Bændablaðið - 17.01.2019, Page 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201940
LESENDABÁS
Að stinga höfðinu í sandinn
Í 6. tbl. Mjólkurpóstsins, frétta-
bréfs Auðhumlu, KS og MS,
sem út kom í desember sl., er
umfjöllun um fulltrúaráðsfund
Auðhumlu sem haldinn var
23. nóvember sl. Þar fara
stjórnarformenn Auðhumlu og
MS yfir helstu atriði á fundinum.
Í pistlinum er lýst nokkrum
áhyggjum af fjárhagsstöðu
mjólkuriðnaðarins og nauðsyn
þess að grípa í taumana „af festu
og ábyrgð, rétta af rekstur MS,
bæta lausafjárstöðuna og greiða
niður skuldir“.
Nokkrar ástæður fyrir þungri
fjárhagsstöðu eru taldar upp; pólitísk
herkví heildsöluverðlagningar,
umframmjólk, ójafnvægi í sölu
fitu og próteins (efnahalli) og mikil
uppsöfnuð fjárfestingaþörf.
Vandanum slegið á frest
Allir þessir þættir sem að framan
eru taldir og þyngt hafa reksturinn,
hafa blasað við um all langt skeið.
Þó hefur aðeins verið tekið á einum
þeirra, en innvigtunargjald af mjólk
umfram greiðslumark hefur nú verið
innheimt í hálft þriðja ár, frá 1. júlí
2016. Í grein sem undirritaðir birtu í
Bændablaðinu í byrjun desember sl.
var því spáð að vandanum varðandi
efnahallann yrði enn slegið á frest,
þrátt fyrir að samanlagður kostnaður
iðnaðarins vegna hans mælist nú
í milljörðum króna. Við ákvörðun
greiðslumarks fyrir árið 2019
upp á 145 milljónir lítra, óbreytt
frá fyrra ári, er sú spá staðfest og
munu því bætast 7-900 milljónir
kr við kostnað vegna efnahalla á
þessu ári. Í raun er því verið að
greiða greiðslumarkshöfum sem
þessu nemur umfram það sem
markaðurinn skilar, á sama tíma og
greiðslur fyrir umframmjólk eru
skornar niður við trog. Að okkar
mati er mikið ábyrgðarleysi að
ráðast ekki að rót þessa vanda nú
þegar, enda eins og formennirnir
segja sjálfir „ekki hægt að senda
neytendum reikninginn fyrir hverju
sem er“.
Að bregðast við samkeppni
Á fundum haustsins kom fram í
máli stjórnarformanns Auðhumlu
að SAM hefði sett saman nokkrar
tillögur að því hvernig mætti taka
á efnahallanum. Efnahallinn hefur
lengi verið ræddur á vettvangi
SAM og í tillögu samtakanna til
Matvælastofnunar að greiðslumarki
fyrir árið 2018, sem gerð var í
desember 2017, var þessi vandi
gerður að umtalsefni. Þar er
rifjað upp, að áður en farið var að
ákvarða greiðslumark miðað við
sölu á þeim efnaþætti sem meira
selst af, var miðað við sölu á bæði
fitu- og próteinhluta og notuð sömu
hlutföll og vægi efnaþáttanna í
lágmarksverði til bænda. Miðað
við þá formúlu, hefði greiðslumark
2019 verið um 138 milljónir lítra.
Miðað við stöðu iðnaðarins og
þær áskoranir sem framundan eru
í rekstri hans væri eðlilegast að
færa greiðslumarkið niður í þann
efnaþátt sem minna selst af, eða um
131 milljón lítra. Með því móti væri
jafnframt skapað nokkurt svigrúm til
að bregðast við vaxandi samkeppni
á íslenskum mjólkurvörumarkaði.
En vera má að það þyki helst
til róttækar hugmyndir í hugum
forustumanna mjólkuriðnaðarins.
Sótt í gullkistu
Samkeppniseftirlitsins
Í pistli formannanna segir síðan
um verðlagningu „Svokölluð
tekjumarkaleið var líka rædd við
gerð síðustu búvörusamninga
og drög að henni unnin. Það er
hins vegar ljóst að í þeirri leið
eru margir þættir óleystir og
óljósir.“ Nauðsynlegt er að árétta
að tekjumarkaleiðin, sem sækir
fyrirmynd sína í raforku- og
fjarskiptageirann var ekki aðeins
rædd í aðdraganda núgildandi
samnings um starfsskilyrði
nautgriparæktar, heldur er kveðið
á um, í grein 12.3 í samningnum, að
hún skuli tekin upp. Samningsaðilar
hafa því skuldbundið sig til þess
og hafa haft tæp þrjú ár til að
ljúka frágangi og innleiðingu
þeirrar leiðar. Í pistlinum er
síðan vísað til neikvæðrar
umsagnar Samkeppniseftirlitsins
um tekjumarkaleiðina í áliti
nr 10/2016 vegna breytinga
á búvörulögum. Í ljósi alls
þess, sem Samkeppniseftirlitið
hefur haft að segja um
lagaumgjörð landbúnaðarins og
mjólkurframleiðslunnar alveg
sérstaklega, er þessi röksemd
formannanna næsta kostuleg.
