Fréttablaðið - 30.04.2020, Page 22
Lily-Rose og móðir
hennar, Vanessa
Paradis, eru báðar sendi-
herrar franska tísku-
hússins Chanel, ásamt
því að vera báðar andlit
frægra Chanel-ilmvatna.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Tískusýning Prada sem fram fór á tískuvikunni í Mílanó í febrúar var með þeim síðustu
fyrir COVID-19. Núna er búið að
fresta eða aflýsa tískuvikunum
í London, París, Mílanó og New
York sem áttu að vera í júní. Þá
eru tískuhúsin að skoða stafrænar
lausnir til að geta komið vörum
sínum á markað. Sýningarsalir í
Mílanó eru tilbúnir til að taka þátt
í nýjum stafrænum leiðum.
Kaupendur á tískusýningum eru
verðmætir og þeir hika ekki við
að eyða miklum peningum. Fólk
hættir auðvitað ekki að klæða sig
samkvæmt nýjustu tísku en erfitt
verður að kynna hana verði engar
tískusýningar því þangað koma
verslunareigendur og kaupa fyrir
næsta ár.
Stígvélin sem hérna eru sýnd
virðast til dæmis ákaflega vinsæl
um þessar mundir. Talað er um
tískubylgju í klossuðum stíg-
vélum. Þegar fræga fólkið klæðir
sig þannig hefur það áhrif. Þannig
hafa ofurfyrirsæturnar Gigi og
Bella Hadid sést í Prada Monolith
stígvélum og sömuleiðis Kendall
Jenner. Einnig hafa þekktir áhrifa-
Prada í pastellitum í haust
Alls kyns stígvél hafa verið vinsæl og verða það áfram út árið ef marka má tískusýningu Prada
fyrir haust og vetur 2020-2021 sem fram fór í febrúar. Fallegir litir setja líka sinn svip á tískuna.
Prada verður í litum í haust- og vetrarlínunni 2020-
2021 og skórnir fá nýtt og fersk útlit. MYNDIR/GETTY
Kendall Jenner á götu í New York í Monolith-stígvélum
frá Prada sem fræga fólkið hefur heillast af undanfarið.
Monolith-stígvélin frá Prada eru úr
leðri og kosta rúmar 200.000 kr.
valdar á samfélagsmiðlum spókað
sig í Prada. Svörtu leðurstígvélin
kosta rúmar 200 þúsund krónur.
Á tískusýningunni í Mílanó
kynnti Prada nýja útgáfu af
þessum skóm í mismunandi
pastellitum en tískumerkið
verður litaglatt þegar líður á árið.
Mörgum finnst það örugglega
skemmtileg tilbreyting en jarðlitir
hafa verið algengir undanfarið. En
það eru ekki einungis Prada-stíg-
vélin sem eru vinsæl. Svo virðist
sem stígvélatíska hafi aldrei verið
meiri en einmitt nú.
Fransk-ameríska fyrirsætan og leikkonan Lily-Rose Mel-ody Depp var í fréttunum í
vikunni fyrir að vera hætt með
leikaranum Timothée Chalamet
eftir tveggja ára ástarsamband. En
hver er hún?
Lily-Rose var fædd til að
verða stjarna. Hún erfði glæsi-
legt útlit foreldra sinna, frönsku
fyrirsætunnar og söngkonunnar
Vanessu Paradis og bandaríska
stórleikarans og hjartaknúsarans
Johnny Depp, og þykir einstaklega
vel heppnuð blanda af sláandi fal-
legu útliti þeirra Paradis og Depp,
ásamt því að erfa ýmsa listræna
hæfileika foreldra sinna.
Lily-Rose fæddist í frönsku
borginni Neuilly-sur-Seine, vestur
af París, 27. maí 1999 og verður því
21 árs í sumar. Hún á yngri bróður,
John „Jack“ Christopher Depp III.
Foreldrar þeirra gengu aldrei í
hjónaband en slitu samvistir eftir
fjórtán ára samband árið 2012
og dvaldi Lily-Rose til skiptis hjá
þeim í Los Angeles og París.
Lily-Rose er guðdóttir rokkarans
Marilyn Manson. Hún hefur verið
umtalsefni á síðum blaðanna allt
frá því hún fæddist og glímdi um
tíma við alvarlegt lystarstol en
hefur blessunarlega unnið bug
á því. Lyli-Rose talar reiprenn-
andi ensku og frönsku. Hún hætti
snemma í framhaldsskóla til að
eltast við leiklistardrauma og
fyrirsætustörf og þar sótti hún
greinilega á gjöful mið. Aðeins sex-
tán ára var Lily-Rose valin af tísku-
kónginum Karl Lagerfeld til að
vera andlit ilmvatnsins Chanel No.
5 L’Eau og enn er hún sendiherra
franska tískurisans Chanel. Þar
fetar hún í fótspor móður sinnar
sem hefur verið sendiherra Chanel
frá árinu 1991 og báðar hafa þær
verið í aðalhlutverki fyrir auglýs-
ingaherferðir Chanel því Vanessa
Paradis var andlit ilmsins Coco
árið 1991, þá átján ára gömul.
Leiklistarferillinn hefur líka
gengið vel hjá Lily-Rose. Hennar
fyrsta hlutverk var í bíómyndinni
Tusk árið 2014 en þar lék hún
meðal annars á móti föður sínum,
Johnny Depp. Hún hefur tvisvar
verið tilnefnd til frönsku César-
verðlaunanna sem helsta vonar-
stjarnan fyrir leik sinn í myndun-
um The Dancer og A Faithful Man,
og hún var valin besta leikkonan
á Los Angeles-kvikmyndaverð-
launahátíðinni í fyrra fyrir hlut-
verk sitt í My last lullaby.
Fram undan eru enn fleiri
kvikmyndasigrar hjá Lily-Rose.
Hún leikur á móti Gary Oldman
í spennumyndinni Dreamland á
þessu ári, lika Voyagers móti Colin
Farrell og jólamyndinni Silent
Night á móti Keiru Knightley.
Í fótspor mömmu og pabba
Lily-Rose Depp er afsprengi fallegs genamengis frægra foreldra sinna.
BÍLABLAÐ
FRÉTTABLAÐSINS
Mest lesna bílablað landsins kemur út
þriðjudaginn 5. maí næstkomandi.
Ritstjóri blaðsins er Njáll Gunnlaugsson.
Tryggðu þér pláss í mest lesna blaði landsins.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Atli Bergmann, markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5657 / atli@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R