með kosti sína og galla.
Þátttaka var allgóð þar sem 15 ein-
staklingar sendu inn efni, ýmist undir
dulnefni nú eða ekki og var þeim þá
úthlutað einu slíku áður en dómnefnd
tæki til starfa.
Þar sem ég er fastheldinn maður,
kallaði ég saman sömu dómnefndina
og hefur fylgt mér hingað til en
þar eru á ferðinni þau Guðbjörg
Bjarnadóttir, íslenskukennari við
FNV, og Ágúst Guðmundsson,
trymbill og fasteignasali.
Þá er að stikla á stóru í botnum og
vísunum sem bárust.
Steinfinnsson botnar:
Vetur hopar, vorið nær
völdum næstu daga
Vel þá fagur, völlur grær,
Víðast hvar á Skaga.
Hér er á ferðinni Magnús Geir
Guðmundsson.
Pétur Stefánsson sem fékk dulnefnið
Djarfur hefur það á þessa vegu:
Vetur hopar, vorið nær
völdum næstu daga.
Þessu fagnar þjóðin kær,
það er árviss saga.
Og Gráni átti líka fína vísu um sama
efni. Gráni reyndist vera Reynir
Hjörleifsson.
Vetur hopar, vorið nær
Völdum næstu daga.
Sunnan andar blíður blær
og blómin vaxa í haga.
Skefill segir þetta um vorið:
Vorið skilið vísu á
í veðurblíðu sinni.
Skulu fljóð og halir þá
hafa lengi í minni.
Hafsteinn Steinsson var á bak við
dulnefnið Skefil.
Um ferðamennina hafði
Vandamaður þetta að segja í
sniðhentri ferskeytlu:
Fjallahringur fagur hér
ferðalanga tælir.
Skagfirðingur ætíð þver
aflar fanga en vælir.
Philip Vogler kallaði sig Vandamann.
Þegar hugsað er til ferðamanna og
rímorðið líta, er margt sem kemur
til greina eins og hvíta og hnýta en
Alfreð Guðmundsson segir:
Ekki virðist amalegt
yfir fjörð að líta
Frómlegt yrði með frið og spekt
ef frjálsleg hjörð sést skíta.
Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga
Þátttakan var geysigóð
Hafsteinn Reykjalín segir:
Fjalla hringur fagur hér
ferðalanga tælir,
ef skagfirsk hross á skeiði er
hann skref í gulli mælir.
Þegar kemur að kosningavísunni
segir Brynjar Páll Rögnvaldsson
eftirfarandi og fer frjálslega með
bragreglurnar:
Kosningarnar koma brátt
með kosti sína og galla.
Sýndarveruleikagátt,
mun heilla konu og kalla.
Ekki hefur Golþorskur mikla trú á
stjórnmálunum en hann lætur þetta
hljóma svona:
Kosningarnar koma brátt
með kosti sína og galla.
Á eftir þeim er samin sátt
er svíkur nánast alla.
Um Sturlungakappa sem hugsanlega
kæmu fram í nútímanum segir
Andrés auðnulausi:
Komnir í Heimi kappar hans
kórinn að efla og styðja,
kyrja þar allir með elegans
annan bassa - og þriðja.
Andrés auðnulausi reyndist vera
Björn Ingólfsson.
Suðri vísar í Flugumýrarbrennu og
telur að Gissur jarl ætti varla upp á
pallborðið hjá Skagfirðingum ef hann
léti sjá sig nú. Suðri, eða Magnús
Halldórsson lætur Gissur segja:
Ég bið um það í bænaskrá,
sem bragð við nýrri hrinu
að maður fái mysu hjá
mjólkursamlaginu.
Eiríkur Hansen, eða Garri, bendir á
að staða Þórðar kakala sé önnur nú
en áður.
Kakali sem kemur hér
kannar stöðu veika.
Nú gerist allt af sjálfu sér
í sýndarveruleika.
Og Gunnar Rögnvaldsson slær
botninn í þessa umræðu með
eftirfarandi hætti:
Hjá sagnfræðingum gremdist geð
en gleddist margur landi.
Ef Siggi Hansen sæist með
Sighvati og Brandi.
Eins og oft áður stóð nefndin í ströngu
við að finna besta botninn og vísuna,
en þetta stóð upp úr að hennar mati:
Besta botninn átti Gustur:
Vetur hopar vorið nær
völdum næstu daga.
Viður brumar völlur grær
vermir sólin haga.
Og Kakali þótti hafa gert bestu vísuna
og gott betur því þær voru þrjár og
mynduðu skemmtilega lýsingu á
Þórði kakala.
Girtur sverði gengi hann um stræti
gullinn hjálmur þar á höfði sæti.
Kakali sér kynni ekki læti
karlinn myndi dansa ef hann gæti.
Inn til landsins fögru fjallasala
færi hann með okkur til að smala.
Kátur myndi konur einnig fala
kyssa heimasætur fram til dala.
Karlinn yrði eðal Skagfirðingur
ætíð væri þar sem Heimir syngur
Vart hann myndi hræðast glasa glingur
gjarna léki þá við hvern sinn fingur.
Verðlaunahöfundar Vísnakeppni
Safnahúss Skagfirðinga 2018 eru
annars vegar fyrir besta botninn,
Ingólfur Ómar Ármannsson og bestu
vísuna, eða öllu heldur vísurnar, Jón
Gissurarson.
Frá setningu Sæluviku í Safnahúsinu. MYND: PF
SAMANTEKT
Páll Friðriksson
18/2018 7