Feykir


Feykir - 09.05.2018, Síða 8

Feykir - 09.05.2018, Síða 8
Vinur minn Guðmundur Stefán Sigurðsson, fornleifafræðingur, skoraði á mig að taka við áskorandapennanum. Austurdalur í Skagafirði er okkur báðum kær. Dalurinn er fallegur og ósnortinn og á sér langa og merkilega sögu. Frægasti draugur dalsins er Skotta kennd við Ábæ en fjölskyldufyrirtækið okkar Elenóru, Skotta Film heitir einmitt eftir Ábæjar Skottu. Eftirminnilegast er það góða fólk sem bjó í dalnum og ég kynntist í æsku. Þá var búið á Stekkjarflötum, Gilsbakka, Merkigili, Skatastöðum og Bústöðum og þó Kelduland sé ekki í Austurdal var Stefán Hrólfsson, gangna- foringi þar í áratugi, fæddur og uppalinn í dalnum. Það var og er þannig að bændur á þessu svæði hjálpast að. Hjörleifur Kristinsson var póstur og bóndi á Gilsbakka og bjó þar einn síðustu áratugina. Hann var mikill vinur okkar barnanna í Flatatungu, fór með okkur í rannsóknarferðir og fjallgöngur, kenndi bræðrum mínum að lesa plöntur og mér að yrkja ferskeytlur og ljóð. Við og fleiri hjálpuðum honum að heyja á sumrin og stundum fór ég í nokkra daga fram í Merkigil að hjálpa Helga Jónssyni bónda við heyskapinn en hann bjó þar með Moniku Helgadóttur og síðan einbúi eftir að Mona dó. Eins var það árvisst að við bræðurnir fórum í göngur og eftirleitir með þeim á Bakkadal. Þá gat færst fjör í leikinn þegar reynt var að koma höndum yfir sauði og útigangskindur eins og Hjörleifur lýsti í kvæðinu um Kollu með skemmda eyrað. Óþekku ærnar þjóta óspart þær neyta fóta, ég elti þær alltaf og blóta, að því kominn að skjóta. Ég ætla bráðum með Árna, engan þarf hest að járna, að elta útigangs kindur, enda sé lítill vindur. Landið er giljótt og geirað, gamlir lækir og fleira að, svo hvergi er hægt að keyra að, Kollu með skemmda eyrað. Ég var um fermingu þegar ég fór í þessa eftirleit með Hjörleifi og Helga á Merkigili. Löngu síðar er þessir vinir mínir voru báðir dánir orti ég kvæði í minningu látinna vina sem ég nefndi „Í Austurdal“. Þegar við Ingimar Ingimarsson, bóndi á Ytra-Skörðugili og Þorvarður Björgúlfsson, kvikmynda- gerðarmaður, gerðum samnefnda heimildamynd um Stefán Hrólfsson, gangnaforingja í dalnum, samdi ég lag við kvæðið og það var notað í myndinni í flutningi Karlakórsins Heimis. Stefán Gíslason, stjórnandi kórsins, skrifaði lagið upp og raddsetti það. „Í Austurdal“ var síðan á söngskrá Heimis veturinn eftir og í flutningi Heimis rataði lagið inn á indverska Youtube síðu. Aðdáendur Heimis leynast víða. Að þessum formála sögðum kem ég að kjarna málsins. Nefnilega því að Hinrik Már Jónsson, bóndi á Syðstu-Grund, sóknarnefndarformaður og söngmaður í Heimi og fleiri kórum sendi mér svohljóðandi skilaboð á ÁSKORENDAPENNINN Árni Gunnarsson Sauðárkróki Ekki reyndist það aprílgabb hjá Hinna UMSJÓN palli@feykir.is Snjáldurskinnu (Facebook) skömmu fyrir miðnætti þann 1. apríl sl. „Sæll. Það hafði samband Frakki nokkur sem hefur áhuga á að gera eitthvað með lagið þitt um Austurdal. Sendi þér link á hann. Kv. HMJ.“ Þessu fylgdi linkur frá einhverjum Berndard Baillot og þar stóð. „Halló herra, ég er meðlimur í kór karla í Frakklandi og ég sá myndband á Youtube af kórnum þínum. Lagið er mjög fallegt og ég vil gjarnan aðlaga það á frönsku... Með vinalegum kveðjum mínum B.B.“ Þetta fannst mér góð tilraun til aprílgabbs hjá Hinna og svaraði honum daginn eftir að fyrsti apríl hefði verið í gær. „Svo var“, svaraði Hinrik, „en ég held samt að þessum sé einhver alvara.