Fréttablaðið - 30.04.2020, Page 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Karitas, sem verður tvítug í sumar, hefur svo sannarlega ekki setið auðum höndum
undanfarin ár. Hún útskrifaðist
með stúdentspróf frá Verzlunar-
skólanum 18 ára gömul en hún
sleppti 9. bekk og komst því
fyrr í framhaldsskóla. Þaðan lá
leiðin beint í Háskóla Íslands.
Karitas stefnir á að ljúka BA-námi
á tveimur og hálfu ári eða um
næstu áramót.
Karitas stundar nám í íslensku
og ritlist og langar að námi loknu
að fara í mastersnám í hagnýtri
ritstjórn og útgáfu.
„Mig langar líka pínu að fara að
kenna svo þetta er smá valkvíði.
En eins og er þá stefni ég á hag-
nýta ritstjórn og útgáfu,“ segir
hún.
Það kemur líklega engum sem
þekkja Karitas á óvart að hún
hafi valið sér að læra íslensku og
ritlist. Hún hefur nú þegar gefið út
fjórar ljóðabækur og hefur alla tíð
haft gaman af íslensku.
„Ég var ekki góð í íþróttum
sem krakki og er ekki mikil
keppnismanneskja en ég var góð í
íslensku og fékk mikla hvatningu
frá kennurunum mínum. Ég hugs-
aði þess vegna með mér að það
væri best að finna einhverja fram-
tíð í því sem ég er góð í. Þar sem ég
get ekki verið að keppa í íþróttum
þá er íslenskan minn metnaður,
málfræðireglur og f leira skemmti-
legt,“ segir Karitas og hlær.
Virk í félagsstarfi
Skrifin segir Karitas að hafi verið
hluti af íslenskuáhuganum. „Við
vorum mikið hvött til þess að
skrifa í skólanum mínum og það
var mikið af skrifverkefnum. Ég
hafði alltaf gaman af þeim. Ég
hef gefið út fjórar ljóðabækur í
heildina, eða í raun þrjár og eitt
lítið hækuhefti,“ segir hún.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Karitas gengur
langoftast í
kjólum. En
þennan sam-
festing úr
Lindex fékk
hún fyrir 17 ára
afmælið sitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Gamaldags kjólar eru í miklu uppáhaldi hjá Karitas. Þessir tveir eru í sér-
stöku uppáhaldi en hún keypti þá á Asos. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ég tek stundum
tímabil þar sem ég
horfi á gamlar myndir og
þætti og fæ innblástur
þar. Það er í tísku að vera
öðruvísi. Mér finnst það
geggjað. Þá er svo auð-
velt að finna innblástur
og gera hann að sínum
eigin.
Framhald af forsíðu ➛
Karitas segir viðtökur við ljóða-
bókunum hafa verið góðar, sér-
staklega með tilliti til þess að hún
gaf þær út sjálf og er óþekkt.
„Bækurnar hafa selst upp og ég
hef fengið að lesa upp í útvarpi og
á kvennafrídaginn út af ljóða-
bókunum mínu. Það eru algjör
forréttindi í rauninni, sérstak-
lega þar sem ég er ekki með neinn
kynningarfulltrúa eða neitt slíkt.“
Karitas segist hafa byrjað að
skrifa ljóð þegar hún lenti í ástar-
sorg í fyrsta sinn 15 ára. „Þetta
voru svona klassísk unglingaljóð.
En ég hef verið aðeins að breyta
yrkisefninu núna. sérstaklega
eftir að ég byrjaði í ritlist og fór
í svona smiðjuvinnu þar sem ég
heyri frá öðrum og fæ þannig
nýjar hugmyndir sjálf.“
Á kvennafrídaginn 2018 las
Karitas upp þrjú frumsamin ljóð
eftir sig sem voru samin sérstak-
lega fyrir tilefnið.
„Ég hef alltaf verið virk í félags-
starfi. Ég var formaður Femín-
istafélags Verzló á síðasta árinu
mínu þar og var í Reykjavíkur-
ráði ungmenna sem unglingur.
Vorið 2018 stofnaði ég svo og var
eini meðlimur ungmennaráðs
Kvennahreyfingarinnar sem þá
var í framboði. Maríanna Clara,
sem var að skipuleggja kvennafrí-
daginn 2018, hafði samband við
mig og spurði hvort ég væri til í að
skrifa þrjú ljóð til að f lytja á frí-
deginum en hún hafði heyrt af því
að ég skrifaði ljóð.“
Elskar pils og kjóla
Karitas hefur gaman af gamaldags
tísku og segist elska pils og kjóla
og að vera fín. Hún segist ekki
endilega vera að reyna að skapa
sér sinn eigin stíl. Hún einfaldlega
gerir sér far um að vera fín án þess
að velta því fyrir sér hvað öðrum
finnst. „Mér finnst líka óþægi-
legt að ganga í buxum en það er
vandmeðfarið að ganga í kjólum
upp á hvern dag. Það þarf að finna
eitthvað tempó í því. En ég sæki
mikið í 60’s og 70’s kjóla,“ segir
Karitas sem kaupir kjólana sína
oftast á netinu en finnur þá líka
oft í búðum með notuð föt eins og
Hertex og Rauðakrossbúðunum.
„Ég tek stundum tímabil þar
sem ég horfi á gamlar myndir og
þætti og fæ innblástur þar. En svo
er að koma mikið í tísku núna
að vera vintage. Það er í tísku
að vera öðruvísi. Mér finnst það
geggjað. Þá er svo auðvelt að finna
innblástur og gera hann að sínum
eigin.“
Karitas á alls kyns kjóla, bæði
hversdags- og sparikjóla og segir
hlæjandi að hún sé eiginlega með
kjólafíkn. En tveir kjólar eru í sér-
stöku uppáhaldi.
„Það eru sparikjólar í 50’s stíl.
Annar er f löskugrænn og hinn
er bleikur. Ég er mjög hrifin af
þeim. Þeir eru svona spari, spari.
Ég keypti þá báða á Asos, þeir eru
ekki alvöru vintage heldur eru
þeir innblásnir af 50’s-tímanum,“
útskýrir Karitas en hún segist
mjög hrifin af Asos.
„Asos er með markað á netinu
þar sem hægt er að kaupa notuð
föt og vintage föt. Ég keypti til
dæmis dragt þar um daginn sem
er mjög f lott.“
Miðað við hverju Karitas hefur
áorkað á tæpum 20 árum er ljóst
að þessi f lotta unga kona á eftir
að láta til sín taka í framtíðinni og
það verður spennandi að fylgjast
með henni.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS
FLOTTAR BUXUR FRÁ
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R