Fréttablaðið - 30.04.2020, Qupperneq 27
Ford áætlar að opna aftur verk-smiðjur sínar á meginlandi Evrópu þann 4. maí næstkom-
andi. Verksmiðjur í Bretlandi verða
þó opnaðar seinna. Byrjað verður á
að opna verksmiðjur í Þýskalandi,
Spáni og Króatíu og verður það gert
í áföngum. Byrjað verður á sam-
setningu bíla sem þegar hafa verið
seldir og munu starfsmenn þurfa að
nota andlitsgrímur og andlitshlífar.
Líkamshiti starfsmanna verður
mældur er þeir mæta og þurfa þeir
að fylgjast vel með heilsu sinni.
Vinnusvæði verða aðskilin sem og
hvíldartímar til að halda aðskiln-
aði.
Af öðrum framleiðendum er það
að frétta að Fiat hefur opnað verk-
smiðjur á Ítalíu, en 6.000 starfs-
menn vinnubílaverksmiðjunnar í
Atessa hófu aftur störf á þriðjudag.
Volkswagen opnaði Golf-samsetn-
ingarverksmiðju sína í Wolfsburg
í gær með 8.000 starfsmönnum, og
einnig er hafin framleiðsla á ID.3 í
verksmiðju þeirra í Zwickau. Jaguar
Land Rover mun opna verksmiðjur í
Austurríki og Slóvakíu mánudaginn
18. maí. Nissan hefur stefnt á opnun
þriggja verksmiðja á Spáni í vikunni
og Volvo hefur opnað verksmiðjur
að hluta í Svíþjóð.
Toyota f r umsý ndi í síðustu viku nýjan jeppling með því að streyma myndbandi á netinu frá Brussel. Bíll-inn hefur fengið nafnið
Yaris Cross og er með hærri veghæð
og fjórhjóladrifi og ætti því að henta
íslenskum aðstæðum mjög vel. Bíll-
inn verður framleiddur í Frakklandi
í 150.000 eintökum árlega.
Að sögn Páls Þorsteinssonar, upp-
lýsingafulltrúa Toyota á Íslandi,
kemur bíllinn á markað á næsta
ári. „Sala á Íslandi hefst á seinni
hluta ársins 2021 og er reiknað
með góðum viðtökum,“ sagði Páll.
„Yaris Cross sameinar skemmtilega
kosti jepplings og þægilegs borgar-
bíls. Segja má að Yaris Cross sé stór
smábíll því innanrýmið er ríkulegt,
hann liggur hátt og er því þægilegur
í allri umgengni. Þetta er klassískur
Evrópubíll, hannaður í Evrópu og
framleiddur í Frakklandi,“ sagði Páll
um nýja bílinn.
Yaris Cross er annar bíll Toyota
sem byggður er á GA-B undirvagn-
inum og notast við fjórðu kynslóð
tvinntækni Toyota. Með bílnum
er Toyota kominn með jepplinga-
línu frá B-stærðarf lokki. Vélin er
þriggja strokka 1,5 lítra og skilar
ásamt tvinnkerfinu 116 hestöflum.
CO2 gildi hennar er mjög lágt og
er undir 90 g/km fyrir framhjóla-
drifsbílinn og undir 100 g/km á
fjórhjóladrifsbílnum. Útlit Yaris
Cross svipar meira til RAV4 en hann
er með sama hjólhaf og Yaris, eða
2.560 mm. Hann er samt 240 mm
lengri en Yaris eða 4.180 mm og
munar þar mestu um að hann er 180
mm lengri að aftanverðu. Veghæð
hans er 30 mm hærri en hjá Yaris og
bíllinn er líka 90 mm hærri. Hann
verður betur búinn og má þar meðal
annars nefna rafdrifinn afturhlera
og nýjasta upplýsingakerfið eins og
í RAV4.
SALA Á ÍSLANDI HEFST
Á SEINNI HLUTA
ÁRSINS 2021 OG ER REIKNAÐ
MEÐ GÓÐUM VIÐTÖKUM.
FORD, ÁSAMT HINUM
STÓRU FRAMLEIÐEND-
UNUM Í BANDARÍKJUNUM,
ÁÆTLAR AÐ OPNA VERKSMIÐJ-
UR 18. MAÍ.
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
m
yn
d-
o
g
te
xt
ab
re
ng
.
GENGIÐ
FRYSTUM
Reykjavík
Krókhálsi 9
Sími: 590 2020
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opið
Virka daga 9–18
Laugardaga 12–16
Opið
Virka daga 12–17opel.is
Frábær ferðafélagi!
Bílabúð Benna hækkar ekki verð
Opel Grandland X
Verð frá 3.990.000 kr.
Toyota kynnir Yaris Cross
Nýr Toyota Cross jepplingur í B-stærðarflokki er góð viðbót við jeppa- og jepplingaflóru
Toyota og hann mun keppa við bíla eins og Nissan Juke, Peugeot 2008 og Skoda Kamiq.
Útliti hins nýja Yaris Cross svipar bæði til Yaris en þó meira til RAV4. Hann verður fjórhjóladrifinn og með meiri veghæð en hefðbundinn Yaris.
Upplýsingaskjár og mælaborð er mjög svipað og í stóra bróðir RAV4.
Ford opnar
verksmiðjur
í næstu viku
BÍLAR
Ford í Bandaríkjunum áætlar að
opna aftur verksmiðjur sínar í
Detroit 18. maí næstkomandi.
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 3 0 . A P R Í L 2 0 2 0