Bændablaðið - 17.01.2019, Qupperneq 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201924
Möguleikar í uppsetningu lítilla
vatnsaflsvirkjana eru miklir
víða um land. Margvísleg tækni
hefur komið fram á sjónarsviðið
á liðnum árum sem gerir mönnum
kleift að framleiða raforku jafnvel
án stíflugerðar og með því að
nýta hægrennsli lækjarfarvega.
Í desember 2016 kynnti
Orkustofnun fyrir atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneyti hugmynd
að smávirkjanaverkefni sem
hefði það að markmiði að stuðla
að aukinni raforkuframleiðslu á
landsbyggðinni.
Hugmynd að verkefninu er til
komin vegna alvarlegrar stöðu í
raforkuöryggismálum landsins.
Fáir álitlegir virkjunarkostir eru í
nýtingarflokki í þeirri tillögu sem
lögð hefur verið fram á Alþingi, auk
þess sem erfiðlega gengur að gera
endurbætur á flutningskerfi raforku.
Kerfið eins og það er í dag getur ekki
staðið undir frekari uppbyggingu á
atvinnustarfsemi út um land.
Það er mat Orkustofnunar
að nauðsynlegt sé að horfa til
staðbundinna lausna og kanna hvaða
smærri virkjunarkostir í vatnsafli eru
í boði. Hugmyndinni var vel tekið
og fékkst fjármagn til verkefnisins
í ársbyrjun 2018. Smærri virkjanir
geta orðið lyftistöng fyrir bæði
bændur og aðra atvinnustarfsemi
víða um land, auk þess sem þær
geta stuðlað að auknu orkuöryggi
í landinu.
Smávirkjanaverkefni Orku-
stofnunar hefur það að markmiði að
stuðla að aukinni raforkuframleiðslu
sem víðast á landsbyggðinni og er
verkefnið fjórþætt.
1. Safnað er saman gagnlegum
upplýsingum og þeim miðlað
áfram.
2. Boðið er upp á að stilla
upp frumhugmynd að
vatnsaflsvirkjun.
3. Veittir eru styrkir til
meistaraprófsverkefna á sviði
smávirkjana.
4. Haldnir eru fundir og kynningar
úti um land.
Fjölmargir smávirkjanakostir á
Norðurlandi vestra
Síðla hausts 2017 ákváðu Samtök
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra að
láta vinna úttekt á smávirkjanakostum
á Norðurlandi vestra, óháð áformum
landeigenda. Var verkfræðistofan
Mannvit fengin til verksins.
Úttektin náði til virkjunarkosta
innan sveitarfélaganna Akrahrepps,
Sveitarfélagsins Skagafjarðar,
Skagabyggðar, Sveitarfélagsins
Skagastrandar, Blönduósbæjar,
Húnavatnshrepps og Húnaþings
vestra.
Tilgangurinn var að gera grófa
könnun á hvaða möguleikar væru á
smávirkjunum af ýmsum stærðum,
ekki síst virkjunum sem gætu
selt rafmagn inn á dreifikerfið og
stuðlað að atvinnuuppbyggingu í
sveitarfélögunum.
Í úttekt Mannvits kemur fram
að virkjanir hafa verið starfræktar
um langt skeið á Norðurlandi
vestra, en fyrsta virkjunin sem
skýrsluhöfundum er kunnugt um er
Laxárvatnsvirkjun sem byggð var
1933. Í dag eru nokkrar virkjanir
í rekstri í landshlutanum og ber
þar helst að nefna Blönduvirkjun
(180.000 kW), Skeiðsfossvirkjun
(4.800 kW), Gönguskarðsárvirkjun
(1.750 kW) og Sleitustaðavirkjun
(218 kW). Þetta er ekki tæmandi listi
og eru eflaust bæði minni og stærri
virkjanir í rekstri á Norðurlandi
vestra, sem skýrsluhöfunum var
ekki kunnugt um.
Nokkrir virkjunarkostir eru
til umfjöllunar í rammaáætlun
en í þessari skýrslu verður ekki
fjallað um þá né aðra fyrirhugaða
virkjunarkosti, sem ekki falla undir
rammaáætlun.
Mannvit skoðaði virkjunarkosti
í vel flestum af stærri vatnsföllum
sveitarfélaganna. Ekki var hægt að
skoða öll vatnsföll, né heldur hægt
að skoða margar útfærslur í hverju
vatnsfalli.
Bent er á í skýrslunni að hvert
og eitt vatnsfall má virkja á marga
mismunandi vegu.
