Bæjarbót - 01.02.1987, Blaðsíða 10
10
^z^DT
Óliáð flokkadrætti
■I
Loftmengun frá Fiskimjöl og Lýsi:
Undirskriftirnar
gegndu sínu hlutverki
—áframhaldandi þrýstingur á fyrir-
tækið
Vorið 1986 skrifuðu rúmlega
300 bæjarbúar undir skjal þar
sem mótmælt var loftmengun
eða ,,peningalykt“ frá Fiski-
mjöl og Lýsi. Undirskriftirnar
voru aðallega frá þeim hlutum
bæjarins sem oftast fá óþefinn,
en mjög er misskipt í bænum,
hvar lyktin liggur, sökum rikj-
andi vindáttar. Undirskriftirnar
voru afhentar heilbrigðisfulltrúa
sem aftur kallaði á Hollustu-
vernd Ríkisins. Þessir aðilar
hafa verið með málið og gengið
úr skugga um að allt mögulegt
hefur verið gert til að minnka
mengun. Mér er málið skylt, því
vil ég upplýsa bæjarbúa um þær
SUNDLAUG
GRINDAVIKUR
Sími 8561
Opið sem hér segir
Mánudaga - föstudaga:
Böm kl. 16.00 -17.30
Unglingar kl. 17.30 -19.00
Fullorðnir kl. 19.00 - 21.00
Glænýr gufubaðskiefi er
opinn sem hér segir:
KONUR:
Mánud., Miðv.d.,Föstud.
kl. 19.00 - 21.00
KARLAR:
Þriðjud. og Fimmtud.
kl. 19.00 - 21.00
- gerðu þér gott -
- syntu reglulega -
niðurstöður sem sérfræðingarn-
ir hafa komist að.
a) Svokölluð hreinsitæki, sem
upp voru sett, eru fyrst og síðast
til hagsbóta fyrir fyrirtækið.
Hliðarverkun er að minnka
mengunarefni og reyk.
b) Kælivatn verksmiðjunnar
leyfir ekki kælingu reyks niður
fyrir 20°. Kælivatnið er um
8-12° en þyrfti að vera mun
lægra. Kæling myndi enn
minnka mengun mjög.
c) Mengunarefni í reyk hafa
minnkað 100 falt, en skynfærin í
nefi manna nema ekki nema
50% minnkun.
Svona verður lyktin og ekkert
öðruvísi þar til eitthvað eftirtal-
inna atriða gerist.
Verksmiðjan framleiðir 2.
flokks vöru, sem engin vill
kaupa eftir nokkur ár. Stærstu
kaupendur vilja ,,heitlofts-
þurrkað“ mjöl, en ekki brennt á
þann veg sem þessi úrelta verk-
smiðja gerir.
1. Verksmiðjan bræðir aðeins
í norðanátt þegar stendur af
bænum.
2. Verksmiðjan verður flutt
austur fyrir Grindavík.
Ríkjandi vindáttir eru
Aust-suð-austlægar.
3. Verksmiðjan fer að þurrka
með heitu lofti eða gufu.
Gufu á Hitaveitan nóg af
og hefur verið rætt um að
skipuleggja iðnaðarsvæði
nær Svartsengi.
4. Verksmiðjan lokar.
Grindvíkingar þurfa ekki að
þola þessa loftmengun. Grind-
víkingar skulda þessu fyrirtæki
ekkert. Vinnufúsar hendur
Grindvíkinga hafa skapað eig-
endunum umtalsverðan auð.
Okkur kemur ekki við hvort
Jón Gröndal.
breytingarnar kosta meira eða
minna. Það verður að krefjast
þess að eigendur komi vinnsl-
unni í nútímahorf og framleiði
boðlega vöru. , _ .. , ,
Jon Grondal.
Vantar raddir
í kórinn
Kórstarfið er enn í fullum
gangi og gengur vel. Þeir sem
hafa áhuga á þátttöku eru
hvattir til að gefa sig fram því
enn er hægt að bæta við nokkr-
um söngröddum. ___
Hér eru þeir Emil Páll Jónsson frá Víkurfréttum (t.v.) og
Halldór Leví Björnsson (t.h.) frá Reykjanesi að skeggræða
útgáfumálin. Samkeppni blaðanna er ótrúlega mikil og ekki
laus við að vera brosleg ástundum! Allt kapp er best með for-
sjá!
■pastet|Ea'
eru:
Greiðið á réttum tíma og forðist óþarfa kostnað.
Bœjarsjóður Grindavíkur
Myndatökur við allra hæfi
PANTIÐ TÍMA FYRIR
FERMINGARNAR
nymynD
Hafnargötu 90 Sími 1016