Fréttablaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 20
Í lok mars, þegar búið var að framlengja samkomubannið til 4. maí, ákvað Anna að nú væri tími til kominn að taka þátt í einni af þeim fjölda áskorana sem flætt hafa yfir bakka samfélags- miðla upp á síðkastið. Hún sá bekkjarsystur sína úr grunnskóla taka þátt í „kjólapríl“ og fannst tilvalið að taka þátt. Markmiðið er að klæðast kjól á hverjum degi í einn mánuð og varð apríl fyrir valinu hjá Önnu. „Það má því segja að vinkona mín hafi veitt mér innblástur. Það var heldur enginn búinn að skora á mig í neins konar áskorun svo ég valdi mér bara áskorun við hæfi,“ segir hún. Anna segir að kjólapríl hafi hentað sérstaklega vel því hún eigi nóg af kjólum. „Það kemur ekki til greina að svindla! Ég er mikil kjólakona, á yfir þrjátíu kjóla og hef þurft að velja úr safninu á nærri hverjum degi. Ég hef heldur ekki enn klæðst neinum þeirra tvisvar og geri ekki ráð fyrir að þess þurfi út apríl. Það voru nokkrir kjólar sem ég hafði fyrir- fram ákveðið að nota á ákveðnum dögum. Til dæmis vildi ég vera í gamla fermingarkjólnum á ferm- ingarafmælinu, þá valdi ég gulan kjól fyrir sumardaginn fyrsta og fleira. Annars klæðist ég bara þeim kjól sem heillar mig þann daginn.“ Hjálpar geðheilsunni Anna segir að áskorunin hjálpi sér við að dreifa huganum og koma sér á ról í samkomubanni. „Maður er auðvitað mestmegnis heima og það er frábært að hafa eitthvað skemmtilegt fyrir stafni á hverjum degi. Eftir að hafa verið nokkra daga heima á náttfötunum í upphafi samkomubanns, eins og haugur, fannst mér þetta eitt- hvað sem ég þyrfti hreinlega að gera. Svo léttir þetta lundina alveg talsvert. Það að taka sig aðeins til, fara í fallegan kjól og setja á sig varalit gerir alveg ótrúlega mikið fyrir mann. Það er einfaldlega allt skemmtilegra í kjól.“ Saknar allra hinna fatanna Anna segist alltaf hafa haft áhuga á tísku. „Ég hef verið hálfgerður fatafíkill síðan ég var unglingur og alltaf átt mikið af fötum. Mér finnst einnig gaman að fylgjast með smekklegum konum á sam- félagsmiðlum og fá innblástur frá þeim.“ Aðspurð hvort hún ætli að framlengja kjólaprílið fram í maí segir hún það ekki á döfinni. „Ég er aðeins farin að sakna allra hinna fatanna sem ég hef ekki notað síðan í mars. En kjólar munu alveg pottþétt koma við sögu í maí, eins og alla aðra mánuði.“ Það að taka sig aðeins til, fara í fallegan kjól og setja á sig varalit gerir alveg ótrú- lega mikið fyrir mann. Það er einfaldlega allt skemmtilegra í kjól. Það er allt skemmtilegra í kjól Anna Þorleifsdóttir er að eigin sögn hálfgert „fatafrík“ og kjólakona og tekur nú þátt í stór- skemmtilegri áskorun á Instagram undir myllumerkinu #30daydresschallenge eða „kjólapríl“. Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is Anna Þorleifsdóttir er mikil kjólakona en sér þó ekki fram á að klæðast eingöngu kjólum í maí líka. Kjóllinn er keyptur í Extraloppunni en er upprunalega frá H&M. Anna klæddist þessum í fyrra þegar dóttir hennar fermdist, og ákvað að klæðast honum aftur á eins árs fermingarafmæli dóttur sinnar. Anna fékk þennan úr Extraloppunni en hann er upprunalega frá Zara. Þennan gula og girnilega Pieces kjól fékk Anna í Extraloppunni. Þennan sumarlega og sæta kjól frá Monki keypti Anna í Trendport. Hér má sjá hluta af kjólasafninu hennar Önnu. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.