Fréttablaðið - 24.04.2020, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 24.04.2020, Blaðsíða 36
Úr sóttkví beint inn í sumarið Fyrsti dagur sumars var í gær, en sumarið í ár verður eflaust litað af því flókna ástandi sem hefur yfirtekið heiminn vegna COVID-19 faraldursins. Margir hafa þurft að fresta og breyta plönum í ljósi þessa en flestir virðast ætla að halda í jákvæðnina og gera það besta úr stöðunni. Fréttablaðið fékk nokkra skemmti- lega einstaklinga til að deila með lesendum plönum sínum fyrir sum- arið. steingerdur@frettabladid.is Margir hafa þurft að laga plön sín fyrir sumarið að breyttu ástandi í heiminum. Fréttablaðið fékk nokkra skemmtilega ein- staklinga til að deila með lesendum plönum sínum fyrir þetta fordæmalausa sumar. EVA RUZA MILJEVIC SKEMMTI- KRAFTUR ÖRN ELDJÁRN TÓNLISTAR- MAÐUR Það er í raun ekkert plan í gangi út af þessu ástandi. Ég átti að spila nokkur gigg erlendis með Júníusi Meyvant en það er búið að af- lýsa því. Ég og Valdimar Guðmundsson tón- listarmaður ætluðum að taka eina hring- ferð um landið og spila á þessum helstu stöðum eins og við höfum gert undanfarin ár. Við þurfum eitthvað að aðlaga túrinn eftir aðstæðum. Svo er það auðvitað söng- leikurinn 9 líf þar sem ég spila í hljómsveit- inni, það verður auðvitað bið eftir honum. Ég og Ösp systir mín ætluðum að fara einn hring um landið og troða upp. Maður reynir bara að halda rónni og sjá hvað gerist. Ég er búsettur í Svarfaðardal á meðan á þessu stendur og ég meira að segja sótti um sumarstarf hjá Dalvíkurbyggð við viðhald og að gera og græja. Annars hef ég sett upp upptökustúdíó hér í dalnum og er að vinna að eigin efni, meðal annars plötu með Ösp, og annarri með móður minni, Kristjönu Arn- grímsdóttur. Planið í sumar var að fljúga suður um höf, eða ég held að Kanarí sé í suðri en ég er oft illa áttuð, með bikiní í hægri, sólarvörn í hinni og fjölskylduna í eftirdragi. Þar sem ungfrú Kóróna fór sturluð yfir heims- byggðina þá verða Kanarífuglarnir að bíða aðeins eftir okkur. Ég er gríðarlega lítil útilegumanneskja og er farin að svitna smá yfir Íslandsplönum eiginmanns og barna, sem snúast um að sofa helst undir berum himni allt fríið. Ætli ég leigi ekki bara húsbíl og elti þau ef plön ganga eftir. Annars eiga mamma og pabbi bústað sem við munum eflaust nýta okkur vel í sól og alvöru sumri, sem ég er handviss um að komi. Sumarplönin mín eru búin að breytast töluvert, mér var boðið í brúðkaup í Washington í júní sem ég ætlaði að breyta í mánaðarreisu um Bandaríkin, þar sem ég hef aldrei komið þangað áður. Það er auð- vitað ekki að fara að gerast núna. Þannig að mín ferðaplön eru fá. Mig langar að rækta garðinn minn. Ég mun svo leika í nokkrum verkefnum yfir sumarið sem hafa færst til vegna faraldursins, þannig að það verður einhver vinna í bland við garðræktina mína á Óðinsgötu. Annars sé ég fyrir mér sjúklega kósí sumar með mörgum grillveislum í garðinum. Ef sundlaugarnar fara ekki að opna þá ætla ég að kaupa mér uppblásna sundlaug og setja hana á pallinn svo ég deyi ekki úr frá- hvörfum. Í sumar hlakka ég til að flakka um rólóa Reykjavíkur og vonandi fara oft í viku í sund. Við fjölskyldan ætluðum að fara til Danmerkur í útskrift hjá litla bróður mínum en í staðinn tökum við vonandi góða útilegu, borðum ís og eltum náttúrulaugar. Stefnan er tekinn norður þar sem fjölskyldan á bústað í Hörgárdal. Sundlaugin á Akureyri er náttúrulega með bestu rennibrautir landsins, þótt sundlaugin á Þelamörk sé dásamlegust. Fáum okkur svo grænmetispylsu á Pylsuvagninum á Akureyri. Þá langar okkur aftur á GeoSea á Húsavík, rúnta um Mývatn og ganga um Ásbyrgi. Það þarf náttúrulega að nota þessa inneign frá ríkinu. Ég var nokkuð heppinn í þessu ástandi, var fenginn inn í frístundastarf vegna þess að aðrir starfsmenn þurftu að fara í sóttkví. Ég fékk þar af leiðandi vinnu í sumarstarfinu í frístund. Mig dreymdi um að fara til Parísar og taka þátt í trúðanámskeiði í júlí en ég verð þá bara að finna mér eitthvað annað leiklistartengt að gera yfir sumarið. Kannski að ég búi til verk ætlað börnum með krökkunum í sumarstarfinu. AUÐUR KOLBRÁ BIRGISDÓTTIR LÖG- FRÆÐINGUR TELMA HULD JÓHANNES- DÓTTIR LEIKARI FANNAR ARNARSSON LEIKLISTAR- NEMI 2 4 . A P R Í L 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.