Fréttablaðið - 24.04.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 24.04.2020, Blaðsíða 12
St a r f s me n n B y g g ð a s t o f n -unar í verkefninu Brothættar byggðir hafa á síðustu árum átt gott samstarf við verkefnisstjóra byggðaþróunar verkefna undir hatti verkefnisins. Meðal annars hefur verið á stefnuskrá að hitt- ast að lágmarki einu sinni á ári til að bera saman bækur og fara yfir það helsta í starfinu og miðla hug- myndum. Á síðasta ári var ákveðið að bjóða einnig þeim verkefnisstjórum sem hafa tekið við kef linu í byggðar- lögum þar sem Byggðastofnun hefur dregið sig í hlé, auk verk- efnisstjóra í sambærilegu byggða- þróunarverkefni Fljótsdalshreppi. Þessir fundir hafa verið mjög góðir en aðilar verið sammála um að þörf væri á tíðari fundum. Þegar takmarkanir á samkomu- haldi voru kynntar í mars síðast- liðnum varð ljóst að ekki yrði mögulegt fyrir hópinn að koma saman að sinni og því varð úr að láta reyna á fjarfund. Svo vel tókst til að síðan þá hafa stuttir fjar- fundir verið haldnir vikulega, bæði til að deila hugmyndum og reynslu og til að fara yfir helstu tækifæri og áskoranir fyrir byggðalögin á tímum sem þessum. Það hefur verið mjög gefandi fyrir þá sem þetta rita að geta hitt hópinn og farið yfir það helsta sem er á döfinni og því má segja að þær sérstöku aðstæður sem hafa skap- ast vegna veirunnar hafi þétt raðir verkefnisstjóranna með dreifðu samstarfi. Það er ekki síst mikilvægt í ljósi þess að stór hluti hópsins hefur unnið á heimaskrifstofu undan- farnar vikur og jafnvel verið í sóttkví hluta tímans. Við þessar aðstæður verður enn greinilegra hversu mikilvægt það er að tryggja öllum byggðarlögum háhraðateng- ingar og sem betur fer hefur verk- efnið Ísland ljóstengt skilað nær öllum Brothættu byggðunum ljós- leiðarasambandi á undanförnum tveimur árum. Vonandi tekst að ljúka verkefn- inu sem allra fyrst og tengja síðustu byggðarlög landsins sem nú eru án ljósleiðara. Dreift samstarf þéttir raðir verkefnisstjóra Við höfum fengið dýrmæta innsýn í styrk og sveigjan-leika íslensks menntakerfis á síðustu vikum. Skóla- og frístunda- starfi í landinu var kollvarpað með litlum sem engum fyrirvara og fjar- nám og „heimaskólun“ varð veru- leiki fjölmargra foreldra og barna. Framhalds- og háskólanemar stunda sitt nám alfarið á rafrænan máta og leik- og grunnskólar hafa endurskipulagt daglegt starf til að tryggja velferð barna og ungmenna. Við stöndum frammi fyrir breyttri heimsmynd og gríðarmiklum áskorunum og þjóðir sem búa við öf lug menntakerfi munu standa betur að vígi til að takast á við þær. COVID-19 faraldurinn sem nú geis- ar dregur skýrt fram hve þýðingar- mikið er að ef la samskiptahæfni einstaklinga, nýsköpun og hugvit, gagnrýna og siðferðilega hugsun. Samvinna skiptir sköpum Að baki þeirri umbyltingu innan menntakerfisins sem við höfum fylgst með undanfarnar vikur liggur kraftmikil samvinna margra. Kenn- arar, skólastjórnendur og annað starfsfólk skóla hefur unnið baki brotnu við að halda uppi skólastarfi og finna nýjar leiðir og lausnir. Ég vil einnig nefna frístundaleiðbein- endur sem halda utan um frístunda- og félagsstarf, þroskaþjálfa, náms- og starfsráðgjafa, uppeldis- og