Feykir - 05.09.2018, Síða 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is
2. deild karla :: Leiknir Fáskrúðsfirði – Tindastóll 8-0
Flengdir í fýluferð til Fjarðabyggðar
Tindastólsmenn héldu austur á Reyðarfjörð
um helgina þar sem þeir mættu liði
Leiknis frá Fáskrúðsfirði. Leikið var í
Fjarðabyggðarhöllinni og var um gríðarlega
mikilvægan leik að ræða fyrir bæði lið í
fallbaráttu 2. deildar. Ljóst var fyrir leikinn
að sökum fjölda leikbanna og meiðsla mátti
ekki mikið út af bregða hjá okkar mönnum.
Því miður fór allt á versta veg og uppskeran
flenging í boði Fáskrúðsfirðinga. Lokatölur
8-0.
Feykir hafði samband við Bjarka Má
Árnason, spilandi þjálfara Tindastóls, og spurði
hann út í Leiknis-leikinn og framhaldið: „Í
leiknum [...] fór flest úrskeiðis sem gat farið
úrskeiðis og var þetta mjög lélegur leikur af
okkar hálfu. En þetta eru bara þrjú töpuð stig
og ætlum við ekki að dvelja lengur við þennan
leik heldur horfa fram á veginn og bæta okkur
og læra af þessum leik. Framundan eru þrír
hörkuleikir þar sem við þurfum að berjast fyrir
lífi okkar í deildinni. Þar sem ég veit að ég er
með alvöru íþróttamenn í höndunum þá munu
strákarnir sýna sitt rétta andlit í næsta leik gegn
Fjarðabyggð á laugardaginn kemur,“ sagði
Bjarki. /ÓAB
2. deild kvenna :: Tindastóll – Augnablik 1-1
Svekkjandi silfurjafntefli á Króknum
Meistaraflokkur kvenna
Tindastóls lék sinn síðasta
leik þetta tímabilið í 2. deild
Íslandsmótsins í fótbolta sl.
sunnudag en um hreinan
úrslitaleik var að ræða gegn
Augnabliki. Ekkert nema
sigur dugði Stólunum meðan
jafntefli nægði stelpunum
í Augnabliki til að krækja í
deildarbikarinn sem þær og
gerðu. 1-1 og bikarinn suður.
Stólarnir byrjuðu leikinn af
krafti og ætluðu sér greinilega
sigur í þessum leik. Náðu þær
strax að ógna gestunum, léku
vel, börð-ust af hörku og
uppskáru mark strax á 9. mínútu
er Murielle Tiernan laumaði
boltanum fram hjá Ana Luciu
N. Dos Santos, eða Ditu fv.
markmanni Tindastóls. Þrátt
fyrir að Dita fengi á sig þetta
mark átti hún sannarlega eftir að
bjarga sínu liði frá tapi með
góðri frammi-stöðu.
Augnablik er hörkulið og átti
sín færi þó ekki væru þau mörg
né öll hættuleg en eitt dauðafæri
varði Margrét Ósk Borgþórs-
dóttir, markmaður Stólanna,
einn á móti einum en þar skall
hurð nærri hælum. Margrét
stóð sig gríðarlega vel í markinu
og er klárlega framtíðarleik-
maður þrátt fyrir að aðeins eru
tvö ár síðan hún byrjaði að æfa
fótbolta.
Baráttan var ekki síðri í
seinni hálfleik, alltaf líklegra að
Stólar bættu við sig marki en
þvert á allar væntingar jafnaði
Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
með dúndurskoti utan vítateigs
sem Margrét varði en náði ekki
að halda boltanum sem aulaðist
í netið. Ekkert við því að gera og
svekkjandi fyrir þennan frábæra
markvörð að sjá á eftir boltanum
í netið.
Stólarnir gáfust ekki upp,
héldu áfram að sækja og
sköpuðu sér mörg góð færi,
þ.á.m. 3-4 dauðafæri sem
gestirnir björguðu naumlega á
línu. Einnig komst Murr ein á
móti markmanni en náði ekki
að setja í netið.
Niðurstaðan svekkjandi
silfurjafntefli og Augnablik
deildarmeistari með betra
markahlutfall en Stólar. /PF
Sigurvegarar 2.deildar, Augnablik frá Kópavogi, hampa deildarbikarnum, MYND: PF
Körfubolti
Fyrsti æfingaleikur Stólanna á Hvammstanga
Nú er undirbúningur fyrir komandi
körfuboltavertíð kominn af stað en fyrsti
æfingaleikur Tindastóls fyrir komandi
keppnistímabil verður haldinn í Íþróttahúsinu
á Hvammstanga nk.
föstudag 7. september
kl 19:00. Liðið mætir þar
Skallagrími sem mun leika í
Dominosdeild karla í
vetur.
