Bændablaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 20198 FRÉTTIR Eiríkur Þorsteinsson, trétæknir og verkefnisstjóri verkefnisins, skoðar ösp undir álagstjakki. Myndir / HGS Álagsprófanir á límtré úr íslenskum trjáviði: Alaskaösp sterkust af íslenskum viði Álagsprófanir á mismun­ andi gerðum af límtré úr íslenskum viði sýna að límtrésbitar úr ösp eru sterkastir. Efnið sem var valið í límtrésbitana var stafafura, sitkagreni, rússalerki og alaskaösp en viðmiðunarbitarnir voru úr sænsku rauðgreni. Alls voru fimmtán límtrésbitar í þessu rannsóknaver kefni álags­ prófaðir. Efnið í tólf límtrésbitanna kom úr trjám sem voru felld í Þjórsárdal síðastliðinn vetur, stafafura, sitkagreni, rússalerki og alaskaösp. Þrír límtrésbitar til viðmiðunar voru framleiddir úr rauðgreni frá Svíþjóð sem er notað í límtréframleiðslu í límtréverksmiðjunni á Flúðum. Eftir fellingu voru trjábolirnir sagaðir í réttar stærðir fyrir límtrés­ fjalir og þurrkaðir. Límtrésfjalirnar voru límdar í límtrésverksmiðjunni á Flúðum en álagsprófunin fór fram hjá Nýsköpunar miðstöð Íslands. Framkvæmd Eiríkur Þorsteinsson, trétæknir og verkefnisstjóri verkefnisins, segir að tilurð verkefnisins sé að Límtré ­ Vírnet hafi óskað eftir því að gerð yrði tilraun með að framleiða límtré úr íslensku timbri og fékk fyrirtækið Skógræktina og Nýsköpunarmiðstöð Íslands til samstarfs um verkefnið. Val á timbri til framleiðslu á límtré er nýtt fyrir Skógræktina. Valdar voru fjórar tegundir af trjám, sitkagreni, stafafura, rússalerki og alaskaösp, sem fengnar voru úr Þjórsárdals skógi. Bolirnir voru bútaðir í ákveðna lengd og síðan sagaðir í límtrésfjalir, 50x100 milli­ metrar, eftir ákveðinni sögunar­ aðferð. Efninu var síðan raðað upp fyrir þurrkun og flutt á Flúðir til þurrkunar hjá Límtré ­ Vírnet. „Eftir að timbrið var orðið þurrt var það flokkað í rétt gæði, gallar skornir úr og efnið fingrað samkvæmt kröfum fyrir efni til límtrés framleiðslu. Teknar voru prufur úr límtrésfjölum, sem voru fingraðar og ekki fingraðar. Þessar prufur voru síðan prófaðar í brot­ pressu og er það gert til að kanna styrk þessara ólíku viðartegunda og bera hann saman og að lokum voru tólf bitar límdir saman. Einnig voru þrír sambærilegir bitar límdir úr rauðgreni sem kemur frá Svíþjóð og er hefðbundið efni sem Límtré ­ Vírnet notar til límtrés­ framleiðslu. Þetta var gert til að fá samanburð á íslenska efninu og hefðbundnu efni til framleiðslu á límtré. Að lokum voru bitarnir brotnir hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og þar með prófað burðarþolið. Álagsprófunin er fyrsta skrefið á áframhaldandi athugunum um hvort mögulegt sé að framleiða límtré úr íslenskum viði,“ segir Eiríkur. Niðurstöður Eiríkur segir niðurstöður álags­ prófananna vera þær að sænska rauðgrenið sem notað var til við­ miðunar hafi komið best út. Hann segir að það hafi ekki komið á óvart, enda þekking og reynsla til margra ára á því að framleiða úr þessum viði. Styrkurinn reyndist bestur í öspinni af íslenska viðnum. „Reynsla og þekking á því að framleiða límtré úr íslenskum viði er engin og því er hér um frumtilraun að ræða, sem lofar góðu og gefur tilefni til frekari tilrauna, sem mun snúa að vali á timbri, flokkun á því og byggja upp þekkingu á framleiðslu úr því.