Ef farið er inn á heimasíðu
Samkeppnis eftirlitsins, www.sam-
keppni.is og orðið „mjólkuriðnaður“
er slegið í leitarglugga síðunnar,
koma upp tugir skjala; ákvarðanir,
álit, skýrslur og fréttir. Ná þær meira
en tvo áratugi aftur í tímann, eða allt
frá þeim tíma að Samkeppnisstofnun
(forveri Samkeppniseftirlitsins) tók
við af Verðlagsstofnun fyrir rúmum
aldarfjórðungi. Óhætt er að segja
að umsagnir samkeppnisyfirvalda
um núverandi verðlagningarkerfi
mjólkurafurða hafa allan þennan
tíma verið afar neikvæðar.
Í áliti samkeppnisráðs nr.
2/2002 vegna erindis Samtaka
verslurnar og þjónustu vegna
verðlagningar verðlagsnefndar
búvara á mjólkurvörum í
heildsölu, er fjallað um viðauka
við samning um starfsskilyrði
mjólkurframleiðslunnar frá 17.
desember 1997 sem fjármálaráðherra
og landbúnaðarráðherra undirrituðu
í október 2001. Var niðurstaðan
svohljóðandi:
• Með vísan til d-liðar
2. mgr. 5. gr. og 19. gr.
samkeppnislaga beinir
samkeppnisráð þeim tilmælum
til landbúnaðarráðherra að
hann beiti sér fyrir því að
heildsöluverðlagning á búvöru
verði gefin frjáls svo fljótt sem
auðið er og eigi síðar en 30.
júní 2004.
• Þá beiti ráðuneytið sér fyrir
því að verðlagsnefnd búvara
heimili ekki samninga um
verðtilfærslu, skv. 3. mgr. 13.
gr. og 22. gr. búvörulaga, þegar
heildsöluverðlagning á mjólk
verður frjáls.
• Auk þess er óskað eftir að
ráðuneytið beiti heimildum
sínum samkvæmt 71. gr.
búvörulaga til að tryggja eftir
föngum að samningar um
verkaskiptingu skv. ákvæðinu
raski ekki samkeppni og vinni
þar með gegn markmiðum þess
að gefa heildsöluverðlagningu
á mjólk frjálsa. Í því sambandi
verði reynt að vinna gegn
samráði afurðastöðva um
framleiðslu og sölu og aðra
lykilþætti í samkeppni.
Sá viðauki sem hér um ræðir frestaði
ákvæðum gildandi samnings um að
Verðlagsnefnd hætti verðlagningu
á heildsölustigi. Síðar var að
fullu fallið frá þessu ákvæði með
nýjum samningi um starfsskilyrði
mjólkurframleiðslu sem tók gildi
þann 1. september 2005. Hvað
sem því líður, hefur þessi niðurstað
Samkeppnisráðs verið marg ítrekuð
á þeim sautján árum sem liðin eru
frá því hún var sett fram. Þá hafa
samkeppnisyfirvöld ítrekað oftar
en tölu verður á komið, þá skoðun
sína að 71. grein búvörulaga sem
íslenskur mjólkuriðnaður byggir
tilveru sína á, skuli felld úr gildi.
Enn er höggvið í sama knérunn í
fyrrgreindri umsögn nr 10/2016
sem formennirnir vísa af svo
mikilli virðingu til, en þar segir
m.a. „Samkeppniseftirlitið hefur
ítrekað bent á að í lagabreytingunni
frá 2004 fólst að afurðastöðvum í
mjólkuriðnaði var veittur miklu
mun víðtækari undanþága frá
samkeppnislögum heldur en gildir
annar staðar á Norðurlöndum og í
öðrum ESB ríkjum. Í fyrirliggjandi
frumvarpi er ekki farið að ítrekuðum
tilmælum Samkeppniseftirlitsins um
að fella framangreindar undanþágur
frá samkeppnislögum úr gildi“. Má
búast við því að formannatvennan
muni í framtíðinni sækja enn
frekar stefnu sína og rökstuðning
í gullkistu Samkeppniseftirlitsins?
