Fréttablaðið - 30.04.2020, Page 10

Fréttablaðið - 30.04.2020, Page 10
Öræfajökull er eitt stærsta virka eldfjall í Evrópu og hefur gosið tvisvar á sögu-legum tíma, 1362 og 1727. Þessi risa-stóri gígur er fylltur jökulís sem er allt að 550 m þykkur og bíður svellkaldur næsta goss. Á barmi rúmlega fimm kílómetra breiðrar öskjunnar raða sér f lestir hæstu tindar landsins. Þar er hæstur Hvannadalshnúkur (2110 m) í vestri en í norður þriðji hæsti tindur lands- ins Snæbreið (2041 m) og Sveinstindur (2044 m), sá næsthæsti. Skammt undan er systir hans Sveinsgnípa (1925 m) en Eystri (1758 m) og Vestari Hnappur (1849 m) við suðausturhluta öskjunnar og Rótarfjallshnúk- ur (1848 m) beint í suður. Tilkomumesti tindurinn á öskju barminum er þó Dyrhamar (1917 m), skammt suðvestur af Hnúknum. Nafnið er viðeigandi því snar- brattir hamrar einkenna hann og eru klofnir í tvennt af risastórum dyrum sem sjást víða að. Dyrhamar er tilkomumestur á veturna og vorin þegar svartir klett- arnir eru þaktir klakabrynju frá toppi til táar. Þá minnir sá Efri óneitanlega á hvíta nashyrnings- tönn, en hvíti nashyrningurinn (Ceratotherium simum) er líkt og Dyrhamar afar sjaldséður og mun fágætari en svarti nashyrningurinn sem einnig á heimkynni í Afríku. Þetta eru grasbítar sem geta vegið allt að 2,3 tonn og þykja ekki sérlega spakir, frekar en Dyrhamar sem er snúinn uppgöngu. Það er þó tvímælalaust hægt að mæla með göngu á Dyr- hamar og einstök tilfinning að standa á þeim Efri með útsýni yfir landið og miðin. Algengast er að komast að Dyrhamri með því að fylgja Sandfellsleið áleiðis að Hvannadalshnúk en síðan sveigt til vinstri þegar komið er fram hjá risastórum og sveigðum sprungum Virkisjökuls. Loks er komið að fallegri egg sem leiðir að rúmlega 100 m háum ísvegg nashyrningstannar- innar. Þarna verður að notast við snjóakkeri, mann- brodda, ísaxir og öryggislínur. Efst er stórkostlegt útsýni yfir Hrútsfjallstinda (1875 m), Virkisjökul og Sveinstind með öskju Öræfajökuls í forgrunni. Athyglinni stela þó Hvannadalshnúkur og vestur af honum Tindaborgin sem oft er kölluð Kirkjan (1740 m). Í góðu skyggni sést alla leið til Kverkfjalla (1920 m), 70 km norðar. Önnur krefjandi gönguleið á Dyrhamar liggur upp sprunginn Virkis- jökul austan megin Hamarsins, en einnig er hægt við bestu aðstæður að ganga upp vestan megin Hamarsins eftir Hvannadal eða af Svínafellsjökli. Niður af Dyrhamri verður Sandfellsleiðin oftast fyrir valinu, a.mk. fyrir fjallaskíðafólk, enda 15 km brekka niður að bílastæði við bestu aðstæður. Er þá skíðað niður Dauðabrekkuna sem er með lengstu fjallaskíðabrekkum á Íslandi – og þótt víðar sé leitað. Hvítur nashyrningur Dyrhamar dregur nafn sitt af skarði sem klýfur þver- hnípta hamrana í tvennt. Í bakýn sést í Hrúts- fjallstinda um- lukta skýjum. MYNDIR/ÓMB Úr norðri líkist Dyrhamar nashyrningstönn sem er tilkomumest að vetri til. Að standa á Dyrhamri er engu líkt, en þegar ský sækja að úr suðri líkist neðri hluti hans kafbát sem kemur úr kafi. Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari 3 0 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.