“ Góðar fréttir fyrir skógarbændur Hlynur Gauti Sigurðsson, framkvæmdastjóri Lands­ samtaka skógareigenda, segir þetta góðar fréttir fyrir skógarbændur. „Besta efnið í límtré er kvistlítill viður og eðlilega er hann því verð­ meiri. Ég tel að bændur munu eftir þetta hugsa sig tvisvar um þegar þeir ákveða hvað þeir ætla að gera við ónotað framræst land. Ætla þeir að endurheimta þar votlendi og hafa ekkert upp úr því eða nota ösp sem er hraðsprottnasta kolefnisbindandi plantan sem við höfum aðgang að til að kolefnisjafna búskapinn og um leið búa til úrvals efni í límtré, krossvið og fleira í þeim dúr? Auk þess má þar stýra beit og njóta skjólsins sem af hlýst. Næsta skref er að skoða hvort mikill munur er á milli þols ólíkra asparklóna og ef svo er hver þeirra kemur best út.“ Hlynur segir að þegar kemur að furu þurfi líkast til að velja beinna og kvistminna kvæmi en gert var. Skagway­furan er barn síns tíma og best nýtt sem jólatré. Sitkagrenið kom vel út en mögulega má nota íslenskt rauðgreni í meira mæli og það hefði verið gaman ef íslenskt rauðgreni hefði verið með í tilrauninni. „Hvað lerki varðar þá kemur mér á óvart hversu stökkt það var og kom illa út miðað við annan við, en lerkið var samt áberandi fallegasti viðurinn. Allar þessar tegundir eru burðugar og munu áreiðanlega geta nýst hver á sinn hátt. Aðalatriðið er að sinna trjánum í skóginum framan af uppvexti og sjá til þess að þau verði einstofna og vaxi beint og uppkvista, að minnsta kosti þau sem eru álitleg að viðargæðum,“ segir Hlynur Gauti Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka skógareigenda. /VH Allir 15 límtrésbitarnir eftir álagspróf. Fyrstu tveir bitarnir eru fura, síðan koma lerki, ösp, sitkagreni, sænskt rauðgreni, fura, tveir lerkibitar, tvær aspir, tvö sitkagreni og tvö sænsk rauðgreni. Lerkið reyndist stökkt og mesti álagsþungi þess var 3,2 tonn. Fulltrúar úr samstarfsnefnd sveitarfélaganna og sveitarstjórar þeirra að lokinni undirritun samninganna. Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur: Samningar um fjölmörg verkefni undirritaðir Fulltrúar Sveitarfélagsins Skaga fjarðar og Akrahrepps hafa undirritað nýja samninga um annars vegar framkvæmd fjölmargra verkefna sem Sveitar­ félagið Skagafjörður tekur að sér að annast fyrir Akrahrepp og hins vegar um þjónustu embættis skipulags­ og byggingar fulltrúa. Taka samningarnir til verkefna eins og rekstur grunnskóla, leik­ skóla, tónlistarskóla, íþrótta­ miðstöðvar og íþróttamann virkja, barna verndar, frístundastarfs barna, dagþjónustu fyrir aldraða, þjónustu héraðs bóka safns, héraðsskjala­ safns, Safnahúss, Byggðasafns, upp lýsinga miðstöðvar fyrir ferða menn, þjónustu atvinnu­ og ferðamála fulltrúa, almanna varna, brunavarna­ og eldvarnaeftirlits, fasteigna í sameign sveitar félag anna tveggja, auk þjónustu skipulags­ og byggingarfulltrúa. Með gildistöku samninganna leggst samstarfsnefnd með Akra­ hreppi af en í staðinn funda byggðar ráð Sveitarfélagsins Skaga­ fjarðar og hreppsnefnd Akra hrepps um framkvæmd samninganna að lágmarki einu sinni á ári, auk þess sem framkvæmdastjórar beggja sveitar félaga funda oftar eftir þörfum. /MÞÞ Plast er mál umhverfismálanna í september: Verslunum óheimilt að gefa plastpoka – Burðarplastpokar verslana bannaðir 1. janúar 2021 Frá 1. september síðast liðnum er