Bændablaðið - 17.01.2019, Side 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201922
Jónas Á. Ágústsson hefur staðið vaktina við sölu á rafeindavogum og öðrum búnaði allar götur frá því brautryðjendur á heimsvísu hófu þróun á slíkum búnaði á Ísa rði á áttunda áratug síðustu
aldar. Hann stofnaði ELTAK ásamt eirum árið 1991 til þess m.a. að sjá um sölu á óls rafeindavogum. Mynd / HKr.
Eltak ehf. rekur sögu sína til upphafs rafeindavoganna á Íslandi:
Vigta allt frá títuprjónum til trukka
– Vaxandi viðskipti við bændur sem leggja áherslu á heimavinnslu á sínum afurðum
Jónas Á. Ágústsson hjá ELTAK
ehf. hefur kynnt undur rafeinda-
voganna allt frá þeirri miklu
byltingu sem varð í kjölfar þess
að Örn Ingólfsson, rafmagns-
tæknifræðingur á Ísafirði, hannaði
fyrstu íslensku rafeindavogina á
8. áratug síðustu aldar.
„Við erum með vogir fyrir
allt sem þarf að vigta á Íslandi,
hvort sem það eru títuprjónar,
trukkar eða heybaggar. Á
landbúnaðarsýningunni í
Laugardalshöllinni vorum við t.d.
að sýna vogir sem henta vel fyrir
grænmetisframleiðslu og pökkun.
Við eigum mikil viðskipti við
grænmetisbændur og síðan eru
vaxandi viðskipti við þá sem selja
undir slagorðunum „Beint frá býli“.
Nú eru fjölmargir bændur farnir að
selja sínar vörur beint til neytenda
og þá er mikilvægt að vera með
nákvæma vigtun. Við bjóðum þar
löggildar vogir sem geta sýnt verð
á hvert kíló. Þarna sjáum við mikinn
vöxt hjá bændum sem eru að selja
sínar afurðir til ferðamanna og
annarra sem koma beint heim á bæ.
Við bjóðum þar upp á mjög góða
kosti. Síðan þarf að vigta heybagga
og ýmislegt annað sem tilheyrir
landbúnaði,“ segir Jónas.
Hann segir að ELTAK sé
líka mjög öflugt þegar kemur
að tækjabúnaði fyrir kjöt- og
fiskvinnslur þar sem fyrirtækið
er með áratuga reynslu. Sérhæfir
ELTAK sig nú í sölu og þjónustu
á rafeindavogum og öðrum búnaði
til vigtunar, stýringar, skömmtunar,
vörufrágangs og pökkunar.
Uppruninn rakinn til Ísafjarðar
„Uppruni okkar er fyrir vestan.
Hugmyndasmiðurinn Örn Ingólfsson
starfaði að þróun rafeindavoga innan
veggja Pólsins hf. eftir að hann
lauk námi í rafmagnstæknifræði
í Árósum í Danmörku árið 1977.
Hannaði hann í kjölfarið fyrstu
íslensku rafeindavogina og síðan
tók boltinn að rúlla með innleiðingu
á tölvuvogabyltingunni fyrir
fiskvinnslu og útgerðir. Framleiðsla
á hinum þekktu Póls vogum hófst
svo árið 1978. Pólstækni var síðan
stofnað utan um þessa starfsemi á
Ísafirði árið 1986.
Ég tók þátt í þeirri byltingu frá
byrjun og vogirnar frá Pólstækni
vöktu heimsathygli. Fyrirtækið varð
svo gjaldþrota og nýtt fyrirtæki, Póls
rafeindavörur, tók við hlutverkinu
1991. Þá stofnaði ég mitt fyrirtæki,
Eltak, til að annast sölu á þeirra
vörum á Íslandi. Í framhaldinu
hófum við að flytja inn rafeindavogir
og erum nú orðnir mjög stórir á því
sviði og höfum á boðstólum vogir
fyrir allt mögulegt.“
Velvilji fiskvinnslufyrirtækja á
Ísafirði skipti sköpum við þróun
rafeindavoga
Jónas segir að margt hafi spilað inn
í til að gera þessa tæknibyltingu
mögulega á Ísafirði. Þar hafi ekki síst
verið um að ræða endalausan velvilja
stjórnenda fiskvinnslufyrirtækja á
svæðinu, einkum Hraðfrystihúss
Norðurtangans og Íshúsfélags
Ísfirðinga sem voru á þeim tíma
fullkomnustu frystihús landsins. Þar
fengu frumkvöðlarnir í tölvuvogum
og margvíslegum öðrum búnaði að
prófa sig áfram og þróa sínar vörur
við raunaðstæður á vinnustað.