Höfðinu stungið í sandinn
Í pistli formannanna segir
ennfremur „Á sama tíma hefur
verið mikil fjárfestingarþörf
við endurnýjun á vinnslu- og
stoðbúnaði afurðastöðvanna. Hluti
af þessu tengist gæðavottunum sem
nauðsynlegar eru til að uppfylla
kröfur viðskiptavina, en ef við
getum það ekki er okkur vandi
á höndum“. Ekki er ágreiningur
um nauðsyn þeirra fjárfestinga
sem í hefur verið ráðist. En
verulegt áhygguefni er ef allri
frekari knýjandi endurnýjunarþörf
verður slegið á frest, svo sem á 35
gamalli duftvinnslu, þeirri einu á
landinu, sem gegnir lykilhlutverki
í birgðastýringu fyrirtækisins
og vinnur úr nálega 12% allrar
innveginnar mjólkur.
Eftir því sem skilja má af
orðum formannanna, þá verður
ekki af þessum, né öðrum brýnum
viðhaldsverkefnum fyrr en fjárhag
fyrirtækisins hefur verið komið
til betra horfs. Þó er ekki að sjá
neinar afgerandi hugmyndir í
því efni, en þess í stað taldir upp
ótalmargir annmarka á núverandi
rekstrarumhverfi, þar sem ber
á góma orð eins og pólitísk
herkví verðlagsnefndar, milljarða
skuldaaukning og forsendubrestur
tollasamnings. Eina haldreipið
virðist vera að setja Verðlagsnefnd
„skýrar verklagsreglur“, þó vandséð
sé hvernig þær geti bætt stöðuna
umfram þann lagabókstaf sem um
nefndina gildir í dag. Þekkt er að
ekki þarf alltaf langan tíma til að
breyta pólitískri stöðu landsmála og
því ekki útilokað að verðlagsnefnd
búvara verði tekin að nýju í
einhverskonar „herkví“.
Vissulega er gott að forystumenn
mjólkuriðnaðarins skuli vera farnir
að átta sig á ýmsum þeim margræðu
ógnunum sem að greininni snúa
þessi misserin. Verra er þó, að svo
virðist sem einu lausnir þeirra séu
að stinga höfðinu í sandinn og sjá
hvort málin leysist ekki af sjálfu
sér. Hversu lengi getur slíkt ástand
varað?
Baldur Helgi Benjamínsson
Jóhann Nikulásson
Sigurður Loftsson
Baldur Helgi Benjamínsson. Sigurður Loftsson. Jóhann Nikulásson
Netnámskeið um sauðfjárbeit kennt í Háskóla Íslands
Nýtt netnámskeið um sauðfjárbeit
er nú í boði á háskólastigi í
Háskóla Íslands. Námskeiðið
var kynnt og formlega opnað
fyrir skráningu í það 11. janúar
síðastliðinn í húsakynnum Öskju,
náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.
Námskeiðið heitir Sauðfé í landi
elds og ísa (e. Sheep in the Land of
Fire and Ice) og er svo kallað MOOC-
námskeið (Massive Open Online
Course) og er opið nemendum alls
staðar að úr heiminum.
Það eru Háskóli Íslands,
Landbúnaðarháskóli Íslands,
Landgræðslan og Landgræðsluskóli
Háskóla Sameinuðu þjóðanna sem
standa saman að námskeiðshaldinu.
Í tilkynningu frá Háskóla Íslands
kemur fram að námskeiðið sé kennt
á ensku og opið öllum sem hafa
áhuga á sauðfé og sauðfjárbeit á
Íslandi, vistkerfum á norðurslóðum
og umhverfisvernd og sjálfbærri
nýtingu auðlinda. Hægt er að byrja
á námskeiðinu hvenær sem er og
nemendur geta tekið það á sínum
hraða.
„Námskeiðinu er skipt í fimm
hluta þar sem nemendur fræðast
um sauðfjárbeit á Íslandi í fortíð,
nútíð og framtíð – og þýðingu
hennar í sögulegu, menningarlegu
og efnahagslegu samhengi.
Sauðfjárbeit á Íslandi hefur haft
áhrif á samfélag og umhverfi allt
frá landnámi. Deilt hefur verið
um hversu sjálfbær sauðfjárbeitin
hefur verið og hversu mikil áhrif
hún hefur haft á jarðvegsrof og
vistkerfi í landinu en á námskeiðinu
er sérstakleg fjallað um þau
vistfræðilegu lögmál sem liggja að
baki misþungri beit og rannsóknir á
flóknu samspili beitar og sjálfbærni
lands.
Kennarar í námskeiðinu eru
helstu sérfræðingar landsins
í þessum efnum og koma
m.a. úr Háskóla Íslands,
Landbúnaðarháskóla Íslands, frá
Landgræðslu ríkisins, umhverfis-
og auðlindaráðuneytinu og úr hópi
bænda. Auk þeirra koma fræðimenn
frá Simon Fraser University í
Kanada að námskeiðinu,“ segir í
tilkynningunni.
Hægt er að skrá sig í gegnum vef
námskeiðsins, sheepfireice.org.
/smh