Smirill - 12.11.1931, Blaðsíða 11

Smirill - 12.11.1931, Blaðsíða 11
SMIRILL 11 Báskólakennarar okkar og frúr þeirra. I. Lagadeild. Prófessor Ólafur Lárusson háskólarektor og frú. Ólafur prófessor Lárusson, Benediktssonar prests í Selárdal, er fæddur í Selárdal 25. febr. 1885. Tók stúdentspróf 1905 og embættispróf í lögfræði 1912 með hárri I. einkunn. Stund- aði málflutningsmannsstörf í Reykjavík. Var fyrst settur pró- fessor í lögfræði við Háskóla Islands 1915—1917 (meðan Ein- ar próf. Arnórsson var ráðlierra) og síðan skipaður í það em- bætti 1919. Kennir réttarsögu og 2. borgararétt. Ólafur prófessor Lárusson, sem kjörinn er rektor Háskólans þetta ár, er kvæntur frú Sigríði Magnúsdóttur, Þorsteinsson- ar, verzlunarmanns á ísafirði. — Rósirnar. Framh. frá bls. tí. aðferð er handhæg, en það er ekki alstaðar kostur á kjallara- rúmi og þá er ágætt ráð að grafa þær niður í mold, t. d. úti í garðinum. Það má gera hvort sem vill, grafa rósirnar í pottunum eða taka þær úr þeim, þær komast fult svo fljótt í vöxt að vetrin- um ef þær hafa verið látnar lialda sér í pottunum. — Rétt er að stytta langar greinar áður en rósirnar eru grafnar. Hent- ugt er að láta þær liggja ská- halt í moldinni, pottinn svo djúpt að hann frjósi ekki, en þótt frost nái greinunum þá sakar það ekki. Úr þessum geymslustað eru rósirnar tekn- ar á útlíðanda vetri, venjulega í febrúar eða marz. ? O Til þess að koma á sem nán- astri samvinnu milli sin og les- endanna, hefir „Smirill“ hugs- að sér að hafa eftirleiðis spurn- ingadálk i blaðinu. Munum við reyna að svara fyrirspurnum, hvers efnis sem cru, og fá þar til aðstoð hæfra manna og kvenna. Sendið okkur því fyrirspurn- ir yðar, ef þér óskið eftir frek- ari vitneskju um ýms málefni. Munum við svo birla bæði fvr- irspurnir og svör eftir því sem rúm leyfir. Afgreiðslan er i Aðalstræti 9, UPPÍ- .......*...... ....... Spakmæli. Ef þú vilt hafa hamingjuna inn- an veggja, þá leitaSu hennar i því sem þú átt. Sá, sem dregur att og alla niður i sorpið stendur sjálfur lágt. Sá, sem ekki getur stjórnað sjálfuin sér, hlýtur altaf að verða annarra þræll. Þú átt ekki að segja alt sem þú veizt, en þú átt að vita alt sem þú segir. Vertu konungur vilja þíns, e: þræll samvizku þinnar. Ríkustu löndin, eru ekki þau lönd þar sem náttúruskilyrðin eru bezt, heldur þau, þar sem fólkið er iðnast og sparsamast. —o— Það eru til manneskjur, sem aldrei gera neitt og aldrei verða neitt, — þær hafa „frí“ alt lífið. Þessa auðnuleysingja er allsstað- ar hægt að finna, jafnt meðal um- renninganna, sem tötrum klæddir flakka stað úr stað, og miljónamær- inganna, sem sér til afþreyingar hendast veröldina á enda. Þótt lífs- kjörin séu ólík er munurinn ekki svo ýkja mikill — eðlið er eins. — —o— Ast og kaupsýsla. Ung, nýgift kona kom einu sinni í banka og framvísaði tékka. „Þér verðið fyrst að skrifa á hann“ sagði gjaldkerinn kurteis- lega. „Já, en hann er frá manninum mínum, sem er utanlands i verzl- unarerindum; hann sendi mér tékkann". „Já, einmitt; nú skulið þér skrifa nafnið yðar liér aftan á, þá sér maðurinn yðar að við höfum borgað upphæðina út“. Unga frúin laut niður og skrif- aði, fékk gjaldkeranum tékkann og roðnaði ofurlitið um leið. En aftan á tékkann hafði hún ritað: Þín til dauðans elskandi Hanna. Meðal íþróttamanna. A. Hefurðu heyrt það — Ella er nýbúin að opinbera núna rétt einu sinni, —það er víst í 4. eða 5. skiftið. B. Já, að hugsa sér. Hún fer að verða hreinasti farandbikar.

x

Smirill

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Smirill
https://timarit.is/publication/1427

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.