Þjóðólfur - 17.06.1941, Síða 5

Þjóðólfur - 17.06.1941, Síða 5
ÞJÖÐÓLFUR 5 Bréi til ungrar ólæknandi sjúkdóm, skapar það foreldrunum djúpa, lamandi sorg. Einbirni á aldrei eins glöð og hamingjusöm bernskuár og það barn, sem elst upp í hópi systkina. Og við dauða foreldr- anna er einbirnið einmana og ástvinafátt. Það er því skylda, ekki aðeins gagnvart þjóðfélag- inu, heldur einnig gagnvart barninu, að sjá því fyrir systkin- um, ef kostur er á. „Sá er aldrei einn, sem á ættingja,“ er að orð- taki haft. # En hvað koma þá hinar sér- stöku skyldur konunnar læknis- fræðináminu við? Þær koma því mikið við. Ef þú óskar eftir að lifa því lifi, sem þér er eðlilegast sem konu, þá skaltu ekki leggja fyrir þig langt nám. Af örlögum flestra þeirra kvenna, sem eru læknar, getur þú séð, að sú þýðingar- mikla starfsgrein kemur í bága við eðli þeirra. Aðeins fimmtán af hundraði þeirra eru giftar. Flestar eiga ekkert, eitt eða tvö börn. Þetta er þeim ekki eigin- legt. Ef þú gerist læknir, munu hinar erfiðu skyldur starfs- greinarinnar hindra hneigð þína til að lifa líkamlega eðlilegu og heilbrigðu lífi sem kona. Þetta er orsökin til þess, að svo lítill hluti þeirra eru giftar. Og af þeim giftu eru sjötíu af hundraði giftar læknum. Það íéttir þeim auðvitað hvorttveggja skyldurn- ar ótrúlega mikið. — Það, sem hér hefur verið sagt, getur auð- vitað ekki átt við um karlmenn, sem eru læknar. Fyrir þá eru konur og börn aðeins uppörvun. Þráin eftir samlífi með eigin- manni og börnum verður að vísu ekki tilfinnanleg, ef þú ert ein í hópi þeirra, sem raunverulega eru kallaðar til þessa starfs, til þeirra útvöldu, sem hafa slíka ást og áhuga fyrir starfi læknis- in, að það bæti upp söknuðinn eftir barni við brjóst þitt, þrána eftir hópi barna og barnabarna á gamalsaldri. Starf konunnar, sem er læknir, er köllun en ekki starf við hæfi kvenna yfirleitt. Það er undantekning, ef konur eru hæfar til að gegna því, svip- að og að dansa á línu, stunda leiklist, listdans, hnattflug eða annað það, er kæfir niður eðli konunnar. # Ég veit, að það er þitt hlýja hjartalag og góða greind, sem hefur vakið áhuga þinn fyrir læknisfræðinni. Og vissulega er þörf fyrir konur í þeirri starfs- grein. Það sanna orðin, sem kvensjúklingar mínir láta svo oft falla: „Þessu gæti ég ekki skýrt karlmanni frá.“ —- En þú mátt ekki láta þér sjást yfir ranghverfu þessa máls. Hún snertir aðeins konurnar, sem þessa braut velja. Þær geta ekki — undir venjulegum kringum- stæðum — sameinað það að vera góðar mæður og góðir læknar. Undantekningar eru til — og yfir þeim er hægt að fyll- ast aðdáun. En þær hafa ekki hagnýta þýðingu fyrir hina ungu konu, sem er að velja sér lífsbraut. Það er meginreglan, sem máli skiptir, en ekki undan- tekningarnar. stúlku Framh. af 3. síðu. Nú segir þú ef til vill: „En barnlaust hjónaband og skemmtilegt starf — er það ekki æskilegt takmark?