menntunarfræðinga og stuðnings- fulltrúa sem eru mikilvægir banda- menn, talsmenn og ráðgjafar barna og ungmenna. Störf alls þessa fólks eru ómetanleg og skipta sköpum fyrir samfélagið. Það er rík ástæða til að hafa áhyggjur af þeim sem standa höllum fæti, s.s. vegna fötl- unar, fátæktar og annarra félags- legra aðstæðna. Sterkt stuðningsnet sem grípur, styður við og hvetur alla til dáða byggist á samvinnu ólíkra kerfa samfélagsins, ekki síst velferð- ar-, mennta- og heilbrigðiskerfis. Skapandi lausnir og sveigjanleiki Við munum geta dregið mikinn lær- dóm af þeirri ótrúlegu umbreytingu sem orðið hefur á daglegu starfi allra skólastiga. Menntakerfið hefur forgangsraðað upp á nýtt og lagt fyrri áætlanir til hliðar. Það hefur verið magnað að fylgjast með öllum þeim nýju aðferðum, verkfærum og hugmyndum sem fagfólk á sviði menntunar hefur gripið til og nýtt til að styðja við virkni og velferð barna og ungmenna. Það er áríð- andi að við leggjum við hlustir og heyrum raddir unga fólksins – hver er þeirra upplifun af síðustu vikum? Hver er og verður þeirra veruleiki? Hver eru þeirra forgangsmál? Við þurfum nú að leysa öll megin- verkefni samfélagsins við nýjar og óvæntar aðstæður. Nú sem aldrei fyrr þarf að efla nýsköpun og virkja hugvit til að styðja við atvinnu- og efnahagslíf og renna styrkari stoðum undir samfélagið. Það er því fagnaðarefni að í aðgerðapakka stjórnvalda vegna COVID-farald- ursins er veruleg innspýting inn í rannsóknir og vísindi. Hér skipta rannsóknir á menntun og mennta- kerfinu miklu máli fyrir framtíð Íslands. Dýpri skilningur og skarp- ari sýn á þróun menntunar mun skila árangri á öllum sviðum sam- félagsins. Gagnrýnin og siðferðileg hugsun Bent hefur verið á annars konar far- aldur sem geisar um þessar mundir, en það er staðleysufaraldur (e. info- demic) sem felst í því að rangar upplýsingar um COVID-19 ferðast hraðar um en veiran sjálf, eins og kom fram í nýlegu viðtali við Elfu Ýr Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar. Falsfréttir grafa undan stoðum samfélagsins, ýta undir tortryggni og geta skaðað bæði einstaklinga og samfélög. Við þessar aðstæður erum við rækilega minnt á það grundvallarmarkmið menntunar að efla læsi, þar á meðal fjölmiðlalæsi, og einnig gagnrýna og siðferðilega hugsun barna og ung- menna. Hin gagnrýna hugsun felst í því að vega og meta sannleiksgildi og kynna sér uppruna eigin sann- færinga og mótrök þeirra. Hin sið- ferðilega hugsun felst í því að þroska dómgreind og ætti að móta athafnir okkar, því hún hjálpar okkur að ákvarða að hverju skuli stefnt og hvað skiptir raunverulega máli í líf- inu. Meginatriðið hér er að eiginleg menntun snýst um hvort tveggja, skarpa hugsun og gott hjartalag. Lifum og lærum á nýjan hátt Sé litið um öxl yfir síðastliðnar vikur fær engum dulist sá kraftur sem býr í skólasamfélaginu, í frí- stundastarfinu og í velferðarkerf- inu okkar. Staðfest hefur verið að menntakerfið getur aðlagast og sveigt sig á örskömmum tíma að samfélagslegri umbyltingu. Við erum sannarlega ekki búin að sjá fyrir endann á þeirri áskorun sem COVID-19 faraldurinn er. Það mun skipta sköpum að okkur takist að styrkja þá lykilhæfni sem gerir okkur kleift að