Fréttablaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 20
Í lok mars, þegar búið var að framlengja samkomubannið til 4. maí, ákvað Anna að nú
væri tími til kominn að taka þátt í
einni af þeim fjölda áskorana sem
flætt hafa yfir bakka samfélags-
miðla upp á síðkastið. Hún sá
bekkjarsystur sína úr grunnskóla
taka þátt í „kjólapríl“ og fannst
tilvalið að taka þátt. Markmiðið
er að klæðast kjól á hverjum degi
í einn mánuð og varð apríl fyrir
valinu hjá Önnu. „Það má því segja
að vinkona mín hafi veitt mér
innblástur. Það var heldur enginn
búinn að skora á mig í neins konar
áskorun svo ég valdi mér bara
áskorun við hæfi,“ segir hún.
Anna segir að kjólapríl hafi
hentað sérstaklega vel því hún eigi
nóg af kjólum. „Það kemur ekki
til greina að svindla! Ég er mikil
kjólakona, á yfir þrjátíu kjóla
og hef þurft að velja úr safninu á
nærri hverjum degi. Ég hef heldur
ekki enn klæðst neinum þeirra
tvisvar og geri ekki ráð fyrir
að þess þurfi út apríl. Það voru
nokkrir kjólar sem ég hafði fyrir-
fram ákveðið að nota á ákveðnum
dögum. Til dæmis vildi ég vera í
gamla fermingarkjólnum á ferm-
ingarafmælinu, þá valdi ég gulan
kjól fyrir sumardaginn fyrsta og
fleira. Annars klæðist ég bara þeim
kjól sem heillar mig þann daginn.“
Hjálpar geðheilsunni
Anna segir að áskorunin hjálpi
sér við að dreifa huganum og
koma sér á ról í samkomubanni.
„Maður er auðvitað mestmegnis
heima og það er frábært að hafa
eitthvað skemmtilegt fyrir stafni
á hverjum degi. Eftir að hafa verið
nokkra daga heima á náttfötunum
í upphafi samkomubanns, eins
og haugur, fannst mér þetta eitt-
hvað sem ég þyrfti hreinlega að
gera. Svo léttir þetta lundina alveg
talsvert. Það að taka sig aðeins til,
fara í fallegan kjól og setja á sig
varalit gerir alveg ótrúlega mikið
fyrir mann. Það er einfaldlega allt
skemmtilegra í kjól.“
Saknar allra hinna fatanna
Anna segist alltaf hafa haft áhuga
á tísku. „Ég hef verið hálfgerður
fatafíkill síðan ég var unglingur
og alltaf átt mikið af fötum. Mér
finnst einnig gaman að fylgjast
með smekklegum konum á sam-
félagsmiðlum og fá innblástur frá
þeim.“ Aðspurð hvort hún ætli að
framlengja kjólaprílið fram í maí
segir hún það ekki á döfinni. „Ég er
aðeins farin að sakna allra hinna
fatanna sem ég hef ekki notað
síðan í mars. En kjólar munu alveg
pottþétt koma við sögu í maí, eins
og alla aðra mánuði.“
Það að taka sig
aðeins til, fara í
fallegan kjól og setja á sig
varalit gerir alveg ótrú-
lega mikið fyrir mann.
Það er einfaldlega allt
skemmtilegra í kjól.
Það er allt skemmtilegra í kjól
Anna Þorleifsdóttir er að eigin sögn hálfgert „fatafrík“ og kjólakona og tekur nú þátt í stór-
skemmtilegri áskorun á Instagram undir myllumerkinu #30daydresschallenge eða „kjólapríl“.
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Anna Þorleifsdóttir er mikil kjólakona en sér þó ekki fram á að klæðast eingöngu kjólum í maí líka.
Kjóllinn er keyptur í Extraloppunni
en er upprunalega frá H&M.
Anna klæddist þessum í fyrra þegar
dóttir hennar fermdist, og ákvað
að klæðast honum aftur á eins árs
fermingarafmæli dóttur sinnar.
Anna fékk þennan úr Extraloppunni
en hann er upprunalega frá Zara.
Þennan gula og girnilega Pieces kjól
fékk Anna í Extraloppunni.
Þennan sumarlega og sæta kjól frá
Monki keypti Anna í Trendport.
Hér má sjá hluta af kjólasafninu hennar Önnu.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R