Bændablaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 2019 21
Multiconsult og því spurt hvort
Reykhólahreppur muni beita sér
fyrir eignarnámi á þeim jörðum
ef sú leið verður fyrir valinu. Því
svarar sveitarstjóri þannig:
„Sveitarfélagið mun ekki
standa fyrir eignarnámi.“
Ekki er annað að sjá en að
þetta svar feli í sér algjöra óvissu
um framvindu málsins ef R-leið
Multiconsult, sem Vegagerðin
hefur nefnt A3 leið, verður fyrir
valinu. Fyrir liggja yfirlýsingar
bænda sem eiga jarðir sem fara
þyrfti í gegnum um að þeir muni
kæra slíkar framkvæmdir. Til
að komast framhjá endalausum
kærumálum er engin önnur leið
fær en að beita eignarnámi.
Svar sveitarstjórans getur því
líka falið í sér að þessi leið
verði aldrei farin, nema þá að
einhverjir aðrir en handhafar
skipulagsvaldsins geti farið
fram á að slíkt eignarnám verði
framkvæmt.
6. Að lokum var spurt að ef
Vegagerðin metur það svo að
áfram verði miðað við vegagerð
um Teigsskóg um svokallaða
Þ-H leið og væntanlega með
útboði í vor, mun hreppsnefnd þá
beita sér gegn þeirri framkvæmd
og ef svo er á hvaða forsendum?
Svar Tryggva Harðarsonar
sveitarstjóra við þeirri spurningu
var einfalt:
„Ég á ekki von á að
Vegagerðin beiti sér gegn
þeirri leið sem sveitarfélagið
leggur til.“
Síðasta svarið segir ekkert um
framvinduna þar sem Vegagerðin
hefur eftir endurskoðun gefið
það út að hún haldi sig við
Teigsskógarleiðina, m.a af
öryggissjónarmiðum. Í lögum
um Vegagerðina ber henni
einmitt að að taka ákvarðanir á
forsendum öryggis og kostnaðar.
Ætli sveitarstjórn eftir sem
áður að halda fast við rök
Multiconsult er ljóst að þar er
stál í stál milli Reykhólahrepps
og þeirrar stofnunar ríkisins sem
fer með framkvæmd vegamála í
landinu.
Skipulagsvald í höndum
sveitarfélaga
Skipulagsvaldið er ótvírætt í höndum
stjórnar Reykhólahrepps sem lét þrátt
fyrir samþykkt um annað í mars 2018
endurskoða framkvæmdaáform
Vegagerðarinnar um Þ-H leið með
vegagerð um Teigsskóg. Þess má
reyndar geta að í júní 2008 birtist
frétt í Svæðisútvarpi Vestfjarða um
að hreppsnefnd Reykhólahrepps hafi
veitt Vegagerðinni framkvæmdaleyfi
fyrir nýbyggingu vegar í
Gufudalssveit, en um var að ræða
leið B sem svo var nefnd, sem liggur
meðal annars í gegnum Teigsskóg.
Kallað eftir áliti Multiconsult
Hreppsnefnd fékk, að því er virðist
að áeggjan Sigurðar Gísla og Jóns
Pálmasona, sem gjarnan hafa
verið kenndir við Hagkaup, norska
verkfræði- og ráðgjafarfyrirtækið
Multiconsult til að skila endurmati
á mati Vegagerðarinnar á vordögum
2018. Niðurstaða Multiconsult var,
eins og fram hefur komið, að ódýrara
væri að leggja veg um Reykhóla um
svonefnda R-leið og þaðan þvert
yfir Þorskafjörð úr Reykjanesi. Inni
í því mati var ekki reiknað með að
fara þyrfti í endurgerð vegarins um
Reykhóla með tengingu inn á þjóðveg
60 sem Vegagerðin taldi nauðsynlegt.
Hreppsnefnd fór í framhaldinu fram
á að Vegagerðin endurskoðaði málið
með tilliti til R-leiðar Multiconsult.