takast á við f lókin verkefni, sem einstaklingar og sem samfélag. Við lærum nú að lifa saman á annan hátt en áður. Mennt- unin sem í þessu felst er gríðarmikil, hún mun efla okkur til lengri tíma. Menntakerfið á tímum COVID-19 Í janúar sl. bárust fréttir af alvar-legum veirufaraldi. Þremur mánuðum seinna hafa því næst öll ríki heims brugðist við með umtalsverðum aðgerðum, bæði til að hefta útbreiðslu sjúkdómsins og til að hjálpa þeim sem veikast standa, en einnig til að taka á þeim efnahagsvanda sem fylgir. Ólíkt tímaskyn Fyrir 30 árum vöknuðu þjóðir heims upp við vondan draum; hættulegar loftslagsbreytingar voru um það bil að eyðileggja lífs- skilyrðin á heimili okkar, jörðinni. Í skyndi voru gerðir alþjóðlegir samningar um hvað bæri að gera – svo ótrúlega lítið. Líka á Íslandi þar sem losun gróðurhúsalofttegunda hefur vaxið um liðlega 30% frá árinu 1990. Í veirufaraldri reynist tímaskynið annað en í yfirvofandi loftslagsvá. Mannfólkið hefur eðlilega meiri áhyggjur af eymd og dauða morgun- dagsins en að jörðin verði illbyggi- leg eftir fáeina áratugi. Lærdómur og samkennd Samkennd er mikilvæg forsenda fyrir þeim aðgerðum sem við upp- lifum þessa dagana. Viðbrögðin nú sýna að hægt er að grípa til virkra aðgerða á stuttum tíma ef pólitískur vilji er fyrir hendi og ef þorri almennings styður þær og hlítir því að gjörbreyta lifnaðar- háttum án fyrirvara. Margir velta fyrir sér hvort af þessu megi draga lærdóm til að takast á við enn meiri ógn en kórónaveiruna: lífshættu- legar loftslagsbreytingar af manna- völdum. Loftslagsbreytingar bitna á unga fólkinu Unga fólkið og þeir sem eru heilsu- hraustir þurfa síður að óttast veir- una. Samt axla þeir ábyrgð á því að vernda þá sem eldri og viðkvæmari eru. Þessu er alveg öfugt farið þegar kemur að loftslagsbreytingum því þar hefur unga fólkið mestu að tapa. Samkennd á milli kynslóða og umhyggja fyrir kynslóðum fram- tíðar eru forsenda aðgerða í lofts- lagsmálum. Eða eins og Andri Snær skrifaði í nýlegri bók sinn „hags- munir fyrirtækja og þægindi hafa vegið þyngra en hafið, andrúms- loftið og öll barnabörn heimsins um alla framtíð“. Því þarf að breyta. Lausnir þurfa að byggja á samstarfi Hnattvæðingin, sem er ein for- senda góðra lífskjara, hefur stuðlað að því að veiran berst hratt um alla heimsbyggðina. Þannig hefur veirufaraldurinn sýnt okkur að við jarðarbúar erum í raun öll á sama báti. Loftslagsvandinn er líka hnattrænn og skilvirkar lausnir þurfa að byggja á samstarfi ríkja og öflugum alþjóðlegum stofnunum. Parísarsamkomulagið er nothæfur rammi um alþjóðlegt samstarf um loftslagsmál. Þann ramma þarf að efla á komandi árum, ekki síður en Alþjóðaheilbrigðisstofnunina. Enn er tími Heimsbyggðin hafði fáeinar vikur til að bregðast við hættulegri veiru. Heimsbyggðin hefur haft undan- farin 30 ár til að bregðast við enn hættulegri vá, loftslagsbreytingum af mannavöldum. Það viðfangsefni hverfur ekki þó veirufárinu ljúki. En sem betur fer höfum við enn tíma til að bregðast við loftlagsvánni – en þó ekki mikinn. Mannlíf og náttúra dafna í sátt Aðgerðir gegn veirunni hafa sett efnahagslífið í frost. En aðgerðir til að vernda loftslagið þurfa hins vegar ekki að setja efnahagslífið á annan endann – ef vel er að verki staðið. En samt þarf, eins og Andri Snær sagði í bók sinn Um tímann og vatnið, „nánast að endurhanna 20. öldina eins og hún leggur sig. Það þarf að endurhugsa hvað við borðum, þarf að endurhugsa tísku og tækni, allar samgöngur, alla framleiðslu og neyslu. Það þarf að endurhugsa heiminn og það þarf að gerast jafn hratt eða hraðar en menn þróuðu flugið, kjarnorkuna og tölvutæknina.