Fréttablaðið - 24.04.2020, Side 31
BÍTIÐ
HEIMIR OG GULLI VAKNA Í MORGUNSÁRIÐ Á BYLGJUNNI, STÖÐ 2 VÍSIR OG VÍSIR.IS
ALLA VIRKA MORGNA MILLI KL. 06:50 OG 10:00
Síðasta vetrardag árið 1971 komu fyrstu tvö hand-ritin aftur heim til Íslands frá Danmörku, eftir að Handritamálið svokallaða leystist. Þetta voru þjóðar-
gersemarnar Flateyjarbók og Kon-
ungsbók eddukvæða sem hafa síðan
verið varðveittar á Stofnun Árna
Magnússonar. Þessum handritum,
og átta öðrum merkisbókum, má
nú fletta í stafrænni handritahirslu
stofnunarinnar sem opnuð var á
sumardaginn fyrsta.
Flett á netinu
Sigurður Stefán Jónsson, ljósmynd-
ari Árnastofnunar, vann að þessu
verkefni. „Mín vinna fólst í því að
láta mér detta í hug nýjar og öðru-
vísi leiðir til að miðla handritunum.
Ansi mörg handrit eru mynduð nú
þegar og eru á handrit.is, en sá vefur
er aðallega stílaður inn á fræða-
fólk. Ég var að gæla við hugmyndir
um það hvernig hægt væri að mat-
reiða handritin fyrir almenning og
nemendur í grunn- og framhalds-
skólum. Með það í huga datt mér
í hug að búa til bækur sem hægt
væri að fletta á netinu. Þá þurfti að
mynda nokkur handrit eða nota
eldri myndir sem til eru af hand-
ritum og vinna þær þannig að þær
væru í samræmdu útliti. Síðan útbjó
ég vefsíðu þar sem hægt er að fletta
handritunum og skoða þau. Jafn-
framt er hægt að lesa stutta lýsingu
á hverju handriti fyrir sig. Síðan
heitir hirslan.arnastofnun.is.“
Sigurður segir að hugmyndir séu
uppi um að bæta við handritum.
„Við erum líka að skoða fleiri leiðir
til að miðla handritum, hvort sem
það verður með vídeó, hlaðvarpi
eða öðru. Ein hugmynd er svo að
sérfræðingar hjá stofnuninni geti
talað inn á hljóðrás og útskýrt hvað
er áhugavert og athyglisvert við ein-
stakar síður handritanna.“
Eins og úr bókasafni
Hogwarts-háskóla
Spurður hvernig tilfinning það hafi
verið að ljósmynda þessar gömlu
gersemar segir Sigurður: „Það er
nokkuð sérstakt, sérstaklega núna
nýverið með Flateyjarbók sem er
eitt okkar þekktasta og frægasta
handrit. Forvörður hefur unnið að
því undanfarna mánuði að lagfæra
og endurbinda hana. Hún var tekin
í sundur og hvert blað fyrir sig var
laust og þá var tækifærið notað og
ég myndaði hana upp á nýtt. Það
var gaman að komast í þess konar
návígi.“
Sum handritanna eru listilega
myndskreytt. „Sonur minn, sem nú
er í framhaldsskóla, saknaði þess
þegar hann var í grunnskóla að sjá
ekki meira af myndum af hand-
ritunum. Þegar ég sýndi honum
þessar myndir fannst honum þær
mjög spennandi. Þarna eru til
dæmis myndir úr goðafræðinni og
af gangi himintunglanna og sumt
fannst honum mjög dulúðugt,
næstum eins og eitthvað úr bóka-
safni Hogwarts-háskóla í Harry
Potter bókunum. Ég held að það
væri gaman fyrir íslenskukennara
í grunn- og framhaldsskólum og
einnig myndmenntakennara að
nýta sér þennan vef við kennslu því
þarna er svo margt sem getur vakið
áhuga nemenda.“
Sumargjöf Árnastofnunar til þjóðarinnar
Sigurður Stefán Jónsson, ljósmyndari Árnastofnunar, vann að því að koma handritum, sönnum þjóðarger-
semum, á vefsíðu þar sem hægt er að fletta þeim. Hugmyndir eru um fleiri leiðir til að miðla handritum.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Sigurður Stefán Jónsson segir gaman að hafa komist í návígi við handritin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F Ö S T U D A G U R 2 4 . A P R Í L 2 0 2 0