Fyrsta æfing tímabilsins
var þann 1. september en á
Fésbókarsíðu körfubolta-
deildar segir að ekki hafi þó
verið um fullskipaðan hóp að ræða þar sem
Pétur Rúnar og Danero Thomas voru með
landsliðinu og báðir Helgarnir fengu „Helgar-
frí“. Urald King, Dino Butorac, Ólafur Björn
Gunnlaugsson og Brynjar
Þór Björnsson voru allir á
sinni fyrstu æfingu fyrir
Tindasól og voru þeir boðnir
velkomnir í Síkið.
Allir stuðningsmenn
Tindastóls eru hvattir til að
fjölmenna á leikinn og hvetja
strákana til sigurs. /PF
Strembnast að ná
almennilegum svefni
í miðnætursólinni
Stefan Lamanna veður upp völlinn. MYND: ÓAB
[ ERLENDIR TUÐRUSPARKARAR ] oli@feykir.is
Stefan Lamanna / frá Toronto í Kanada /
markaskorari í Tindastóli
Stefan Lamanna hefur verið
sprækastur leikmanna
Tindastóls í sumar við þá
mikilvægu iðju að skora mörk
en þessi eldsnöggi og lipri
vængmaður frá Kanada hefur
skorað átta mörk fyrir liðið
það sem af er. Stefan er 23 ára
gamall og kemur frá Toronto í
Ontario-fylki í Kanada þar
sem foreldrar hans búa. Hann
á eina systur.
Stefan stundar nám við háskól-
ann í Vermont í Bandaríkjunum
þar sem hann leggur stund á
hagfræði. Ástæðan fyrir því að
hann dúkkaði upp á Króknum
er sú að hann var að spila í
háskóladeildinni úti og þar
voru nokkrir samherjar hans
frá Íslandi og leika með
íslenskum liðum yfir sumarið.
Þeir hvöttu hann til þess að
finna sér lið á Íslandi og sjá til
hvernig gengi.
Hvað hefur komið þér mest á
óvart síðan þú komst til Íslands?
„Dagsbirta á miðnætti var
UPPÁHALDS SNAKKIÐ: Íslensk
kjötsúpa.
LAG SUMARSINS: Aldrei heim
[með Aroni Can].
SKRÍTNASTI MATURINN SEM ÞÚ
HEFUR BRAGÐAÐ Á ÍSLANDI:
Þorramatur.
UPPÁHALDS FÓTBOLTALIÐIÐ
ÞITT: Manchester City.
eitthvað sem ég hafði ekki
reiknað með.“
Hvernig finnst þér að vera hluti
af liði Tindastóls? „Það er
ljómandi fínt. Liðið er vel stutt
af samfélaginu og samstaðan
innan liðsins er meiri en
vanalega í liðum sem koma frá
stærri bæjum.“
Hver er uppáhalds liðsfélaginn
þinn? „Það er Santiago [mark-
vörður], því við erum einu
erlendu leikmenn liðsins sem
hafa verið hér frá því í byrjun
leiktíðarinnar.“
Hvaða væntingar hafðirðu til
sumarsins á Íslandi? „Ég von-
aðist til þess að mér færi fram
sem leikmanni hér á Íslandi og
ætti síðan möguleika á að spila
í efri deild eftir að hafa hjálpað
liði Tindastóls að ná mark-
miðum sínum.“
Hvaða leikmaður hefur verið þín
helsta fyrirmynd? „Sergio
Aguero [Manchester City],
vegna þess að hann hefur verið
aðalmaðurinn í upprisu uppá-
halds fótboltaliðsins míns og
hann er hinn fullkomni
atvinnumaður.“
Hvað gerirðu á Króknum annað
en að spila fótbolta? „Minn típ-
íski dagur inniheldur nokkrar
ferðir á N1, halda mér í formi
og æfa með liðinu, ég les mér til
í náminu og spila FIFA við
herbergisfélaga mína.“
Hvað hefur verið erfiðast við að
dvelja á Íslandi? „Það hefur
verið strembnast við Íslands-
dvölina að ná almennilegum
svefni þegar sólin skín enn um
miðjar nætur!“
stutta
spilið
Frá fyrstu æfingu Tndastóls sl. laugardag.
MYND AF FB-SÍÐU KÖRFUBOLTADEILDAR TINDAST.
33/2018 5