Bændablaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 35

Bændablaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 35 Piparskott (Peperomia) er samheiti yfir fjölda skyldra tegunda sem eru fremur smágerðar, þéttvaxnar, fjöl­ ærar jurtir með sígrænt lauf. Tegundir þessar eru skyldar piparjurtinni en eru ekki notaðar til matar. Náttúruleg heimkynni þeirra flestra eru Mið­ og Suður­ Ameríka en nokkrar tegundir vaxa villtar í Afríku. Þessar tegundir hafa reynst lifa góðu lífi sem pottablóm og hafa þann skemmtilega eiginleika að sýna mikinn breytileika í blaðlögun, blaðlit og áferð, auk þess sem blómin geta verið til mikillar prýði. Fjölbreytt útlit Margar tegundir fást í blóma­ verslunum og það getur verið smekklegt að raða þeim nokkrum saman á borð eða í glugga, ýmist saman í stóran pott eða hafa sína plöntu í hverjum potti. Hengipottar geta líka hentað þeim vel. Sumar tegundir eins og smaragðsskott bera rauðleitt, gárótt og nánast hringlaga lauf og langa, örmjóa blómstilka og fara vel með t.d. silfurskotti. Grængljáandi lauf smaragðs­ skottsins stendur á alllöngum stilkum, er því aðeins hávaxnari og myndar gosbrunnslaga brúsk. Rákótt, gljáandi og silfur dregin lauf blöð silfurskottsins eru mjög falleg. Annars er best að fara í blómaverslun með góðu tegundaúrvali og finna sín eigin uppáhaldsyrki af þessum fjöl­ breytta hópi skrautplantna. Takmörkuð krafa um daglega umhirðu Lauf flestra þessara tegunda eru fremur þykk og því eru margar þeirra hálfgerðir þykk blöðungar. Reglan er því sú að því þykkara sem laufið er, þeim mun sjaldnar þarf að vökva plöntuna. Moldin má þorna nokkuð vel milli vökvana og áburðargjöf er stillt mjög í hóf. Gefið helming upp­ gefins magns af blómaáburði í aðra hverja vökvun frá vori og fram eftir sumri. Þegar haustar drögum við svo úr vökvun og höldum moldinni aðeins lítillega rakri þar til dag er farið að lengja á ný. Umpottun og formklipping Umræddar tegundir þurfa ekki að vaxa í mjög stórum potti til að ná góðum þrifum. Algengast er að umpotta ekki nema á 2–3 ára fresti. Meiri líkur virðast vera á kröftugri blómmyndun á plöntum sem vaxa í fremur smáum pottum, 13–14 cm víðum. Notið venjulega pottamold við umpottun. Lögun plantnanna getur verið mismun­ andi eftir tegundum og er rétt að leyfa henni að njóta sín sem best. Ef greinar verða óþarflega langar eða plantan verður skökk í pottinum er auðvelt að leiðrétta það með því að fjarlægja óþarfan greinavöxt. Hægt er að klippa plöntuna vel niður ef hún þykir vera orðin of stór. Í beinu sólarljósi geta laufin orðið fölleit og fá jafnvel blaðskemmdir. Almennt hentar peperomia­ tegundum að standa í hálf­ skugga. Græðlingar róta sig greiðlega og fræfjölgun er líka auðveld. Meira að segja er hægt að setja afskorin lauf í raka mold og búast við að þau skjóti rótum, en sá eiginleiki er ekki algengur meðal plantna. Eldri plöntum má líka skipta í nokkra hluta. Hóflegar hita- og rakakröfur Venjulegur stofuhiti hentar plönt­ unum vel, en huga mætti að því að úða yfir þær reglulega því loftraki er venjulega í lægra lagi í híbýlum okkar. Til að njóta blaðfegurðarinnar sem best er ágætt að skola plönturnar öðru hvoru, t.d. í sturtunni. Ingólfur Guðnason brautarstjóri garðyrkjuframleiðslu LbhÍ Reykjum, Ölfusi. GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM Piparskott Lauf flestra piparskotta eru þykk og því eru margar þeirra hálfgerðir þykkblöðungar. Hjá okkur færðu allt fyrir háþrýstiþvottinn Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is Bænda 56-30-300 Piparskott þurfa ekki að vaxa í stórum potti til að ná góðum þrifum. Piparskott hafa lifa góðu lífi sem pottablóm og hafa þann skemmtilega eiginleika að sýna mikinn breytileika í blaðlögun, blaðlit og áferð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.