Vegagerðin ósammála
Multicunsult
Í endurmati Vegagerðarinnar sem lagt
var fram í október 2018 á fyrirliggjandi
kostum og með samanburði við
ráðleggingar Multiconsult komst
hún að sömu niðurstöðu og áður
um að hagkvæmast væri að leggja
veginn um Teigsskóg. Kemur fram
að leið R, sem Vegagerðin kallar A3,
raskar verndarsvæðum eins og hinar
leiðirnar tvær. Þ-H fer lengstan veg
um svæði á náttúruminjaskrá en D2
fer stystan kafla um slíkt svæði. Leið
R, eða A3, raskar hins vegar einnig
hverfisverndarsvæði á Reykhólavegi
og friðlýstu æðarvarpi. Í skýrslunni
kemur fram að ekki sé mögulegt að
meta áhrif leiðar R á umhverfisþætti
nema að undangengnum rannsóknum.
Þá sé ekki ljóst hvort að ráðast þurfi í
nýtt umhverfismat fyrir leið A3.
Vegur um Reykhóla sögð fela í sér
tafir og sé dýrari lausn
Vegagerðin telur að ekki sé hægt að
nýta Reykhólaveg fyrir Vestfjarðaveg,
eins og tillaga Multiconsult gerir
ráð fyrir, nema með endurbótum.
Meginástæða þess er umferðaröryggi.
Vegagerðin telur kostnaðinn við
leið A3 því vera 11,2 milljarða.
Multiconsult taldi kostnaðinn á hinn
bóginn vera litlu meiri en við Þ-H
leiðina, sem Vegagerðin áætlar að
sé 7,3 milljarðar. Vegagerðin telur
að ef ráðist verði í leið R eða A3
þá verði í fyrsta lagi hægt að ljúka
framkvæmdum árið 2024. Ef leið Þ-H
verður fyrir valinu sé hins vegar hægt
að ljúka framkvæmdum árið 2023.
Hreppsnefnd lét gera sérstaka
valkostagreiningu
Hreppsnefnd lét þar ekki staðar
numið og lét fara fram sérstaka
valkostagreiningu sem Skipulags-
stofnun mælti með í kjölfar úttektar
Vegagerðarinnar.
Þá hélt sveitarstjórn íbúafund
þann 20. desember þar sem Lilja
Guðríður Karlsdóttir, samgöngu-
verkfræðingur hjá Viaplan og
höfundur valkostagreiningarinnar,
kynnti skýrslu um málið.
Valkostagreining út frá mjög
þröngum hagsmunum
Það einkennir þessa skýrslu að þar
er höfuðáhersla lögð á mjög þrönga
hagsmuni, m.a. þar sem skólaakstur
til og frá Reykhólum vegur mjög
þungt í niðurstöðunni. Þar er einnig
metið að það sé verulega neikvætt
fyrir almenningssamgöngur til og
frá Reykhólum og ferðaþjónustu á
Reykjanesi ef farið yrði í vegagerð
um Teigsskóg. Einnig eru tilnefnd
áhrif á bráða- og heilbrigðisþjónustu
sem og tengsl Reykhóla við Flatey
sem er ekki í neinu vegasambandi,
en samt lagt upp í töflugreiningu að
hafi talsverð neikvæð áhrif komi til
vegagerðar um Teigsskóg.
Sveitarstjóri gagnrýnir róg
og dylgjur
Sagði Tryggvi Harðarson sveitar stjóri
í upphafi þess fundar að sér þætti afar
miður að einstaka aðilar hafi verið
með róg og dylgjur um að hinir
ýmsu ráðgjafar hafi verið keyptir til
að komast að fyrirfram ákveðinni
niðurstöðu.
„Einstaklingar, fyrirtæki og
stofnanir eru jafnvel sökuð um að láta
stjórnast af illgirni og/eða annarlegum
hvötum í vinnu sinni. Ég vísa slíkum
dylgjum algjörlega á bug og megi
þeir sem hafa slíkan málflutningi í
frammi hafa skömm og smán fyrir.
Slíkur málflutningur er einungis til
þess fallinn að skapa úlfúð og illindi
manna á millum.“
Sagði Tryggvi það vera hlutverk
sveitarstjórnar að vega og meta öll rök
og sjónarmið í þessu máli. Til þess að
auðvelda þeim verkefnið var fenginn
samgönguverkfræðingur til að gera
valkostagreiningu á mismunandi
leiðum samkvæmt leiðbeiningum
frá Skipulagsstofnun.
