Fréttablaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 16
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Fram að þessu hefur þetta bara verið hobbí hjá okkur, vorum með Kitchenaid-hrærivél til að hakka niður stönglana í trefja- plöturnar og steypuna! Innilegar þakkir fyrir hlýju og samúð í veikindum og við andlát okkar elsku sonar, bróður og mágs, Sigurðar Halldórs Sverrissonar Starfsfólki Landspítalans verður seint fullþakkað fyrir alúð og faglega umönnun við erfiðar aðstæður. Fyrir hönd aðstandenda, María H. Sigurðardóttir Sverrir Gunnarsson Inga María Sverrisdóttir Guðfinnur Einarsson Svanhildur Kr. Sverrisdóttir Bjarni Bjarnason Marteinn Sverrisson Margrét Halldórsdóttir Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ragnheiður Gunnarsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Mörk annan páskadag, 13. apríl sl. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Við þökkum þeim sem hafa minnst hennar og sýnt okkur samúð og vinarhug. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Mörk, 3. hæð, fyrir kærleiksríka umönnun. Bragi Hannesson Ragnheiður Bragadóttir Bjarni Kristjánsson Ásdís Bragadóttir Grétar Halldórsson Bryndís Bragadóttir Ólafur Hallgrímsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Fjóla Guðlaugsdóttir Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, lést mánudaginn 27. apríl. Útför hennar mun fara fram í kyrrþey. Svavar Ottósson Hólmfríður Pálsdóttir Georg Ottósson Emma R. Marinósdóttir Sólveig Ottósdóttir Jón Smári Lárusson Óli Kristinn Ottósson Auður Sigurðardóttir Sigurður Grétar Ottósson Katrín Birna Viðarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Esther Sigurðardóttir fulltrúi, Hólmgarði 27, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi að morgni föstudagsins 24. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Arnar Arnarson Ósk Matthíasdóttir Helena Arnardóttir barnabörn og langömmubörn. Elskulegi faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, Ólafur S. Guðmundsson pípulagningameistari, lést á hjúkrunarheimilinu Eir að morgni 16. apríl. Hjartans þakkir til starfsfólksins á Eir fyrir góða umönnun. Útför hans fór fram í kyrrþey. Jón S. Ólafsson Guðlaug Jónsdóttir Aðalbjörg Jónsdóttir Oddur Carl Thorarensen Aldís Erla Jónsdóttir Viggó Pétur Pétursson Magnús Viðar Jónsson og barnabarnabörn. Það eru tímamót fyrir okkur að fá leyfi til að halda áfram tilraunum okkar í ræktun og úrvinnslu hamps, eftir allt sem á undan er gengið,“ segir Oddný Anna Björns- dóttir, viðskiptafræðingur í Gautavík í Berufirði. Þar vísar hún til þess að hún og maður hennar, Pálmi Einarsson iðn- hönnuður, sáðu hampfræjum í fyrravor en vissu svo ekki fyrr en þriggja manna lögregluteymi var mætt á staðinn fyrirvaralaust. Lyfjastofnun hafði þá úrskurðað ræktunina ólöglega. Hampur er af brigði kannabisplönt- unnar sem inniheldur vímuefnið THC í snefilmagni. Heimildin sem nú var verið að gefa fyrir ræktun hamps er háð þeim skilyrðum að allir sem flytja inn sáðvöru sæki um leyfi til þess og framvísi vott- orði sem sýnir að varan innihaldi minna en 0,2% af THC, að sögn Oddnýjar. „Við vorum með öll tilskilin leyfi og stimpil frá tollinum í fyrra og það vissi Lyfjastofnun. Við vorum búin að tjá okkur í fjölmiðlum í sex mánuði um þessa tilraun, meðal annars í Frétta- blaðinu, þannig að málið tók óvænta stefnu þegar við vorum skyndilega orðnir sakborningar í sakamáli,“ segir Oddný. „Síðan höfum við barist fyrir því að regluverkið verði skýrt.“ Oddný og Pálmi fluttu með drengina sína þrjá austur í Gautavík fyrir tveimur árum. Þó Oddnýju hafi vaxið vega- lengdin frá höfuðborginni í augum þegar Pálmi minntist fyrst á þennan búsetu- möguleika finnst henni nú Gautavík vera besti staður í heimi, að eigin sögn. Hún er framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla og sjálf- stæður ráðgjafi á sviði matvæla og land- búnaðar, og segir hampinn falla í þann flokk, meðal annars. „Hampur er fyrir- taks heilsufæða, góður í salat og hægt að borða fræin líka eða kreista úr þeim olíu. Svo er hægt að þurrka hann og gera úr honum te- og kryddjurtir. Úr stöngl- inum er meðal annars hægt að vinna textíl, pappír, trefjaplötur, bio-plast og eldsneyti. Meira að segja steypu. Pálmi hefur prófað að gera hampsteypu, hún er létt, eldþolin, umhverfisvæn og myglar ekki því hún andar. En fram að þessu hefur þetta bara verið hobbí hjá okkur, vorum með Kitchenaid-hrærivél til að hakka niður stönglana í trefjaplöturnar og steypuna!“ Fyrst og fremst segir Oddný fjölskyld- una ætla að nota hampinn í trefjaplötur til að skera út gjafavörur og leikföng sem þekkt eru undir nafni fyrirtækis þeirra Geislar. „Hingað til höfum við notað krossvið og MDF-plötur. Pálma finnst Íslendingar alltof háðir innf lutningi á hráefni en hann prófaði að pressa hampinn í plötur og skera út og það lofar góðu.“ Meginmarkmið hjónanna með til- raunaræktuninni síðasta sumar var að vekja athygli á notagildi hamps og möguleikum hans til að stórauka sjálf- bærni á ýmsum sviðum. Þau hafa útbúið fræðsluefni bæði á YouTube og og stofn- að hóp á Facebook undir nafninu Rann- sókna- og þróunarsetur Geisla í Gautavík (hampur). „Augu fólks hafa opnast fyrir gildi hampsins,“ segir Oddný. „Pálmi byrjaði að vekja athygli á honum fyrir áratug en nú er tíðarandinn annar og hamprækt að sækja í sig veðrið erlend- is,“ segir hún og bendir á að hampur hafi verið mannkyninu mikilvægur frá örófi alda. Hann hafi verið grunnhráefni í fjölbreyttan iðnað. Á Íslandi hafi hann meðal annars verið notaður í veiðarfæri, tóg og meira að segja fyrstu baggaböndin en hagsmunaöfl hafi úthýst honum um það leyti sem nælonið kom til sögunnar. gun@frettabladid.is Augu fólks hafa opnast fyrir gildi hampsins Gleðidagur var í Gautavík í Berufirði 16. apríl þegar húsfreyjan, á afmælisdegi sínum, fékk símtal um að heilbrigðisráðherra hefði skrifað undir reglugerðarbreytingu sem heimilaði ræktun iðnaðarhamps á Íslandi, sem er fjölskyldunni í Gautavík mikið áhugamál. Fjölskyldan í Gautavík, Oddný Anna Björnsdóttir, Sævar Kári Pálmason, Róbert Björn Pálmason (aftar), Pálmi Einarsson og Brynjar Örn Pálmason. MYNDIR/AÐSENDAR Í Gautavík sumarið 2019. Hampur í vexti í forgrunni en hann náði um þriggja metra hæð. Pálmi grandskoðar þessa nytjaplöntu sem hann bindur miklar vonir við. Róbert Björn málar heimagerðan trukk. 3 0 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.