Mikilvægast sé þó að sem
víðtækust sátt ríki um þá
virkjunarkosti sem skoðaðir verða
nánar.
82 virkjanakostir með 49.601
kílówatti í uppsettu afli
Þó úttektin sé ekki tæmandi er
bent á 82 virkjanakosti á svæðinu
sem gætu verið samtals í uppsettu
afli 49.601 kílówatt. Þær gætu
mögulega skilað orkuframleiðslu
upp á 361.330 megawattstundir.
Orkuframleiðslan miðast við tvöfalt
lágmarksrennsli í viðkomandi
vatnsföllum en gæti þó mögulega
verið meiri. Það mun þó væntanlega
ráðast af frekari rannsóknum.
Margir virkjunarkostir sem fjallað er
um í þessari skýrslu eru hagkvæmir
og væri áhugavert að skoða þá betur
að mati skýrsluhöfunda.
Getur tekið 4–8 ár að reisa
litla smávirkjun
Gera má ráð fyrir að það taki á
bilinu 4–8 ár frá því fyrstu skref eru
stigin í undirbúningsvinnu að lítilli
smávirkjun þar til hún geti verið
komin í gagnið. Stærri smávirkjun
tæki lengri tíma.
Fyrsta skref:
Æskilegt væri að fara í
vettvangsferð á virkjunarsvæðið,
skoða það m.t.t. staðsetningar
mannvirkja og kanna hug
landeigenda til virkjunaráforma.
Þá væri æskilegt að hefja
rennslismælingar en þær þurfa
almennt að standa í að lágmarki
tvö ár áður en frekari ákvarðanir
eru teknar, þrjú ár ef vel á að
vera.
Annað skref:
Virkjunin yrði frumhönnuð
og stofnkostnaður áætlaður
og einnig tengikostnaður
við raforkukerfið. Gerð yrði
hagkvæmnigreining. Hér
væri einnig eðlilegt að gera
matsskyldufyrirspurn. Þessi
vinna þarf að byggja á nákvæmari
gögnum um t.d. vatnsrennsli og
almenna staðhætti.
Þriðja skref:
Virkjunin yrði útboðs- eða
fullnaðarhönnuð en það fer eftir
stærð virkjunar og virkjunaraðila
hvor leiðin er valin. Hér þyrfti
einnig að huga að aðal- og
deiliskipulagsbreytingum og
í framhaldi af því er sótt um
virkjunar- og framkvæmdaleyfi.
Fjórða skref:
Virkjun byggð og sett í rekstur.
Tengingar við orkukerfið
Á Norðurlandi vestra sjá þrír aðilar
um rekstur raforkukerfisins en það
eru Landsnet, Orkubú Vestfjarða
(OV) og Rarik. Tenging virkjana
við raforkukerfið getur bæði verið
um nærliggjandi dreifikerfi eða í
aðveitustöð/tengivirki en það fer
eftir stærð virkjana og flutningsgetu
nærliggjandi dreifikerfis. Gera má
ráð fyrir því, að virkjanir með
uppsett afl meira en 2.500 kW
þurfi í öllum tilfellum að tengjast
við aðveitustöð/tengivirki.
Á Norðurlandi vestra eru
átta aðveitustöðvar/tengivirki
og er spennustig mismunandi í
aðveitustöð eða tengivirki.
Tengikostnaður virkjana getur
verið mjög mismunandi, eða
allt frá því að vera lítið brot af
stofnkostnaði yfir í margfaldan
stofnkostnað virkjana. Ávinningur
rekstraraðila raforkukerfis af
tengingu virkjunar inn á dreifikerfið
getur í sumum tilfellum verið það
mikill að enginn tengikostnaður
fellur á virkjunaraðila. Tengikostnað
virkjana við raforkukerfið þarf að
skoða í hverju tilviki fyrir sig og
er hann því ekki áætlaður í þessari
skýrslu Mannvits. /HKr.
ORKUMÁL
Verkfræðistofan Mannvit telur mögulegt að setja upp fjölda smávirkjana á Norðurlandi vestra:
Í það minnsta 82 virkjanakostir með
49.601 kílówatti í uppsettu afli
Yfirlitsmynd yfir smávirkjanakosti og vatnasvið á Norðurlandi vestra. Mynd / Mannvit
Grafargil og Álftaskálará (Álka). Meðal virkjanakosta á Norðurlandi vestra sem nefndir eru í skýrslu Mannvits er
Álftaskálará-efri sem rennur í Vatnsdalsá. Mynd / HKr.