“ Lausnirnar eru margar hverjar fyrir hendi og þær vinna ekki bara á loftslagsvand- anum, þær munu einnig stuðla að sjálfbærri hagsæld; gera heiminn að stað þar sem mannlífið fær að dafna í betri sátt við náttúruna. Það sem vantar nú er öflugri pólitískur vilji, víðtækari stuðningur almennings og skilvirkara alþjóðlegt samstarf.“ Ísland sem gott fordæmi Í dag heyrast þær raddir að viðbrögð Íslendinga við kórónaveirunni hafi verið til fyrirmyndar. Vonandi reynist það rétt. Ísland getur líka orðið gagnlegt fordæmi í loftslags- málunum. Skref í þá átt eru skýr, tímasett og lögbundin langtíma- markmið; að hætta alfarið að nota jarðefnaeldsneyti og nýta einungis endurnýjanlega orku. Loftslags- hópur Landverndar hefur sett fram eftirfarandi tillögu: 2020 n Aukið fjármagn í nýsköpun og þróun fyrir notkun hreinna orkugjafa í flugsamgöngum í samstarfi við grannþjóðir. 2023 n Banna innflutning á bensín- og dísilbílum. 2025 n Banna innflutning vinnuvéla og tækja sem ekki ganga fyrir hreinum orkugjöfum. n Öll opinber framkvæmdasvæði noti eingöngu tæki sem ganga fyrir hreinum orkugjöfum. n Jarðefnaeldsneytislausar al- menningssamgöngur á landi. 2030 n Farþegaflug knúið rafmagni í fyrsta sinn. n Landsamgöngur án jarðefna- eldsneytis. n Sjósamgöngur án jarðefnaelds- neytis. 2035 n Fiskiskipaflotinn án jarðefna- eldsneytis. n Millilandaflug án jarðefnaelds- neytis. Ég held að þetta sé býsna góður vegvísir að leiðangri til að bæta forsendur þess að af komendur okkar njóti velsældar um ókomna framtíð. Að minnsta kosti hef ég ekki séð neinn betri enn sem komið er. Saman getum við! Þjóðin, já heimurinn allur, býr yfir tækni, þekkingu og auðlegð til að ná markmiðum Parísarsamkomulags- ins um aðgerðir til að hindra hættu- legar loftslagsbreytingar. En ekki má gleyma að til þess þarf sterkan pólitískan vilja, víðtæka samstöðu og stuðning almennings – alveg eins og í baráttunni við COVID-19. Nýtum reynsluna og sýnum sam- stöðu sem nýtist til aðgerða gegn hamfarahlýnun. Hvað hefur COVID-19 kennt okkur? Eva Pandóra Baldursdóttir Kristján Þ. Halldórsson Kolbrún Þ. Pálsdóttir Forseti Mennta- vísindasviðs Háskóla Íslands Við þessar aðstæður verður enn greinilegra hversu mikilvægt það er að tryggja öllum byggðarlögum há- hraðatengingar. Það hefur verið magnað að fylgjast með öllum þeim nýju aðferðum, verkfærum og hugmyndum sem fagfólk á sviði menntunar hefur gripið til og nýtt til að styðja við virkni og velferð barna og ungmenna. Heimsbyggðin hafði fáeinar vikur til að bregðast við hættulegri veiru. Heims- byggðin hefur haft undan- farin 30 ár til að bregðast við enn hættulegri vá, lofts- lagsbreytingum af manna- völdum. Tryggvi Felixsson formaður Landverndar 2 4 . A P R Í L 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.