Fréttablaðið - 30.04.2020, Síða 12

Fréttablaðið - 30.04.2020, Síða 12
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Á blaða­ manna­ fundum í Hvíta húsinu vegna kóróna­ faraldursins tókst Trump síðan að trompa alla þá vitleysu sem hann hefur áður látið út úr sér. Með lestr­ inum ræktum við menn­ ingararfinn okkar og því meira sem við lesum, því betra! Þegar vandi steðjar að þjóð á hún til að horfa í átt til leiðtoga sinna í stjórnmálum í von um að þeir finni viðeigandi lausn. Þannig mátti greina áberandi létti meðal bresku þjóðarinnar þegar forsætisráð-herrann litríki Boris Johnsson mætti aftur til leiks eftir að hafa lent í klóm kórónavírussins og verið hætt kominn. Boris var aftur orðinn sjálfum sér líkur, með reytt og úfið hár sem verður alltaf eins, hvort sem hárgreiðslustofur eru lokaðar til langframa eða ekki. Hann var sannfærandi þegar hann taldi kjark í þjóð sína á erfiðum tímum. Það mátti skynja að jafnvel andstæðingum hans í pólitík fannst gott að vita að Boris væri snúinn aftur í Downingstræti 10 og það jafnvel þótt breska ríkisstjórnin hafi ekki mikla stjórn á vandanum enda brást hún seint við. Staðan í Hvíta húsinu er svo skelfileg enda engan veginn hægt við öðru að búast. Allt frá því Donald Trump var kosinn í embætti forseta Bandaríkjanna hefur hann hagað sér eins og dómgreindarlaus dekurkrakki í frekjukasti. Það er ekki við því að búast að maður af þessari tegund sýni á sér aðra hlið í miðjum kórónafaraldri. Í bræðiskasti ákvað hann að Bandaríkin skyldu láta af fjárframlögum til Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, sem er vitanlega galið á tímum þegar sérlega nauðsynlegt er að þjóðir heims leggi saman í baráttu við vírusinn. Á blaðamannafundum í Hvíta húsinu vegna kórónafaraldursins tókst Trump síðan að trompa alla þá vitleysu sem hann hefur áður látið út úr sér, og er þó af nógu að taka. Það var verulega óhuggu- legt að horfa á Bandaríkjaforseta velta því upp á blaðamannafundi hvort heppilegt gæti verið að dæla sótthreinsandi efnum í líkamann til að gera út af við veiruna. Fáviskan virðist því miður botnlaus. Þegar honum varð síðan ljóst, eða var gert ljóst, hversu fáránleg og hættuleg þessi hugmynd hans væri þá brást hann vitanlega ekki við með því að skammast sín. Hann hafði sagt orðin í kaldhæðni, útskýrði hann á öðrum blaðamannafundi fyrir blaðamönn- um sem var greinilega ekki skemmt. Allir sem horfa á upptökuna af þessum dæmalausa blaðamannafundi þar sem Trump bauð upp á lausn sína um sótthreinsunarefnin sjá að þar er engin kaldhæðni á ferð. Ljóst er að Donald Trump var full alvara með orðum sínum og hann beindi þessu ráði sínu greinilega að yfirmanni viðbragðsteymis Hvíta hússins í kórónafaraldrinum. Þeirri ágætu konu leið greinilega ekki sem best þar sem hún sat undir þessari furðuræðu. Hún greindi ekki, fremur en aðrir, kaldhæðni í orðum forsetans, sem fannst þessi hugmynd sín greinilega vera hin forvitnilegasta og sannarlega vel þess virði að rannsaka. Það er sérkennilegt að maður eins og Donald Trump, sem stöðugt skellir skollaeyrum við stað- reyndum, skuli eiga sér fjölda aðdáenda. Einnig meðal einhverra Íslendinga, sem finnst mikið til hans koma og hlaupa stöðugt í vörn fyrir hann. Svo sannarlega er illa komið fyrir þeim í tilbeiðslunni á heimskunni. Kaldhæðnin Tímapantanir