Fréttablaðið - 24.04.2020, Side 18

Fréttablaðið - 24.04.2020, Side 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna. Það stendur að vanda yfir í þrjár vikur eða til 26. maí. Á þeim tíma eru landsmenn hvattir til að hreyfa sig og nýta sér heilsu- samlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur með því að hjóla, ganga eða nota annan virkan ferðamáta. „Undanfarinn áratug hefur orðið gríðarleg vakning í þjóðfélaginu um hjólreiðar sem heilsusamlegan samgönguvalkost. Starfsmenn vinnustaða hér á landi hafa aldeilis tekið vel við sér því þátttakan hefur margfaldast á nokkrum árum. Ætla má að margir þátt- takendur hafi tekið hjólreiðar upp sem lífsstíl í framhaldi af þátttöku sinni í verkefninu,“ segir Hrönn Guðmundsdóttir hjá ÍSÍ. „ÍSÍ er stolt af því að hafa stuðlað að bættri hjólamenningu á Íslandi og orðið til þess að vinnustaðir og sveitarfélög hafi bætt til muna aðstöðu fyrir hjólandi fólk. Hjólað í vinnuna er nú orðið hluti af menningu margra vinnustaða í landinu í maí ár hvert.“ Hrönn nefnir að margir vinnu- staðir taki þátt ár eftir ár og á skipu- leggi ýmsa viðburði í kringum átakið eins og hjólaferð fyrir fjöl- skylduna og fleira skemmtilegt. Dagleg hreyfing nauðsynleg Meginmarkmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfis- vænum og hagkvæmum sam- göngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almennings- samgöngur til og frá vinnu í þrjár vikur í maí ár hvert. Hrönn segir að sú hugmynd hafi komið upp að fresta verkefninu í ár vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem nú ríkja í samfélaginu. En ákveðið var að halda keppnina þrátt fyrir allt með örlítið breyttu sniði. „Við þessar sérstöku aðstæður er nauðsynlegt að sinna sinni dag- legu hreyfingu. Það er ekki síður mikilvægt fyrir vinnustaði lands- ins að huga vel að starfsandanum á þessum fordæmalausu tímum. Verkefnið Hjólað í vinnuna er mjög góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman, en auðvitað á sama tíma að virða tveggja metra fjarlægðar- mörkin,“ segir Hrönn. „Hjólreiðar eru bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti og jafnframt eru þær frábær útivist, hreyfing og öflug líkamsrækt.“ Keppt í tveimur flokkum Keppnisgreinar í Hjólað í vinnuna eru tvær. Í fyrsta lagi vinnustaða- keppni þar sem keppt er um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum. Keppt er í átta keppnisflokkum út frá stærð vinnustaða. Og í öðru lagi kíló- metrakeppni þar sem keppt er á milli liða um annars vegar heildar- fjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra miðað við fjölda liðsmanna í liði. „Í vinnustaðakeppninni skiptir ekki máli hversu margir kíló- metrar eru hjólaðir heldur hversu margir taka þátt og hversu oft þeir hjóla. Það er því um að gera að reyna að virkja sem flest starfs- fólk til að taka þátt. Í ár hvetjum við þá sem vinna heima hjá sér að byrja eða enda vinnudaginn á því að hjóla, ganga eða nýta annan virkan ferðamáta sem nemur kílómetrum til og frá vinnu. Ein- faldara getur það ekki verið og allir geta tekið þátt,“ segir Hrönn. „Hver vinnustaður skráir sig til þátttöku í keppninni og fólk hópar sig sjálft saman í lið. Það getur verið eftir deildum, hæðum eða að þeir sem hjóla mikið eru saman í liði. Það er allur gangur á því.“ Gjaldgengir þátttakendur Allir geta tekið þátt í Hjólað í vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til og frá vinnu (og heimavinnu). Það er hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta og svo framvegis. Þeir sem nýta almenn- ingssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem er gengin eða hjóluð til og frá stoppistöð. Rafhjól eru tekin gild en hver kílómetri sem hjólaður er á rafhjóli gildir sem 0,75 km. „Meðan á átakinu stendur eru ýmsir leikir í gangi svo sem skrán- ingarleikur þar sem allir þátttak- endur fara sjálfkrafa í pott og eiga möguleika á að vera dregnir út í þættinum Morgunverkin á Rás 2 alla virka daga. Hjólreiðaverslunin Örninn gefur glæsilega vinninga og þann 27. maí er dregið út glæsi- legt reiðhjól að verðmæti 100.000 krónur,“ segir Hrönn. Einnig verður myndaleikur í gangi á Instagram, Facebook og á vefsíðu Hjólað í vinnuna þar sem fólk er hvatt til að taka skemmti- legar myndir af þátttöku sinni í verkefninu og merkja myndina með #hjoladivinnuna. Með því gætu þátttakendur unnið veglega vinninga frá Nutcase á Íslandi. Auðvelt er að skrá sig til leiks ásamt því að finna allar frekari leiðbeiningar um verkefnið á hjoladivinnuna.isÁ mörgum stöðum hefur skapast skemmtileg stemning í kringum átakið. Þau sem vinna heima geta hafið eða endað daginn á að hjóla smá hring. Átakið hjólað í vinnuna fer fram um allt land. Verkefnið Hjólað í vinnuna er mjög góð leið til að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . A P R Í L 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RALLIR ÚT AÐ HJÓLA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.