Bændablaðið - 12.09.2019, Side 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 35
Piparskott (Peperomia) er
samheiti yfir fjölda skyldra
tegunda sem eru fremur
smágerðar, þéttvaxnar, fjöl
ærar jurtir með sígrænt lauf.
Tegundir þessar eru skyldar
piparjurtinni en eru ekki
notaðar til matar. Náttúruleg
heimkynni þeirra flestra eru
Mið og Suður Ameríka
en nokkrar tegundir vaxa
villtar í Afríku.
Þessar tegundir hafa reynst
lifa góðu lífi sem pottablóm
og hafa þann skemmtilega
eiginleika að sýna mikinn
breytileika í blaðlögun, blaðlit
og áferð, auk þess sem blómin
geta verið til mikillar prýði.
Fjölbreytt útlit
Margar tegundir fást í blóma
verslunum og það getur verið
smekklegt að raða þeim nokkrum
saman á borð eða í glugga, ýmist
saman í stóran pott eða hafa
sína plöntu í hverjum potti.
Hengipottar geta líka hentað
þeim vel. Sumar tegundir eins
og smaragðsskott bera rauðleitt,
gárótt og nánast hringlaga lauf
og langa, örmjóa blómstilka og
fara vel með t.d. silfurskotti.
Grængljáandi lauf smaragðs
skottsins stendur á alllöngum
stilkum, er því aðeins hávaxnari
og myndar gosbrunnslaga brúsk.
Rákótt, gljáandi og silfur dregin
lauf blöð silfurskottsins eru
mjög falleg. Annars er best að
fara í blómaverslun með góðu
tegundaúrvali og finna sín eigin
uppáhaldsyrki af þessum fjöl
breytta hópi skrautplantna.
Takmörkuð krafa
um daglega umhirðu
Lauf flestra þessara tegunda eru
fremur þykk og því eru margar
þeirra hálfgerðir þykk blöðungar.
Reglan er því sú að því þykkara
sem laufið er, þeim mun sjaldnar
þarf að vökva plöntuna. Moldin
má þorna nokkuð vel milli
vökvana og áburðargjöf er stillt
mjög í hóf. Gefið helming upp
gefins magns af blómaáburði í
aðra hverja vökvun frá vori og
fram eftir sumri. Þegar haustar
drögum við svo úr vökvun og
höldum moldinni aðeins lítillega
rakri þar til dag er farið að lengja
á ný.
Umpottun og formklipping
Umræddar tegundir þurfa ekki að
vaxa í mjög stórum potti til að
ná góðum þrifum. Algengast er
að umpotta ekki nema á 2–3 ára
fresti. Meiri líkur virðast vera á
kröftugri blómmyndun á plöntum
sem vaxa í fremur smáum pottum,
13–14 cm víðum. Notið venjulega
pottamold við umpottun. Lögun
plantnanna getur verið mismun
andi eftir tegundum og er rétt
að leyfa henni að njóta sín sem
best. Ef greinar verða óþarflega
langar eða plantan verður skökk
í pottinum er auðvelt að leiðrétta
það með því að fjarlægja óþarfan
greinavöxt. Hægt er að klippa
plöntuna vel niður ef hún
þykir vera orðin of stór.
Í beinu sólarljósi geta
laufin orðið fölleit og fá
jafnvel blaðskemmdir.
Almennt hentar peperomia
tegundum að standa í hálf
skugga. Græðlingar róta sig
greiðlega og fræfjölgun er
líka auðveld. Meira að segja
er hægt að setja afskorin
lauf í raka mold og búast
við að þau skjóti rótum,
en sá eiginleiki er ekki
algengur meðal plantna.
Eldri plöntum má líka skipta
í nokkra hluta.
Hóflegar hita- og
rakakröfur
Venjulegur stofuhiti hentar plönt
unum vel, en huga mætti að því
að úða yfir þær reglulega því
loftraki er venjulega í lægra lagi
í híbýlum okkar. Til að njóta
blaðfegurðarinnar sem best er
ágætt að skola plönturnar öðru
hvoru, t.d. í sturtunni.
Ingólfur Guðnason
brautarstjóri
garðyrkjuframleiðslu LbhÍ
Reykjum, Ölfusi.
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Piparskott
Lauf flestra piparskotta eru þykk og því eru margar þeirra hálfgerðir
þykkblöðungar.
Hjá okkur
færðu allt fyrir
háþrýstiþvottinn
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Bænda
56-30-300
Piparskott þurfa ekki að vaxa í stórum
potti til að ná góðum þrifum.
Piparskott hafa lifa góðu lífi sem
pottablóm og hafa þann skemmtilega
eiginleika að sýna mikinn breytileika í
blaðlögun, blaðlit og áferð.