Bændablaðið - 17.01.2019, Qupperneq 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201950
LESENDABÁS
Endurheimt votlendis – hluti af lausn
Með loftlagssamningi Sameinuðu
þjóðanna sem samþykktur var
árið 2015 undirgekkst Ísland
þær skyldur að minnka losun
gróðurhúsaloftegunda (GHL)
um 40% fram til ársins 2030.
Markmiðið er að halda hlýnun
loftslags innan við 2°C en helst að
hún verði ekki meiri en 1,5°C með
því að draga úr losun eða binda
gróðurhúsalofttegundir.
Loftslagsbókhaldið og markmiðin
Til þess að ná markmiðunum þarf
að hraða orkuskiptum í samgöngum,
minnka losun á GHL frá landbúnaði,
iðnaði og meðhöndlun úrgangs og
er sú losun sem þarf að vinna á um
4,7 milljónir tonna af CO2 ígíldum
á ári. Þetta eru atvinnugreinar sem
falla undir loftslagsbókhald Íslands
og er stefnt að 40% samdrætti.
Þetta hugtak – CO2 ígildi – er
samheiti fyrir gróðurhúsalofttegundir
s.s. CO2, metan og hláturgas. Þegar
rætt er um CO2 ígildi þá er átt við
samheiti gróðurhúsalofttegunda.
Losun gróðurhúsalofttegunda úr
framræstu votlendi
Þessu til viðbótar losar framræst
votlendi um tvöfalt meira af GHL en
greinarnar innan loftslagsbókhaldsins,
eða rúmlega 10 milljónir tonna af CO2
ígildum árlega. Samtals er því losun
Íslands tæplega 15 m. tonna á ári. Það
er því verk að vinna.
Þó svo að losun vegna framræsts
lands teljist ekki í loftslagsbókhaldi
Íslands kemur það okkur öllum
til góða að minnka hana. Árið
2011 fengu íslensk stjórnvöld því
framgengt á alþjóðavettvangi að
niðurstöður slíkra aðgerða væri hægt
að skrá. Það er jákvætt því áhrifin
eru þau sömu, að minnka losun GHL
og áhrif þeirra á loftslagið.
Vísindamenn á Íslandi hafa staðfest
að framræst land losar að meðaltali
um 24 tonn af GHL á hvern hektara
á hverju ári sem er í samræmi við
niðurstöður erlendra vísindamanna.
Við endurheimt votlendis er hægt að
minnka losun gróðurhúsalofttegunda
um 20 tonn á hvern hektara. Það er
verulegur ávinningur.
Samkvæmt upplýsingum sem
unnið er eftir hér á landi er talið að
um 4.600 hektarar séu framræstir og
af þeim eru 3.600 ha ekki notaðir til
landnytja. Af nógu er því að taka.
Þegar vatnsstaða hækkar hægir á
losun og yfirleitt tekur það nokkrar
vikur eða mesta lagi nokkra mánuði
til að ná ætluðum árangri.
Lausnirnar
Lausnir sem hafa það sameiginlegt
að minnka GHL í andrúmsloftinu
eru nokkrar s.s. skógrækt, landbætur,
landgræðsla og endurheimt votlendis.
Saman mynda þessar lausnir von til
að ná settum markmiðum. Það er
mikilvægt að halda lausnunum á
lofti svo fyrirtæki, sveitarfélög sem
og einstaklingar hafi val.
Votlendissjóðurinn
Votlendissjóðurinn hefur það
markmið að leitast við að færa
land í átt til fyrra horfs og skapa
lífsskilyrði fyrir gróður og dýralíf
sem áður ríkti. Hlutverk sjóðsins
er að leiða saman landeigendur,
fyrirtæki, félagasamtök, einstaklinga
og sveitarfélög sem vilja leggja
þessum markmiðum lið og minnka
losun GHL með því að endurheimta
framræst votlendi.
Landeigendur eru fjölmennastir
meðal bænda og eru því í
lykilstöðu. Með því að vinna með
Votlendissjóðnum er hægt að minnka
verulega losun GHL. Mikilvægt er
að ekki er ætlunin að vinna á ræktuðu
landi sem bændur nota heldur þeim
hluta sem er ónotaður en það er um
85% af framræstu votlendi.
Samfélagsleg ábyrgð okkar
Til þess að ná markmiðum Íslands
í loftslagsmálum eru margar
leiðir færar. Við þurfum öll að
leggja lóð okkar á vogarskálarnar
með því m.a. að taka þátt í
orkuskiptum í samgöngum og nota
almenningssamgöngur. Við getum
endurskoðað innkaupavenjur, sóun
matvæla, aukið endurvinnslu sorps,
kolefnisjafnað ferðalög eða dregið úr
þeim svo eitthvað sé nefnt.
Aðalatriðið er að hafa skýran
fókus á markmiðinu – að draga
úr hlýnun loftslags með öllum
tiltækum ráðum fyrir árið 2030. Það
er samfélagslegt verkefni okkar að
stuðla að því. Ekki bara fyrir okkur
sjálf heldur einnig fyrir börn okkar
og barnabörn.
Verkefnið virðist óyfirstíganlegt
en það besta er að það er gerlegt!
Bjarni Jónsson
framkvæmdastjóri
Votlendissjóðsins
Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri
Vot lendis sjóðs.
Mokað ofan í skurði.
Framræst land.
„Er eitthvað óeðlilegt að lambið kosti meira en verksmiðjukjöt?“
Í mörg ár hefur ódýrt innflutt
verksmiðjukjöt og niður greidd-
ar landbúnaðarafurðir verið ein
helsta röksemd þeirra, sem vilja
þjóðina í fjötur ESB. Allir fram-
leiðendur landbúnað ar afurða
hafa fengið að heyra, hvað þeirra
framleiðsla sé mikið dýrari en í
útlöndum.
Merkilegt að hagfræðingar
HÍ láti þá í friði sem selja vatn á
flöskum miðað við að vatn í eins
flöskum eimað úr sjó er helmingi
ódýrara á Spáni. Vatnið hér kemur
hreint úr krana án þess að þurfi
eitthvað að heyja, mjólka o.s.frv.
Væru hagfræðingar HÍ sjálfum sér
samkvæmir myndu þeir gera kröfu
um að vatn skuli flutt inn frá ESB.
Sauðfjárbændur lagðir í einelti
Sauðfjárbændur hafa fengið að heyra
að þeir séu baggi á þjóðfélaginu
og nánast lagðir í einelti. Gerður
samanburður á verði lambs og
heybagga til Noregs. Kannski liggur
munurinn í því að heybaggana
framleiða bændurnir sjálfir og selja
milliliðalaust. Lömbin eru aftur á
móti send lifandi í sláturhús. Margar
hendur koma að lambinu, áður en
afurðirnar koma í sölu. Íslenska
lambið er hrein náttúruafurð og
villibráð, eins og rjúpan. Er eitthvað
óeðlilegt að lambið kosti meira en
verksmiðjukjöt?
Við vitum ekkert á hverju
innflutt verksmiðjuframleitt kjöt
hefur verið alið og sprautað í það
fyrir slátrun. Við það bætist hætta
á sýkingum t.d. Svínaflensu, sem
nú breiðist um meginland Evrópu.
Við ættum að læra af biturri
reynslu dýrasjúkdóma. Bólusett
er fyrir garnaveiki, sem ásamt
mæðiveiki barst með Karakúlfé
til landsins 1933. Mæðiveiki var
útrýmt með niðurskurði 1965.
Riðuveikina fengum við til landsins
1878 og enn birtast reglulega fréttir
af niðurskurði fjár vegna riðuveiki.
Hundaæði, gin- og klaufaveiki erum
við enn blessunarlega laus við.
Verðmæt erfðaauðlind, sem
tryggir fæðuöryggi
Á Íslandi eru hreinustu
búfjárstofnarnir, sem eru
verðmæt erfðaauðlind, sem
tryggir fæðuöryggi þjóðarinnar,
þegar öllu er á botninn hvolft.
Merkilegt að nokkur hugsandi
maður vilja taka sénsinn á að
græða á þessum innflutningi með
tilliti til þess að nýlega kom fram
í rannsókn á Keldum, að erfðaefni
mæðiveiki fannst í innfluttum osti
(Bændablaðið 13. desember) og
innflutningur á hráu (ófrystu kjöti)
mun auka hættuna á innflutningi
dýrasjúkdóma og aukinni hættu
á sýklalyfjaónæmi í fólki (Karl
Kristinsson, sýklarannsóknum
Landspítala).
Við verðum að standa vörð
um búfjárstofnana með því að
aðlaga ekki okkar lög og reglur að
ES lögum. Betra væri að taka til
fyrirmyndar, hvernig Kína og Nýja-
Sjáland vernda sitt lífríki:
Fyrir mörgum árum sendi ég
kavíar til prufupökkunar í Kína.
