Fréttablaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Karitas, sem verður tvítug í sumar, hefur svo sannarlega ekki setið auðum höndum undanfarin ár. Hún útskrifaðist með stúdentspróf frá Verzlunar- skólanum 18 ára gömul en hún sleppti 9. bekk og komst því fyrr í framhaldsskóla. Þaðan lá leiðin beint í Háskóla Íslands. Karitas stefnir á að ljúka BA-námi á tveimur og hálfu ári eða um næstu áramót. Karitas stundar nám í íslensku og ritlist og langar að námi loknu að fara í mastersnám í hagnýtri ritstjórn og útgáfu. „Mig langar líka pínu að fara að kenna svo þetta er smá valkvíði. En eins og er þá stefni ég á hag- nýta ritstjórn og útgáfu,“ segir hún. Það kemur líklega engum sem þekkja Karitas á óvart að hún hafi valið sér að læra íslensku og ritlist. Hún hefur nú þegar gefið út fjórar ljóðabækur og hefur alla tíð haft gaman af íslensku. „Ég var ekki góð í íþróttum sem krakki og er ekki mikil keppnismanneskja en ég var góð í íslensku og fékk mikla hvatningu frá kennurunum mínum. Ég hugs- aði þess vegna með mér að það væri best að finna einhverja fram- tíð í því sem ég er góð í. Þar sem ég get ekki verið að keppa í íþróttum þá er íslenskan minn metnaður, málfræðireglur og f leira skemmti- legt,“ segir Karitas og hlær. Virk í félagsstarfi Skrifin segir Karitas að hafi verið hluti af íslenskuáhuganum. „Við vorum mikið hvött til þess að skrifa í skólanum mínum og það var mikið af skrifverkefnum. Ég hafði alltaf gaman af þeim. Ég hef gefið út fjórar ljóðabækur í heildina, eða í raun þrjár og eitt lítið hækuhefti,“ segir hún. Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Karitas gengur langoftast í kjólum. En þennan sam- festing úr Lindex fékk hún fyrir 17 ára afmælið sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Gamaldags kjólar eru í miklu uppáhaldi hjá Karitas. Þessir tveir eru í sér- stöku uppáhaldi en hún keypti þá á Asos. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Ég tek stundum tímabil þar sem ég horfi á gamlar myndir og þætti og fæ innblástur þar. Það er í tísku að vera öðruvísi. Mér finnst það geggjað. Þá er svo auð- velt að finna innblástur og gera hann að sínum eigin. Framhald af forsíðu ➛ Karitas segir viðtökur við ljóða- bókunum hafa verið góðar, sér- staklega með tilliti til þess að hún gaf þær út sjálf og er óþekkt. „Bækurnar hafa selst upp og ég hef fengið að lesa upp í útvarpi og á kvennafrídaginn út af ljóða- bókunum mínu. Það eru algjör forréttindi í rauninni, sérstak- lega þar sem ég er ekki með neinn kynningarfulltrúa eða neitt slíkt.“ Karitas segist hafa byrjað að skrifa ljóð þegar hún lenti í ástar- sorg í fyrsta sinn 15 ára. „Þetta voru svona klassísk unglingaljóð. En ég hef verið aðeins að breyta yrkisefninu núna. sérstaklega eftir að ég byrjaði í ritlist og fór í svona smiðjuvinnu þar sem ég heyri frá öðrum og fæ þannig nýjar hugmyndir sjálf.“ Á kvennafrídaginn 2018 las Karitas upp þrjú frumsamin ljóð eftir sig sem voru samin sérstak- lega fyrir tilefnið. „Ég hef alltaf verið virk í félags- starfi. Ég var formaður Femín- istafélags Verzló á síðasta árinu mínu þar og var í Reykjavíkur- ráði ungmenna sem unglingur. Vorið 2018 stofnaði ég svo og var eini meðlimur ungmennaráðs Kvennahreyfingarinnar sem þá var í framboði. Maríanna Clara, sem var að skipuleggja kvennafrí- daginn 2018, hafði samband við mig og spurði hvort ég væri til í að skrifa þrjú ljóð til að f lytja á frí- deginum en hún hafði heyrt af því að ég skrifaði ljóð.“ Elskar pils og kjóla Karitas hefur gaman af gamaldags tísku og segist elska pils og kjóla og að vera fín. Hún segist ekki endilega vera að reyna að skapa sér sinn eigin stíl. Hún einfaldlega gerir sér far um að vera fín án þess að velta því fyrir sér hvað öðrum finnst. „Mér finnst líka óþægi- legt að ganga í buxum en það er vandmeðfarið að ganga í kjólum upp á hvern dag. Það þarf að finna eitthvað tempó í því. En ég sæki mikið í 60’s og 70’s kjóla,“ segir Karitas sem kaupir kjólana sína oftast á netinu en finnur þá líka oft í búðum með notuð föt eins og Hertex og Rauðakrossbúðunum. „Ég tek stundum tímabil þar sem ég horfi á gamlar myndir og þætti og fæ innblástur þar. En svo er að koma mikið í tísku núna að vera vintage. Það er í tísku að vera öðruvísi. Mér finnst það geggjað. Þá er svo auðvelt að finna innblástur og gera hann að sínum eigin.“ Karitas á alls kyns kjóla, bæði hversdags- og sparikjóla og segir hlæjandi að hún sé eiginlega með kjólafíkn. En tveir kjólar eru í sér- stöku uppáhaldi. „Það eru sparikjólar í 50’s stíl. Annar er f löskugrænn og hinn er bleikur. Ég er mjög hrifin af þeim. Þeir eru svona spari, spari. Ég keypti þá báða á Asos, þeir eru ekki alvöru vintage heldur eru þeir innblásnir af 50’s-tímanum,“ útskýrir Karitas en hún segist mjög hrifin af Asos. „Asos er með markað á netinu þar sem hægt er að kaupa notuð föt og vintage föt. Ég keypti til dæmis dragt þar um daginn sem er mjög f lott.“ Miðað við hverju Karitas hefur áorkað á tæpum 20 árum er ljóst að þessi f lotta unga kona á eftir að láta til sín taka í framtíðinni og það verður spennandi að fylgjast með henni. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS FLOTTAR BUXUR FRÁ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.