Kýmni - 15.01.1930, Page 6

Kýmni - 15.01.1930, Page 6
ó rfuróyrfarinri-. I’^IONAN var svo sem bezta manneskja, en Tauoin ii&ll var nú samt orðinn dauðþreyttur á sambúðinni, og þar eð hjónaskilnaðurinn var gagnstæður lögmáli guðs, tók hann það göfuga ráð, að byrla henni inn eitur! Eins og hver annar óbreyttur maður, sem ekkert hafði lesið sér til fróðleiks um eiturefni, var hann knúður til þess að nota rottueitur. Hann fékk sér því tvö eða þrjú lóð hjá næsta lyfsala, og blandaði því vandlega saman við mat konu sinnar. Rottueitrið hafði undursamleg áhrif. Frúin tók að fitna þessi býsn. Andlit hennar var að vísu ofurlítið fölara; en hún sagðist aldrei hafa verið jafn heilsugóð á æfi sinni. Taupin formælti rottueitrinu. — Aftur fór hann til lyfsalans og bað hann nú um kvikasilfur. Hann leysti það upp í vatni og blandaði því í drykk sinnar ástkæru eiginkonu. En hvað skeði? Þar sem rottueitrið hafði aukið mjög á matarlyst frúarinnar, var hún farin að kenna meltingarleysis, sem kvikasilfrið nú algerlega læknaði. Nábúar hennar voru undrandi yfir því, hve ágæta heilsu hún hafði og sögðu að hún blómgaðist eins og rós í júní. Enn formælti Taupin. Hann fann að kvikasilfrið hafði blekkt hans háleituslu vonir. Þó ákvað hann að gera eina tilraun enn. Dapur í bragði fór hann til lyfsalans og bað nú um eina flösku af ópíum-seyði. Hann hraðaði sér heim, og þessu sinni var hann ekki að hugsa um að mæla í skömmtum né dropatali, heldur blandaði því ríflega saman við mat konu sinnar, og hrærði duglega í.

x

Kýmni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kýmni
https://timarit.is/publication/1420

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.