Fyrsta rafeindavogin var einmitt sett
upp í Norðurtanganum á Ísafirði,
sem innvigtunarvog fyrir afla. Var
það eins konar karavigt
Sú ákvörðun sem Jón Baldvin
Hannibalsson beitti sér fyrir sem
ráðherra, að grænlenskum togurum
yrði um tíma eingöngu heimilt að
landa afla sínum á Ísafirði, hafði
einnig gríðarlega mikið að segja
fyrir smíði skipavoga á Ísafirði og
þróunarvinnu á vörum frá Pólstækni.
Voru allir grænlensku togararnir á
skömmum tíma komnir með Póls
skipavogir um borð.
Þess má geta að Póls vogirnar
sem voru í árdaga þessarar byltingar
seldar um allan heim eru margar
hverjar enn í notkun á markaðnum.
Marel eignaðist 76% hlut í
fyrirtækinu 2004 og síðan fyrirtækið
að fullu, en frumkvöðlarnir seldu
sinn hlut. Framleiðslu voganna var
svo hætt á Ísafirði 2007, en fjöldi
þeirra er enn í notkun. Marel hélt
samt áfram framleiðslu á vörum
Póls og er sumt af þeirri hönnun
t.d. í samvalsvélum og öðru
enn grunnurinn að fjölmörgum
framleiðsluvörum Marels. Marel
er nú orðið að risa á alþjóðlegum
markaði og hefur eignast fjölda
annarra fyrirtækja í framleiðslu
voga og tækja fyrir matvælageirann,
eins og Scanvægt í Danmörku 2006
og Stork Food Systems í Hollandi
árið 2007.
Ný vog í Bolungarvík
tekur 60 tonn
Þess má geta að Eltak setti m.a.
upp nýja hafnarvog í Bolungarvík
í nóvember til að vigta fulllestaða
trukka. Sú vog er 18 metra löng og
tekur allt að 60 tonn. Hún ætti því
að þola það sæmilega þó einhverjum
dytti í hug að stíga á vigtina eftir allt
átið um jólin.
„Við erum því enn með mikla
tengingu vestur á firði og seljum
reyndar mikið út um allt land. Enda
teljum við okkur vera sérfræðinga í
öllu er varðar vigtun hvort sem um
er að ræða lítið eða mikið.“
Mikill vöxtur í þjónustu
við bændur
– Þú nefndir landbúnaðinn,
sérðu mikil tækifæri á því sviði í
framtíðinni?
„Já, það er engin spurning.
Við sjáum mikinn vöxt í þjónustu
við íslenska bændur. Enda hafa
neytendur mjög verið að kalla
eftir því að geta verslað beint við
bændur. Þar hefur regluverkið
svolítið verið að þvælast fyrir
mönnum og nokkur umræða hefur
verið um það á síðustu misserum
hvernig hægt sé að létta á því kerfi.
Þannig að þeir bændur sem vilja
geti nýtt sér tækifæri á þessu sviði
til að auka sínar tekjur og ná meira
til sín af virðisaukanum í greininni.
Maður sér þetta vera að gerast
víða um heim. Fólk vill komast
nær frumframleiðendum þeirra
matvæla sem það borðar,“ segir
Jónas.
ELTAK var með kynningarbás
á sýningunni Íslenskur land-
búnaður 2018 sem fram fór í
Laugardalshöllinni í október. Jónas
segir að það hafi verið gott framtak.
Fimmtíu ár á milli slíkra sýninga
í Reykjavík væri samt of mikið,
en sitt mat eftir mikla reynslu á
þessu sviði væri að svona sýningu
mætti vel setja upp á fimm til sex
ára millibili. Þau tíðindi spurðust
reyndar út nú fyrir árslok að
sýningarhaldarar hafi ákveðið að
halda næstu landbúnaðarsýningu
í Reykjavík á árinu 2021. /HKr.
Rafmagnstæknifræðingurinn Örn
Ingólfsson var mikill frumkvöðull
í hönnun og smíði rafeindavoga
á Íslandi. Einnig var hann Í hópi
braut ryðjenda á heimsvísu í hönnun
rafeindavoga sem nothæfar voru
um borð í skiskipum í veltingi úti
á rúmsjó.
Velvilji stjórnenda hjá Íshúsfélagi
Ís rðinga og Hraðfrystihúss orður-
tangans á Ísa rði ásamt stjórnendum
annarra skvinnsluhúsa á Vest-
fjörðum skipti sköpum í upp-
byggingu og þróun fyrirtækja sem
nýttu tölvutæknina í hönnun búnaðar
fyrir matvælaiðnaðinn.
Jónas segir mikinn vöxt í þjónustu
við íslenska bændur.
LÍF&STARF