“ Barnlaust hjónaband! Hvaða kosti hefur það fram yfir „frjálst samkomulag", „sam- vizkuhjónaband“ eða hvað mað- ur nú vill kalla það ? Er það sið- ferðilega rétt að ganga í hjóna- band með það fyrir augum að eignast ekki barn? Hver veitir okkur rétt til að binda örlög annars einstaklings við okkar eigin, ef við viljum ekki ala börn? Barnið er hinn raunveru- legi tengiliður. Tilvera barn- anna hefur skapað nauðsyn hjónabandsins, sem að öðrum kosti væri þýðingarlaus stofn- un. Getur hinn ungi eiginmaður hent reiður á sínum eigin tilfinn- ingum? Meðan fyrsta ástarvím- an er að líða hjá, finnst honum barnið kannske ekki skipta svo miklu máli. En seinna? Þá er hann genginn í gildruna, bund- iim konu, sem hefur atneitað sínu eigin eðii og viil elílii eign- ast barn vegna tillitsins tii starfs síns. Sú var tíðin, að barnið var sjálfsagt. Það var afleiðing „frjálsra ásta“ og orsök hjónabandsins. Þetta er gömul saga, ekki spilling nútím- ans. Það var siður meðal dönsku bændanna, að karl og kona bjuggu saman ógift þangað til barnið fæddist, og þannig er það enn víða um heim. Dr. Hiibertz ritaði árið 1834 skemmtilega bók um siðu og háttu íbúanna á Ærö. Þar var brúðkaupsveizl- an háð rétt um það bil, sem ljós- móðurin var sótt. Þetta var sið- venja þar, en ekki hneisa. Og um Ærö-piltinn var það sagt, að hann sviki aldrei stúlkuna sína. En hann vildi hafa trygg- ingu fyrir því að eignast börn. En við skulum ræða um þig! Ég bið þér allra heilla og þeirr- ar mestu hamingju, sem þér get- ur fallið í skaut, en hana er ekki að finna hjá ógiftum konum eða barnlausum, heldur hjá foreldr- um heilbrigðra barna. — Barn- laust hjónaband, „frjálst sam- komulag“ — hvorttveggja er betra en ekki. En það eru ,,gervivörur“ — ,,snuð“. Ég óska, að þér falli í skaut sönn lífshamingja og heilbrigði. # Hversu margar konur, sem hafa leitað mín sem læknis, hafa ekki grátið yfir því að vera óhæfar til að ala börn — grátið það, að fyrir tíu árum síðan höfðu þær af frjálsum og fús- um vilja hindrað það, sem þær nú þráðu af heilum hug! — Þrá konunnar eftir börnum vaknar stundum skyndilega og verður mjög sár. Leiktu ekki með lífið á þann hátt, að ákveða sjálf, hvenær í hjónabandi þínu þú villt eignast börn. Þú færð kann- ske að gjalda þess grimmilega síðar! Það eru til karlar og konur, sem af sérstökum ástæðum ekki óska eftir og ekki eiga að eign- ast börn, en það er undantekn- in. Flestar konur hafa til að bera djúpa þrá eftir börnum. Og það er ekki aðeins meiri hluti Framh. á 6. síðu. í v V V v v V V V V V V V V V V V V V V V í v V V V V s w A hverfanda hveli er nu loksins að koma. Bókin náði sölumeti í Ameríku og' Englandi og filman hefur gjörsamlega slegið öll met í sýningaf jölda. Bókin er um 1000 blaðsíður í’mjög stóru broti og kostar í einu lagi innbund- in 55,00 kr. Skáldkonan varð svo vinsæl fyrir þessa bók sína að hún fekk þúsundir bréfa og áskorana um að skrifa aðra bók, sem væri framhald af þessari. v Aðeins örfá eintök af bókinni verða seld í heilu lagi í haust og þurfa þeir, sem vilja fá liana þannig að pantsi hana beint frá útgefanda eða bóksölum, sem allra fyrst. Á hverfanda hveli í þýðingu eins af okkar ágætustu íslenzkumönnum, Arnórs Sigurjónssonar, verða allir að eiga. »»»»»»»:♦»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»>»»-♦»»-♦»-♦-♦>»»-'

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/1424

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.