Fréttablaðið - 30.04.2020, Síða 4
Við höfum verið að
koma til móts við
leigutaka sem lent hafa í
miklu tekjutapi með frestun
leigugreiðslna.
Kristjana Ósk
Jónsdóttir,
markaðsstjóri
Reita
DÓMSTÓL AR Sigurður Tómas
Magnús son, dómari við Landsrétt,
er talinn hæfastur umsækjenda
til að hljóta embætti dómara við
Hæstarétt í drögum að áliti hæfnis-
nefndar. Frestur umsækjenda til
að senda inn andmæli við álitið
rann út í gær og gera má ráð fyrir
að nefndin skili endanlegri niður-
stöðu fyrir helgi.
Auk Sigurðar sóttu fjórir um
embættið, Sigríður J. Friðjóns-
dóttir ríkissaksóknari og Lands-
réttardómararnir Aðalsteinn E.
Jónasson, Davíð Þór Björgvinsson
og Jóhannes Sigurðsson.
Síðast var skipað í embætti dóm-
ara við Hæstarétt 1. janúar síðast-
liðinn. Þá voru Sigurður Tómas
og Davíð Þór metnir hæfastir auk
Ingveldar Einarsdóttur sem hlaut
embættið.
Nú bregður hins vegar svo við að
Sigurður Tómas er talinn hæfari en
Davíð Þór.
Töluverðar breytingar hafa orðið
á skipun Hæstaréttar að undan-
förnu. Í fyrra létu bæði Markús Sig-
urbjörnsson og Viðar Már Matthí-
asson af embætti eftir langa setu í
réttinum en Markús var skipaður
í embætti árið 1994 og hafði því
gegnt embætti hæstaréttardómara
í aldarfjórðung þegar hann lét af
embætti. Það sæti sem nú verður
skipað í losnaði þegar Helgi Ing-
ólfur Jónsson, varaforseti Hæsta-
réttar, tilkynnti að hann óskaði
eftir lausn, en hann verður 65 ára
á þessu ári.
Tvær konur og fimm karlar sitja
nú í Hæstarétti og ekki er útlit fyrir
breytingu á þeim kynjahlutföllum
nú. – aá
Sigurður Tómas talinn hæfastur í álitsdrögum hæfnisnefndar
Auk Sigurðar sóttu fjórir um embættið. MYND/JÓHANNA VIGDÍS GUÐMUNDSD.
Sigurður er nú metinn
hæfari en Davíð, en þeir
voru metnir jafnhæfir
síðast.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
AÐEINS EINN BÍLL Í BOÐI MEÐ DRÁTTARBEISLI
TILBOÐSVERÐ: 6.990.000 KR.
JEEP® COMPASS LIMITED
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
• Leðurinnrétting með rafdrifnum
sætum
• Leðurklætt aðgerðarstýri
• Rafdrifin opnun á afturhlera
• Hiti í stýri og framsætum
• Íslenskt leiðsögukerfi
• 8,4” upplýsinga- og snertiskjár
• Alpine hljómflutningstæki með
bassaboxi
• Sjálfvirk tveggja svæða
miðstöð með loftkælingu
• Aðfellanlegir og upphitaðir
hliðarspeglar
• 140 hö. diesel, 9 gíra sjálfskipting
• Select-Terrain fjórhjóladrif með 4 drifstillingum
• Dráttarbeisli
• Bluetooth til að streyma tónlist og síma
• Bakkmyndavél
• Fjarlægðarskynjarar að framan og aftan
• Árekstrarvari
• LED dagljós og LED afturljós
• 18” álfelgur
• Blindhorns- og akreinavari
• Fjarlægðarstilltur hraðastillir
• Leggur sjálfur í stæði
• Svart þak
NEYTENDUR Coca-Cola European
Partners á Íslandi setti nýlega á
markað Topp í dósum. Toppur, sem
er sódavatn ýmist með bragði eða
án, hefur fram til þessa einungis
verið fáanlegur í plastflöskum.
Dósirnar og innihald þeirra
kemur frá Svíþjóð.
„Við erum nýbyrjuð að selja Topp
í dós til að svara mikilli eftirspurn,
það er eftirspurn eftir dósum í dag
og vörum í litlum umbúðum. Við
erum því miður ekki með tækja-
búnað til að framleiða litlar dósir
hérna á Stuðlahálsi þannig að þetta
er framleitt í Svíþjóð,“ segir Stefán
Magnússon, markaðsstjóri CCEP á
Íslandi.
„Það er verið að nota lindarvatn
sem kemur úr lind í Svíþjóð. Það eru
mjög strangar gæðakröfur þarna og
það er sjálf bær nýting á lindinni.“
Toppur í dós er langt frá því að
vera eina erlenda sódavatnið sem
selt er á Íslandi. Athygli vekur að
ekki er skráð sérstaklega að um
erlent vatn sé að ræða.