í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK SJÓNMÆLINGAR hefjast að nýju 4. maí Hinn Tom Hagen Auglýsingafjárfestingar ríkisins vegna faraldursins hafa sett af stað háværar umræður um hvaða fjölmiðlar ríkið telur áreiðanlega. Fyrir utan þá biluðu ákvörðun að ausa almannafé í risana Google og Facebook þá vilja minni vefmiðlar eins og Kvennablaðið einnig fá eitthvað í sinn hlut. Greinarhöfundur nokkur á Kvennablaðinu gerði þó algeng en óheppileg mistök þegar talað var um áreiðanleika miðilsins, en í þeirri grein kallar hann Halldóru Þorsteinsdóttur lektor Huldu ítrekað. Það eina sem vantaði var að birta mynd af Robert Duvall í hlutverki Tom Hagen, consigliere Guðföðurins, í umfjöllun um hinn norska Tom Hagen. Snúðurinn Það er rétt hjá þingmanninum Ágústi Ólafi Ágústssyni að það er orðið allt of langt síðan við fengum hressilega rann- sóknarskýrslu. Tilgangurinn með þeim er göfugur – hafa landsmenn þá eitthvað að tala um fyrir utan veðrið í nokkra daga. Eina sem við munum eftir úr síðustu skýrslu er Ólafur Ólafsson að lesa af blaði við hlið pottaplöntu. Verður gerð sú krafa að næsta hrunskýrsla innihaldi í það minnsta sögu af sóttvarnalækni að borða snúð á meðan hann talar um áframhald samkomubanns. arib@frettabladid.is Bókmenntaarfur Íslendinga sprettur úr frjóum jarðvegi íslenskrar sögu og menn-ingar. Um aldir hafa Íslendingar haft ríka þörf fyrir að segja, lesa og hlusta á sögur. Þá þörf höfum við enn, líkt og blómleg bókaútgáfa og glæsileg stétt rithöfunda er til marks um. Grunn- urinn að þessari sagnahefð var lagður fyrir nærri þúsund árum, þegar stórmenni á borð við Snorra Sturluson unnu stórkostleg menningarafrek með skrifum sínum. Bókmenning þjóðarinnar hefur haldið áfram að þróast í gegnum tíðina og laga sig að breyttum heimi. Á síðasta ári tóku gildi lög um stuðning við útgáfu bóka á íslensku. Við sjáum strax árangur- inn af þessari löggjöf, þar sem met voru slegin í útgáfu íslenskra skáldverka og útgefnum barna- bókum fjölgaði um 47% milli ára. Íslendingar standa því undir nafni, sem sagna- og bókaþjóð. Það hefur sýnt sig í yfirstandandi samkomubanni, sem þjóðin hefur nýtt til að lesa sér til gagns og gamans. Margir hafa skráð lesturinn á vef átaksverkefnisins Tími til að lesa, þar sem rúmlega 8 milljónir lesmínútna hafa verið skráðar í apríl. Á miðnætti lýkur átakinu og ég þakka öllum sem tóku þátt. Þátttakendur í þessu þjóðarátaki eru á öllum aldri. Þannig hafa þeir lesið mest sem eru 60 ára og eldri, en fast á hæla þeim komu 10 til 12 ára börn sem hafa skráð rúm- lega milljón lesmínútur í mánuðinum. Orðaforði og lesskilningur eykst með auknum lestri og því er ómetanlegt fyrir börn að lesa, taka glósur og spyrja út í orð sem þau þekkja ekki. Orðaforði barna skiptir miklu máli fyrir vellíðan og árangur í skóla og býr þau undir virka þátt- töku í samfélaginu. Með aukinni menntun eykst samkeppnishæfni þjóðarinnar og geta hennar til að standa undir eigin velferð. Það er lykilatriði að styrkja menntakerfið okkar til framtíðar. Með lestrinum ræktum við menningararfinn okkar og því meira sem við lesum, því betra! Til hamingju með árangurinn, kæra bókaþjóð. Tíminn til að lesa meira Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningar- málaráðherra 3 0 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.