Feykir - 05.09.2018, Page 3
Sérfræðikomur
í september 2018
www.hsn.is
10. OG 11. SEPTEMBER
Sigurður Albertsson alm. skurðlæknir
17. OG 18. SEPTEMBER
Haraldur Hauksson alm./æðaskurðlæknir
20. OG 21. SEPTEMBER
Orri Ingþórsson kvensjúkdómalæknir
24. - 27. SEPTEMBER
Bjarki S. Karlsson bæklunarskurðlæknir
Tímapantanir í síma 455 4022.
Frá lesendum
Skín á dag í austurátt
Gunnar Oddsson í
Flatatungu hafði samband
við Feyki og langaði að
koma á framfæri tilurð vísu
sem birt var í vísnaþætti
Morgunblaðsins fyrir nokkru
en var rangfeðruð og ekki
rétt með farin. Þrátt fyrir
að vera búinn að senda inn
erindi á Moggann hefur
leiðrétting ekki birst.
„Vísan er eftir Gunnar
Egilsson sem átti heima í
Geitagerði í Staðarhreppi en
flutti síðar austur á land. „Mér
finnst vísan góð og langar að
leiðrétta rangfærsluna. Finnst
að nafni eigi það skilið,“ sagði
Gunnar við blaðamann
Feykis. Vísan varð til er þeir
nafnar voru að koma af balli
úr Húnaveri fyrir margt löngu
og stoppuðu við Arnarstapa
og litu fegurð náttúrunnar
augum.
Vísan er svona:
Skín á dag í austurátt
öll sig lagar jörðin.
Upp með brag og ökum dátt
ofan í Skagafjörðinn.
/PF
Frá Arnarstapa. MYND: PIB
Fimm nafnar og frændur hittust á Króknum
Náðust loksins saman á mynd
Á dögunum hittust á
Sauðárkróki Bjarnar fimm
sem allir bera nafn Bjarna
Magnússonar, járnsmiðs á
Sauðárkróki (f. 18.9. 1867).
Lengi hefur staðið til að ná
þeim frændum og nöfnum
saman á mynd og tókst það
loksins síðasta laugardag.
Komu þeir saman hjá kaup-
manninum síkáta, Bjarna Har
á Sauðárkróki.
Þegar búið var að mynda í
búðinni hjá Bjarna var farið að
Lindargötu 11, þar sem Bjarni
járnsmiður bjó lengst æfi sinnar,
og önnur mynd tekin af þeim
nöfnum. Var þeim síðan boðið
inn að skoða hvernig húsnæðið
lítur út í dag, en það er mikið
breytt frá því járnsmiðurinn bjó
þar.
Bjarni Magnússon, járn-
smiður á Sauðárkróki, móðurafi
Bjarni Har, var bróðir Guðrún-
ar Magnúsdóttur móðurömmu
Bjarna Sigurvins Jónassonar, en
móðir hans hét Steinunn Sigur-
jónsdóttir húsfreyja í Hátúni og
maður hennar Jónas Jón Gunn-
arsson frá Keflavík í Hegranesi.
Bjarni Sigurvin, sem hefur búið
í Reykjavík frá 16 ára aldri, og
Bjarni Har eru því þremenn-
ingar.
Sonur Bjarna Sigurvins er
Bjarni Þór Bjarnason, sóknar-
prestur í Seltjarnarneskirkju og
dóttursonur hans er Bjarni Páll
Hauksson, rafmagnsverkfræð-
ingur, búsettur í Kaupmanna-
höfn. Þá er einn eftir, Bjarni
Rúnar Lárusson, barnabarn B.
Har. en hann er grunnskóla-
kennari í Síðuskóla á Akureyri
og leikur körfubolta með Þór. /PF
Bjarni Rúnar Lárusson, Bjarni Haraldsson, Bjarni Sigurvin Jónasson, Bjarni Þór
Bjarnason og Bjarni Páll Hauksson í búðinni hjá Bjarna Har. Fyrir framan þá eru myndir
af Bjarna Magnússyni, járnsmið, og Kristínu Jósefsdóttur, konu hans. MYND: PF
Enn aukum við
gæðin & þjónustuna
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Nýverið tók Nýprent í notkun nýjan risaprentara, Canon imagePROGRAF PRO-4000S, sem
skilar frábærum gæðum og gerir okkur kleift að auka enn þjónustuna við viðskiptavini okkar.
Á þennan vandaða bleksprautuprentara prentum við strigamyndir, auglýsingaskilti og plaggöt
í hinum ýmsu stærðum og gerðum á hinar fjölbreytilegustu gerðir pappírs.
Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Þá getum við einnig plastað/laminerað það sem prentað hefur
verið út og/eða límt á foam- eða álplötur.
Leitaðu ekki langt yfir skammt
– kíktu í Nýprent!
STRIGAPRENTUN AUGLÝSINGASKILTI PLAGGÖT LAMINERING LJÓSMYNDAPRENTUN PLÖSTUN ÁLÍMING
ný
pr
en
t e
hf
/
0
32
01
8
Hver um sig fær 100.000 kr.
Styrkir úr Húnasjóði afhentir
Byggðarráð Húnaþings vestra
fjallaði um umsóknir um styrki
úr Húnasjóði á fundi sínum
þann 31. júlí sl. Að þessu sinni
bárust sjö umsóknir um styrk
en fimm þeirra uppfylltu
skilyrði til úthlutunar.
Styrkirnir voru afhentir þann
16. ágúst sl. á kaffihúsinu Hlöð-
unni og var það Ingveldur Ása
Konráðsdóttir, formaður byggðar-
ráðs, sem sá um afhendinguna.
Þeir sem hlutu styrk úr
sjóðnum að þessu sinni, hver um
sig kr. 100 þúsund, eru eftirtaldir:
Albert Jóhannsson, nám til Bs í
viðskiptafræði.
Guðrún Lára Magnúsdóttir, nám
til diploma í jákvæðri sálfræði.
Ingunn Elsa Rafnsdóttir,
félagsliðanám.
Jóhannes Geir Gunnarsson, nám
í búfræði.
Unnur Jóhannsdóttir, nám til Bs
í búvísindum.
/FE
33/2018 3