óheimilt að afhenda burðarpoka í verslunum án endurgjalds. Gildir þetta um allar tegundir burðar­ poka, óháð því úr hvaða efni þeir eru. Gjaldið fyrir pokana skal vera sýnilegt á kassakvittun. Í maí síðastliðnum samþykkti Alþingi breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem fela þetta bann í sér. Þetta á einnig við um þunnu glæru pokana sem hefur verið hægt að fá endurgjaldslaust, meðal annars í grænmetiskælum matvörubúða. Þann 1. janúar 2021 tekur síðan gildi bann við afhendingu burðar­ plastpoka í verslunum. Bannið á einungis við um plastpoka, óháð þykkt þeirra, en ekki burðarpoka úr öðrum efnum. Kemur það bann í kjölfar 18 tillagna sem samráðs­ vettvangshópur skilaði umhverfis­ og auðlindaráðherra í júní á síðasta ári um hvernig dregið yrði úr notkun plasts hér á landi, hvernig mætti bæta endurvinnslu þess og takast á við plastmengun í hafi. Ein margra aðgerða Í upplýsingum á vef umhverfis­ og auðlindaráðuneytisins kemur fram að burðarplastpokabannið sé ein aðgerð af mörgum til lausnar á plastvandamálinu. Þar segir að plast eyðist ekki við náttúrulegt niðurbrot, heldur brotni í smærri hluta og endi sem örplast. Til að framleiða plast þurfi olíu og plastið sjálft geti verið skaðlegt lífríkinu. Margvíslegra aðgerða sé þörf. „Með því að banna plastpoka tökumst við á við það mikla magn plastpoka sem er í umferð og það er mikilvægt. Bannið hefur hins vegar víðtækari áhrif. Það snertir daglegt líf okkar og virkjar okkur með beinum hætti við að hugsa um lausnir án plasts. Aðgerðin vekur nauðsynlega umræðu um plastmengun, neyslu og sóun og fær okkur til að hugsa á annan hátt en áður um plast og eigin neyslu,“ segir á vef ráðuneytisins. Nú þegar hefur tveimur öðrum tillögum verið hrint í framkvæmd; aðstoð við neytendur sem mæta með eigin umbúðir undir keypta matvöru, annars vegar, og svo hefur verið stofnað til Bláskeljarinnar, viður kenningar fyrir framúr­ skarandi plastlausar lausnir. Meðal annarra aðgerða sem liggja fyrir í ráðu neytinu sem miða að því að draga úr plastmengun er átak í vitundarvakningu um ofnotkun á plasti og að leggja úrvinnslugjald á allt plast. Þá mun Ísland fylgja Evrópusambandinu eftir í áætlun um að banna ákveðnar tegundir af einnota plasti; svo sem eyrna­ pinnum, hnífapörum, diskum, rörum, hrærum og blöðru prikum úr plasti. Gert er ráð fyrir að það bann taki gildi 1. janúar 2020. Plastlaus september Í september stendur yfir árvekni­ átakið Plastlaus september, sem umhverfis­ og auðlindaráðherra setti formlega þann 1. september. Árið 2017 var í fyrsta skipti staðið fyrir átakinu sem er grasrótarverkefni og síðan hefur það vaxið mikið með fjölda uppákoma og fyrirlestra. Tilgangur verkefnisins er að vekja fólk til umhugsunar um plastnotkun og þann plastúrgang sem fellur til dagsdaglega og leita leiða til að minnka notkunina. Gríðarlegt magn af einnota plasti er urðað eða endar í hafinu sem er mikið áhyggjuefni. Allt plast sem hefur verið framleitt er enn til, það brotnar niður í smærri einingar en eyðist ekki, þ.e. það plast sem ekki hefur endað í sorpbrennslu. Plastlaus september hvetur okkur til að nota minna af einnota plasti í september. Við getum valið hvort við tökum þátt í einn dag, eina viku, heilan mánuð eða til frambúðar. /smh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.