„Það stendur ekki á neinni
pakkningu en það kemur fram á
vefsíðunni okkar að Toppur í dós er
framleiddur í Svíþjóð,“ segir Stefán.
„Fólk er almennt mjög ánægt með
þetta, höfum fengið frábærar við-
tökur og svörum eftirspurninni.“
– así
Svíar framleiða
Topp-sódavatn
Sænskur Toppur í dós er nú á boð-
stólum hér. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
VIÐSKIPTI Staða þriggja stærstu fast-
eignafélaga landsins, Eikar, Regins
og Reita, er fjárhagslega sterk.
Síðustu vikur hafa mörg fyrir-
tæki neyðst til að hætta hefðbund-
inni starfsemi og eiga erfitt með að
standa skil á leigugreiðslum. Eru
forsvarsmenn félaganna í viðræð-
um um leiðir til að koma til móts
við leigutaka.
Veiran snertir alla; smæstu ferða-
þjónustufyrirtækin, meðalstóru
sjálfstæðu sjúkraþjálfunarstöðv-
arnar og tvö þúsund manna fyrir-
tækin.
Fasteignafélagið Eik ákvað að
blása til sóknar með leigutökum í
hótel- og veitingarekstri með því að
framleiða markaðsefni þar sem fólk
er hvatt til að nýta sér þá þjónustu
sem er í boði.
Fyrirtækið aðstoðar einnig leigu-
taka við að ná yfirsýn yfir stöðuna,
hvaða úrræði séu í boði frá stjórn-
völdum og hvernig sjóðstreymi
leigutaka lítur út í samstarfi við
Deloitte.
Garðar Hannes Friðjónsson, for-
stjóri Eikar, segir stöðu fyrirtækja
misjafna og þörf fyrir aðstoð ólíka.
„Við frestum greiðslum þeirra
leigutaka sem þurfa og hafa lagt
fram gögn þar að lútandi. Hvað
framtíðin ber í skauti sér varðandi
frekari aðstoð við leigutaka á eftir
að koma í ljós þegar staðan og
þróun efnahagsmála fer að skýrast,“
segir Garðar.
Aðgerðir Regins snúa fyrst og
fremst að frestun leigugreiðslna og
því að útbúa lausnir og tilslakanir
fyrir leigutaka.
„Kostnaður við húsaleigu sem
hlutfall af tekjum leigutaka er mjög
breytilegur, eða frá þremur pró-
sentum upp í allt að 25 prósent,“
segir Heiða Salvarsdóttir, reglu-
vörður Regins.
Fjöldi leigutaka Regins er tæplega
400 og hefur verið veittur greiðslu-
frestur á leigu aprílmánaðar til um
fjórðungs leigutaka.
„Með því að vinna sérstaklega
með þeim viðskiptavinum sem
verða fyrir mestum og lengstu áhrif-
unum, fremur en að veita hópi leigu-
taka sams konar lausn, telja stjórn-
endur Regins að aðgerðirnar verði
markvissari og skili betri árangri,
bæði fyrir leigutaka og Regin,“ segir
Heiða. Hún reiknar með að frest-
unin muni einnig ná að hluta til
maí og júní. „Það er þó óumflýjan-
legt að það muni ekki duga öllum
leigutökum.“
Reitir hafa styrkt sjóðsstöðu
sína með sölu skuldabréfa og eigna
ásamt því að fresta arðgreiðslum til
að geta mætt aðstæðum. Leigutakar
Reita eru um 400 talsins.
„Við höfum verið að koma til
móts við leigutaka sem lent hafa í
miklu tekjutapi með frestun leigu-
greiðslna. Við komum síðan til
með að vinna úr þeirri stöðu síð-
sumars og í haust í samstarfi við
viðkomandi aðila,“ segir Kristjana
Ósk Jónsdóttir, markaðsstjóri Reita.
Félagið mun skoða málin með
þeim leigutökum sem hafa lent í
miklu tekjutapi þegar staðan fer að
skýrast í lok sumars og í haust.
ingunnlara@frettabladid.is
Fasteignafélög fresta greiðslu á
arði og framleiða markaðsefni
Staða þriggja stærstu fasteignafélaga landsins er sterk. Forsvarsmenn félaganna ræða um leiðir til að
koma til móts við leigutaka. Er fyrst og fremst miðað við frestun greiðslna. Fasteignafélagið Eik tekur
þátt í að framleiða markaðsefni til að hvetja fólk til að skipta við leigutaka í hótel- og veitingarekstri.
Samkomubannið hefur haft gríðarmikil áhrif á fyrirtæki. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
3 0 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð