Bændablaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 31
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
Glerárgötu 36 / 600 Akureyri
Sími 415-6415 / hesja.is
Lyngás 13 / 700 Egilsstaðir
Sími 471-2299 / ab.is
Bein innspýting, rafmagnstýri, spil, dráttarkrókur, hátt og lágt drif m/ læsingu,
14 tommu felgur, stillanlegir gasdemparar, 84 hestöfl/7000rpm, traktosskráður.
ZFORCE
1000
2.378.368,- án vsk.
2.949.000,- m vsk.
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is
Hefur þú kynnt þér
Smávirkjanaverkefni
Orkustofnunar?
Smærri virkjanir geta verið lyftistöng fyrir bæði
bændur og fleiri aðila
Þær geta stuðlað að auknu orkuöryggi í landinu
Geta verið svar við orkuskorti víða um land
Geta tryggt vaxtarmöguleika í dreifðari
byggðum landsins
Kynntu þér málið á vef Orkustofnunar:
https://orkustofnun.is/raforka/smavirkjanir/
- Vörubílar
- Rútur
- Vinnuvélar
Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum
í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla.
Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og
eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi.
Sendum um allt land.
www.pgs.is
pgs@pgs.is
s 586 1260
Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík
Alternatorinn eða
startarinn bilaður?
MENNING&LISTIR
BRIM kvikmyndahátíð verður haldin á Eyrarbakka 28. september:
Um plastmengun og áhrif
plasts á okkur og náttúruna
BRIM kvikmyndahátíð verður
haldin á Eyrarbakka laugardaginn
28. september nk. Þar verða
sýndar þrjár kvikmyndir sem
fjalla um plast og afleiðingar þess
á samfélög, náttúruna, hafið og á
okkur sjálf. Stuttir og fróðlegir
fyrirlestrar verða þar einnig sem
fjalla um stöðuna á Íslandi.
BRIM kvikmyndahátíð ætlar
sér að fræða og vekja athygli á
einu stærsta og mest aðkallandi
umhverfisvandamáli samtímans.
Kvikmyndasýningar eru í Óðinshúsi
á Eyrarbakka og eru þær opnar öllum.
Á flesta viðburði er ekki þörf á að
skrá sig fyrirfram, aðeins að mæta og
njóta. Hins vegar þarf að skrá sig á
myndirnar Plastic ocean og myndina
Albatross. Hægt er að gera það á
vefsíðunni brimkvikmyndahatid.is.
Annars er ókeypis á allar sýningar
og viðburði.
„Bag it“
Í myndinni „Bag it“ er
Bandaríkjamaðurinn Jeb Berrier
hinn „venjulegi meðalmaður“ sem
ákveður að skoða hvað verði um
alla plastpokana sem við notum
og spyr sig hvort þeir séu virkilega
nauðsynlegir. Þessar vangaveltur
leiða hann inn í heim plasts og það
„ástarsamband“ sem við eigum við
plast í okkar nútímasamfélagi.
Jeb kemst að því að það er
nánast allt í okkar nútímasamfélagi
gert úr plasti og/eða inniheldur
skaðleg plastefni. Barnavörur,
íþróttavörur, efni í tannlækningum
og hreinlætisvörur, svo eitthvað sé
nefnt. En við getum brugðist við og
það eru leiðir, á þær er einnig bent
í þessari mynd. Þessi mynd er ekki
með íslenskum texta.
Plastic ocean
Kvikmyndin Plastic ocean er
einstaklega áhrifamikil kvikmynd
sem fjallar um hvað gerist þegar
plast fer í hafið. Ferðast er um víða
veröld ofan- og neðansjávar, rætt
við fólk og fremstu vísindamenn
og aðstæður skoðaðar. Skoðað er
hvernig plast brotnar hratt niður í
örplast og afleiðingar þess meðal
annars með tilliti til þess þegar það
fer í fæðukeðjuna og dregur að sér
eiturefni eins og segull. Örplastið
og eiturefnin enda svo á matborði
okkar með ófyrirséðum afleiðingum.
Mögnuð mynd sem óhætt er að
mæla mjög með. Þessi mynd er með
íslenskum texta og nauðsynlegt er að
bóka sig fyrirfram.
Albatross
Myndin Albatross er listræn og
áhrifamikil mynd sem fjallar um
fuglinn Stormfugl / Albatross
á Midway eyju í Kyrrahafinu.
Myndin er eftir listamanninn Chris
Jordan sem fjallar á áhrifamikinn
og sjónrænan hátt um Stormfugl
og þau hörmulegu áhrif sem
plast í hafinu hefur á fuglinn og
lífsskilyrði hans. Þessi mynd er
ekki með íslenskum texta. Myndin
er fyrst og fremst list- og sjónræn
upplifun og ættu flestir að geta
notið myndarinnar óháð skilningi
á ensku. Myndin er sýnd í grænu
stofunni í Húsinu (Byggðasafni
Árnesinga). Takmarkaður fjöldi
kemst á sýninguna og því er
nauðsynlegt að bóka sig fyrirfram
á þessa sýningu. Ekkert kostar
samt á þessa sýningu.
Unga fólkið og plast
Í verkefninu Unga fólkið og plast
mun unglingastig Barnaskólans á
Eyrarbakka og Stokkseyri kynna
verkefni sem þau hafa sérstaklega
unnið fyrir BRIM kvikmyndahátíð.
Verkefnið samanstendur af
stuttmynd og miðlunartengdu efni
um plastmengun sjávar. Verkefnið
er unnið með samþættingu
námsgreina, þ.e. náttúrufræði,
ensku og upplýsingatækni.
Unglingastig Barnaskólans
á Eyrarbakka og Stokkseyri
mun sýna stuttmyndir og annað
miðlunartengt efni er varðar
plastmengun sjávar. Verkefni
nemenda verða unnin með
samþættingu námsgreina,
þ.e. náttúrufræði, ensku og
upplýsingatækni. Verkefni
nemenda eru hluti þeirra kvikmynda
og fræðsluefnis sem sýnt verður
á BRIM kvikmyndahátíð.
Fangelsið á Litla-Hrauni tekur
þátt í verkefninu og verður
kvikmyndasýning fyrir fanga hluti
af hátíðinni. Litla-Hraun er eitt
þeirra „heimila“ sem mun bjóða
almenningi að koma og horfa á
eina af myndum hátíðarinnar. Að
lokinni sýningu á Litla-Hrauni
verður fræðsluerindi en þá mun
einstaklingur frá fangelsinu segja
frá því hvernig fangelsið vinnur
að umhverfismálum.
Lausnamiðuð fræðsla
Fræðsluerindi verða í boði á
hátíðinni og er ekki nauðsynlegt
að skrá sig á þau. Markmiðið er
að fræða um þann vanda sem
plastnotkun og plastmengun
er bæði á heimsvísu og í okkar
nærumhverfi. Einnig er horft til
lausna og verður sagt frá því starfi
sem verið er að vinna á því sviði.
/HKr.
Í verkefninu Unga fólkið og plast mun unglingastig Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri kynna verkefni
sem þau hafa sérstaklega unnið fyrir BRIM kvikmyndahátíð. Verkefnið samanstendur af stuttmynd og
miðlunartengdu efni um plastmengun sjávar.