Hagsmunir Reykhóla í
aðalhlutverki
Í valkostagreiningu Viaplan er
töluverð áhersla lögð á með
myndrænum hætti að Reykhólar
séu útgangspunktur í útreikningi
vegalengda. Þannig fæst út að
vegalengdin til Patreksfjarðar og
Ísafjarðar frá Reykhólum styttist
mest við að leggja svokallaða
R-leið. Hagsmunir íbúa á Reykhólum
felast samt trúlega miklu fremur í
vegalengdinni til Reykjavíkur sem
breytist ekkert.
Einnig er mikið lagt upp úr
vegalengdum varðandi akstur
skólabíls til og frá Reykhólum.
Báðir þessir lengdarútreikningar
skipta heildarhagsmuni Vestfirðinga
litlu máli þegar horft er til aksturs
milli endastöðva þéttbýliskjarna í
Reykjavík annars vegar og hins vegar
Patreksfirði, Tálknafirði, Bíldudal,
Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Ísafirði,
Bolungarvík og Súðavík.
Óvíst hvort leið R þurfi að fara í
umhverfismat?
Þá vekur athygli í skýrslu Viaplan
að talið er óvíst hvort leið R þurfi
að fara í umhverfismat, en að
leið A3 sem að stærstum hluta
er um sama svæði þyrfti að
fara í umhverfismat. Varðandi
A3 er væntanlega verið að vísa
til vegagerðar um Berufjörð
sem Multiconsult telur ekki
þörf á í sinni tillögu um leið
R. Samt er ljóst að bæði leið
R og leið A3 færu yfir friðlýst
æðarvarp, fjörur, heilan fjörð
og landsvæði sem lítt er búið að
meta. Ef þarna þyrfti ekki að gera
tímafrekt umhverfismat er það
væntanlega þvert á yfirlýsingar og
vinnubrögð Skipulagsstofnunar,
Umhverfisstofnunar og t.d.
Landverndar í Teigsskógsmálinu
og mörgum öðrum málum er
tengjast vegagerð á Íslandi.
Í niðurstöðum Viaplan er sagt
að R-leiðin sem Multiconsult lagði
til sé vænlegust, þrátt fyrir að í
skýrslunni komi berlega fram að
stofnkostnaður vegagerðar um
Teigsskóg yrði lægri.
Þá er í niðurlagi skýrslunnar
kastað upp bolta með margvíslegum
spurningum til Vegagerðarinnar
sem gefur væntanlega tilefni til
áframhaldandi úttekta á ýmsum
þáttum. Það gæti án efa þýtt
tilheyrandi tafir á úrlausn í þessum
málum.
Sveitarstjórnarmenn fyrir
umhverfis- og samgöngunefnd
Alþingis
Fulltrúar sveitarfélaga á
Vestfjörðum, Tálknafjarðarhrepps,
Vesturbyggðar og Reykhólahrepps
sem og Vegagerðarinnar komu fyrir
umhverfis- og samgöngunefnd
Alþingis þann 3. janúar sl. vegna
vegar um Teigsskóg. Sveitarfélög
á sunnanverðum Vestfjörðum vilja
að ríkið komi að málinu þar sem
vegurinn varðar fleiri íbúa en í
Reykhólahreppi.
„Það erum við sem þurfum að
nota þennan veg til að komast
til Reykjavíkur, til að sækja alla
nauðsynlega þjónustu. Við þurfum
að koma frá okkur afurðum,
ferskum á markað. Og við þurfum
bara veg strax. Við getum ekki
beðið, ástandið á veginum er
þannig í dag að við getum ekki
unað við óbreytt ástand,“ sagði
Iða Marsibil Jónsdóttir, oddviti
Vesturbyggðar, í samtali við RÚV
um þennan fund.
Úr skýrslu um valkostagreiningu Viaplan.
Hjallaháls er er ður farartálmi á leiðinni um austanverða Barðastrandarsýslu. Hér er horft niður í Djúpafjörð, en
Gufufjörður er fjær. Teigsskógarleiðin mun ligga y r grynningar í mynni þessara fjarða og y r á Melanes. Mynd / HKr.