Hann komst ekki inn í landið.
Ég talaði við verslunarfulltrúa í
kínverska sendiráðinu. Hann sagðist
áður hafa unnið í tollinum í Peking
og þekkti það að engin matvæli
kæmust í gegnum tollinn, nema
þeim væri smyglað. Það sannaðist
svo á sl. ári, að ég reyndi að senda
harðfisk til prufupökkunar í Kína.
Fyrir 15 árum seldum við
notaða prentvél til Nýja-Sjálands.
Þá kom upp, að ekki mætti neitt
ósótthreinsað timbur fara inn í
gáminn. Við stífuðum vélina af í
gámnum með gagnvörðu pallaefni,
sem var vottað sótthreinsað.
Hjá okkur aftur á móti hafa
plöntur lengi verið fluttar inn
eftirlitslítið og valdið blómabændum
ómældum skaða. Nú er mikið
flutt inn af pakkaðri gróðurmold
frá ýmsum löndum. Til er nóg af
gróðurmold á Íslandi og gjaldeyri
væri betur varið í ýmislegt annað,
en að flytja inn mold.
Svo virðist sem EES eða ESB lög
séu æðri íslenskum lögum
Krafan um innflutning á hráu
kjöti byggist á EES samningnum.
Svo virðist sem EES eða ESB
lög séu æðri íslenskum lögum
þrátt fyrir 100 ára „fullveldið“.
Þeir félagar léku illilega af sér,
ef viðskiptasamningurinn „ALLT
FYRIR EKKERT“ byggist á að
taka upp lög ESB.
Fáránlegt var að gera
viðskiptasamning á þeirri forsendu
að tekin skuli upp lög þeirra landa,
sem samningurinn var gerður við.
Innflutningur á hráu kjöti er
rökstuddur með því að Íslendingar
snæði kjöt í útlöndum og verði ekki
meint af. Það virðist sterk röksemd,
en er eins og í lottóinu. Þar er
enginn séns á vinning nema að eiga
miða. Á sama hátt er meiri séns að
dýrasjúkdómar berist til landsins
sé hrátt kjöt flutt inn.
Hvaðan kemur innflutta
grænmetið?
Í dag er mest allt innflutt grænmeti
merkt upprunaland Holland.
Hvaðan kemur það til Hollands?
Gæti verið hvaðan sem er en
líklega mest frá Spáni, Tyrklandi
og Afríku.
Neytendur eiga rétt á að
allar matvörur séu uppruna- og
rekjanleikamerktar, eins og
framleiðendur kjöt- og fiskafurða
eru skyldaðir til.
Í sumar keypti ég kjöt á grillið
í kjörbúð. Miði á bakkanum sagði
innihaldið vera KINDAKJÖT og
ekkert meira. Ég velti fyrir mér,
hvort kjötið væri íslenskt eða
innflutt, því ég hafði áður verið
blekktur til að kaupa innflutta
tómata, sem íslenska. Það var
fyrir um 10 árum, er ég kom
heim úr tveggja vikna fríi. Bakki
með tveimur tómötum, sem litu
ljómandi vel út, var í ísskápnum.
Ég fékk mér bita. Hann fór beina
leið í ruslið með millilendingu í
vaskinum. Bakkinn var grænn.
Alveg eins og bakkar SFG voru
á þeim tíma og texti miðans skýr
í stóru letri á íslensku. Þegar betur
var að gáð stóð neðst í smáu letri:
Pakkað fyrir Xxx í Hollandi.
„Þú veist hvaðan það kemur“
SFG hefur í mörg ár byggt upp
markað með slagorðinu: „Þú veist
hvaðan það kemur“. Allar umbúðir
og auglýsingar SFG eru settar upp
með sama stílbragði, þannig að
maður þarf ekki nema rétt sjá þær
eða heyra stefið, þá skynjar heilinn
íslensk gæðaframleiðsla.
Sauðfjárbændur og aðrir
kjötframleiðendur gætu mikið lært
af SFG. Kynnt gæðin með: „Þú
veist hvað það étur og hvaðan það
kemur“ eða „Þú veist hvaðan það
kemur og hvað það étur“ og fylgt
eftir með markaðsherferð líkt og
var sl. sumar.
Sigurður Oddsson
Sigurður Oddsson.