“ Við þetta varð ég hálf skömmustulegur, að hafa grunað minn gamla vin og sveitunga um græsku svona alveg að ósekju. Svaraði herra Baillot og viti menn, sá reyndist vera meðlimur í kór karla í Frakklandi sem heitir Choeur des 3 Abbayes og vildi endilega fá nótur af laginu og franska þýðingu á textanum. Sjálfur var ég búinn að glata nótnasetningunni af laginu en annar gamall sveitungi og Heimisfélagi, Þorleifur Konráðsson, frá Frostastöðum, ljósritaði fyrir mig nóturnar. Granni minn úr Víðihlíðinni, Kári Heiðar Árnason, hefur í samvinnu við franska samverkakonu úr Verinu, Camillie Leblanc, tekið að sér að snara Austurdalnum yfir á frönsku. Nóturnar eru farnar til Frans, textinn fer fljótlega líka. Ég hlakka til að heyra hvernig „Í Austurdal“ hljómar á frönsku í flutningi Choeur des 3 Abbayes. Kannski hafa Helgi og Hjörleifur heitinn - gangnafélagar mínir úr leiðangrinum sem gerður var til höfuðs Kollu með skemmda eyrað og aðrir gengnir vinir úr Austurdalnum góða – einhver ráð með að hlusta á þetta líka úr Sumarlandinu í austrinu mikla. Hver veit? Ég vona það allavega. - - - - - Að lokum langar mig að biðja litlu systur, Sigríði Gunnarsdóttur, sóknarprest á Sauðárkróki, að taka við áskorandapennanum. AÐSENT : Ólafur Bjarni Haraldsson skrifar Kjósum til framtíðar Það er bæði krefjandi og skemmtilegt verkefni að fara af stað með nýtt framboð til sveitastjórnarkosninga. Það er sérstaklega skemmtilegt að því leyti að maður verður mjög var við það hvað núverandi staða samfélagsins og framtíðarþróun þess er mörgum íbúum sveitarfélagsins mikið hjartans mál. Það er ýmislegt sem brennur á fólki en þar virðast leik- og grunnskólamál, skipulagsmál og fjármál sveitarfélagsins iðulega vera efst á baugi. Þessir þrír málaflokkar eru ByggðaListanum mjög hugleiknir og teljum við að þau málefni sem falla þar undir ættu að vera í algjörum forgangi. Það er óhætt að segja að leik- og grunnskólamál snerti allflesta íbúa sveitarfélagsins með beinum hætti. Þetta er málaflokkur sem þarf ein- faldlega að vera í lagi svo samfélagið okkar geti vaxið og dafnað sem best skyldi. Skortur á dagvistunarplássum og aðstöðuleysi til íþróttaiðkunar í grunnskólum eru því miður vandamál sem blasa við í sumum af þéttbýlis- kjörnum sveitarfélagsins. Þau þarf að leysa og koma í varanlegt horf, og það sem allra fyrst. Vegna þess hve mál sem þessi snerta íbúa mjög er mikilvægt að leysa þau í samvinnu við íbúa hvers svæðis fyrir sig, sem og starfsfólk við- komandi deilda. Það gleður mig því að sjá að fleiri framboð en ByggðaListinn eru með það á oddinum fyrir komandi kosningar að auka íbúalýðræði, og von- andi að svo verði áfram hjá þeim en fjari ekki út strax eftir kosningar. Á þetta munum við leggja mikla áherslu. Varðandi skipulagsmálin, er gríðar- lega mikilvægt að heildarmyndin sé skoðuð áður en farið er af stað í framkvæmdir. Hvernig viljum við sjá byggðina okkar þróast næstu áratugina? Til að fá fólk til að festa hér rætur þarf að halda áfram að bjóða upp á skipulagðar lóðir, og á það við um alla þéttbýliskjarna sveitarfélagsins. Þessar lóðir þurfa að vera aðlaðandi og á góðu byggingarlandi, og eins með það í huga að tekjur fólks eru misjafnar, og ekki allir sem geta byggt sér stórt einbýlishús. Fjármál sveitarfélagsins eru að sjálfsögðu grunnatriði í öllu þessu samhengi. Velferð og góð þjónusta við íbúa sveitarfélagsins er best tryggð með ábyrgum og gegnsæjum rekstri sveitarfélagsins. Fjárhagslegar skuld- bindingar hafa aukist ár frá ári í krónum talið, sem getur varla talist góð þróun þar sem íbúunum hefur ekki verið að fjölga í takt við það. En til þess að íbúum geti fjölgað verða ofangreind atriði á borð við skólamál og skipu- lagsmál að vera í lagi. Því tel ég enn mikilvægara að forgangsraða frekari skuldbindingum sveitarfélagsins til þeirra verka sem þeim eru falin í lögum að sinna. Eins tel ég þau verkefni sem ekki er fjallað um sem lögbundin verkefni sveitarfélaga, verði að vera vel útfærð, þar sem unnin er kostnaðar- áætlun, og hún borin saman við heildaráhrif verkefnisins áður en hafist er handa. Forsendur verða að vera raunhæfar, og þau verða að vera unnin í samvinnu við hlutaðeigandi fyrirtæki á svæðinu sem og íbúa sveitarfélagsins þegar um stærri verkefni er að ræða. Þau atriði sem ég hef fjallað um hér að ofan eru meðal annars ástæða þess að ég gef kost á mér til sveitarstjórnar- mála sem oddviti ByggðaListans í komandi kosningum. Ólafur Bjarni Haraldsson Höfundur skipar 1. sæti ByggðaListans sem býður fram í sveitarfélaginu Skagafirði í komandi sveitarstjórnarkosningum. 8 18/2018

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.