Fréttablaðið - 30.04.2020, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 0 1 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 3 0 . A P R Í L 2 0 2 0
Nýr
réttur!
MEÐ BÉARNAISE-SÓSU OG KARTÖFLUGRATÍNI
Lambasteik
Heit máltíð,
tilbúin á 12 mín.
Hægeldun tryggir að vítamín
og næringarefni halda sér.
Íslensk framleiðsla, íslenskt
kjöt, án allra rotvarnarefna.
Vinna við byggingu nýs Landspítala er í fullum gangi. Til stendur að ljúka jarðvinnu vegna meðferðarkjarnans í maí en um er að ræða stærstu bygginguna í verkefninu. Samkvæmt áætl-
unum á vinnu við meðferðarkjarnann að ljúka 2025. Grunnurinn, sem sést á myndinni, er tæplega 19 þúsund fermetrar að stærð og er 18 metrar þar sem hann er dýpstur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
H E I LB R I G Ð I S M Á L Velferðar ráð
Kópavogs telur brýnt að huga að
breytingum á hjúkrunarþjónustu
og að komið verði upp f leiri sér-
hæfðum úrræðum fyrir yngra
fólk. Þarfirnar séu allt aðrar en hjá
eldra fólki og sumir veigri sér við að
þiggja þau rými sem standa til boða.
Um er að ræða hóp sem þarf á
mikilli og langvarandi þjónustu að
halda, til dæmis eftir slys eða alvar-
leg veikindi, fólk undir 67 ára aldri.
Hafa á undanförnum árum komið
óskir inn á borð bæjarins um sólar-
hringsþjónustu á öðrum stað en
eldra fólk er vistað. Væri þá annað-
hvort um að ræða sér sérhæfðar
deildir fyrir yngra fólk eða önnur
sérúrræði fyrir yngra fólk.
„Þetta er fólk sem þarf ef til vill
þjónustu í mörg, mörg ár. Það fer því
ekki saman að yngra fólk sé á hefð-
bundnum hjúkrunarheimilum þar
sem einstaklingar dvelja kannski
í tvö eða þrjú ár,“ segir Aðalsteinn
Sigfússon, félagsmálastjóri Kópa-
vogsbæjar.
Segir Aðalsteinn þjónustuþörf
þessara tveggja hópa gjörólíka.
Aldraðir þurfi fyrst og fremst á
umönnun að halda en þarfir yngra
fólks séu víðtækari og fjölbreyttari.
Hjá þeim þurfi f leira sérhæft starfs-
fólk til að mæta þessum þörfum og
bæði útbúnaður og kringumstæður
þurfa einnig að vera sniðnar að
þeim.
Um þessar mundir hafa sveitar-
félögin verið að innleiða NPA, not-
endastýrða persónulega aðstoð,
sem gerir fötluðu fólki kleift að
vera sjálfstætt og búa heima hjá
sér. En það er úrræði sem hentar
ekki öllum sem þurfa á umfangs-
mikilli þjónustu að halda sem ekki
er hægt að veita annars staðar en í
sérhæfðum úrræðum.
„Okkur vantar úrræði til að
koma til móts við þann hóp,“ segir
Aðalsteinn. Hægt sé að koma fleiri
hjúkrunarrýmum fyrir yngra fólk
á laggirnar ef viljinn er fyrir hendi.
„Það er afar mikilvægt að hægt
sé að koma til móts við færniskert
yngra fólk með þeim hætti að það
sjálft geti sætt sig við það,“ segir
Aðalsteinn.
Í ljósi þess hvetur velferðarráð
Kópavogs til enn frekari uppbygg-
ingar úrræða. Til dæmis að litið sé
til þess hvort ekki megi endurskipu-
leggja deildir innan hjúkrunar-
heimila og fjölga þeim. Það útiloki
þó ekki að hægt sé að líta til annars
konar úrræða.
„Hér er margt vel gert, en við
viljum að betur sé gert,“ segir vel-
ferðarráð Kópavogs. – khg
Ungir fái eigin hjúkrunarrými
Velferðarráð Kópavogs vill sérstök hjúkrunarrými fyrir yngra fólk sem hefur slasast eða er alvarlega
veikt. Þessi hópur hefur gjarnan vistast á hjúkrunarheimilum með eldra fólki sem hefur allt aðrar þarfir.
Það er afar mikil-
vægt að hægt sé að
koma til móts við færniskert
yngra fólk með þeim hætti
að það sjálft geti sætt sig við
það.
Aðalsteinn
Sigfússon,
félagsmálastjóri
Kópavogsbæjar
FERÐAÞJÓNUSTA Framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
segir fjöldagjaldþrot myndu hamla
verulega uppbyggingu í greininni á
ný. – kij / sjá síðu 8
Fjöldagjaldþrot
tefji endurreisn
Í ÞRÓT TIR Kaf lask ipti verða í
íslenskri handboltasögu er Guðjón
Valur Sigurðsson hættir.
Ferill Guðjóns Vals, sem spannar
aldarfjórðung í hæsta gæðaflokki,
hefur runnið sitt skeið og hann
leggur harpixið á hill-
una. Guðjón Valur getur
gengið sáttur frá
borði eins og lesa
má um í nær-
mynd af honum
í blaðinu í dag.
– hó / sjá síðu 12
Stórmeistari
kveður sviðið