Bændablaðið - 17.01.2019, Qupperneq 1
1. tölublað 2019 ▯ Fimmtudagur 17. janúar ▯ Blað nr. 530 ▯ 25. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Hörður Sigurjónsson, gæða- og sölustjóri á Hótel Sögu í Reykjavík, við glænýjan Mímisbar. Hann er að láta af störfum eftir 53 ára starfsævi og lengst af sem þjónn. Hefur hann varið drjúgum
hluta þess tíma í Bændahöllinni þar sem hann segist hafa átt dásamlegan tíma á skemmtilegum vinnustað. Þar er búið að gera gríðarmiklar endurbætur á undanförnum misserum, m.a. með
endurgerð fjölda herbergja, endurnýjun á Súlnasal og ekki síst er búið að taka fyrstu hæðina algjörlega í gegn. Þar er Mímisbar með nýju sniði og stórbættri aðstöðu fyrir gesti og veitingastað
þar við hlið með opnu eldhúsi. Hörður hefur kynnst og þjónað fjölmörgum frægum gestum í gegnum tíðina, eins og forsetum Íslands, Charlton Heston, Ellu Fitzgerald, Louis Armstrong og
Danadrottningu, svo einhver séu nefnd. – Sjá viðtal við Hörð á bls. 32 og 33. Mynd / Hörður Kristjánsson
Kúabændur kjósa um hvort afnema beri
kvótakerfið í mjólkurframleiðslunni
– Mikilvægt að þátttaka í kosningunni í næsta mánuði verði góð, segir Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda
Kúabændur munu í næsta mánuði
kjósa í rafrænni kosningu um
framtíðarskipan mála í greininni
og hvort afnema beri kvótakerfið
í mjólkurframleiðslunni eða ekki.
„Fyrst og fremst vænti ég
þess að sem flestir bregðist við
og taki þátt, ég hvet alla sem
þátttökurétt hafa til að taka þátt í
kosningunni. Það er mikilvægt
fyrir endurskoðunarvinnuna fram
undan að vilji bænda sé skýr, það
sé á hreinu hvernig við viljum sjá
mál í okkar atvinnugrein þróast til
framtíðar,“ segir Arnar Árnason,
formaður Landssamband kúabænda,
(LK).
Senn verður opnað fyrir þátttöku
og stendur kosning yfir í um það
bil eina viku. Hver innleggjandi
hefur eitt atkvæði, en Arnar segir
atkvæðagreiðsluna einfalda.
„Þar er spurt hvort bændur vilji
afnema kvótakerfið í mjólkur-
framleiðslunni eða viðhalda því,
einföld já eða nei spurning,“ segir
hann. Allir þeir sem framleiða mjólk
hér á landi hafa rétt á að taka þátt.
Áður en atkvæðagreiðslan hefst
munu verða birtar upplýsingar um
hvað felst í því að kjósa á hvorn
veginn fyrir sig.
Í framhaldi af atkvæðagreiðslunni
verður einnig framkvæmd
skoðanakönnun þar sem þeir
mjólkurframleiðendur sem eru
félagsmenn í LK og/eða BÍ hafa
möguleika á að koma skoðun sinni á
frekari útfærslum á framtíðarskipan
mála í mjólkurframleiðslu á framfæri
við forystuna.
Vilji bænda verður að vera ljós
„Það er mikilvægt fyrir okkur
vegna þeirrar samningavinnu sem
fram undan er að vilji bænda liggi
ljós fyrir áður en farið verður í
samningalotuna. Það gengur ekki
upp að eyða vinnu í útfærslu á kerfi
sem svo kemur í ljós að enginn vilji
er fyrir hendi meðal notenda þess að
halda við,“ segir Arnar.
Hann segir að forysta LK vinni
eftir samþykkt aðalfundar félagsins
frá því í fyrra, en þar var þeirri
skoðun lýst að verði kvótakerfi
áfram við lýði í mjólkurframleiðslu
skuli setja hámarksverð á kvótann og
viðskipti með kvóta skuli fara fram
í gegnum opinberan aðila. Hann
nefndi einnig að í væntanlegum
samningaviðræðum verði áhersla
lögð á að nýliðar í greininni fái
áfram forgang eða eins konar ívilnun
þegar að kvótakaupum kemur. Auk
þess þarf að semja um fyrirkomulag
verðlagningar og hlutfallslegan
stuðning á einstaka liði samningsins.
Hann segir fulltrúa bænda vissulega
ganga að samningaborði með sínar
áherslur, en fólk þurfi að átta sig á
að viðsemjandinn, ríkið, hafi einnig
sínar skoðanir á hvernig málum
verði best fyrirkomið.
„Við væntum þess að aðilar nái
saman um lausn sem allir geti sætt
sig við.“
Nauðsynlegt að hafa
framleiðslustýringu
„Ég vænti þess að kúabændur taki
vel við sér og kjósi um framtíð
mjólkurkvótans í þeirri kosningu
sem fram undan er. Þessi kosning var
skrifuð inn í síðasta búvörusamning
og nú er komið að því að framfylgja
því ákvæði samningsins og eyða
jafnframt þeirri óvissu sem ríkt hefur
í greininni undanfarin misseri og
gert að verkum að mikil uppsöfnuð
spenna er í viðskiptum með
greiðslumarkið. Við þurfum umfram
allt að koma eðlilegri hreyfingu á
þau viðskipti á ný,“ segir Arnar.
Hann kveðst ekki liggja á þeirri
skoðun sinni að nauðsynlegt sé að
hafa stýringu á mjólkurframleiðslu
hér á landi, enda hafi hún sannað
sig og gert kúabúskap jafn öfluga
atvinnugrein og raun ber vitni um.
Verði framleiðslan gefin frjáls,
kvótinn afnuminn, megi búast við
að stoðirnar hrynji. Framleiðslan
aukist til muna þegar allir geta
framleitt eins og þá lystir og því
megi búast við að afurðaverð til
bænda lækki í kjölfarið. Gera
mætti ráð fyrir að það hefði þær
afleiðingar að ekki yrði lengur hægt
að leggja söfnunar- og kaupskyldu
á mjólkuriðnaðinn og eins gæti
flutningsjöfnunarkostnaður fokið
út í veður og vind. /MÞÞ
8
Endurskoðun
sauðfjársamninga og
kvótaker s í mjólk
Talin mesta ógnin við
lýðheilsu í heiminum
10
Hör spunnið í lín
36–37