Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Side 4
Stjórnarpistitl
Frá því síðasta þing sambandsins var hald-
ið í október hefur ýmislegt gerst innan sam-
bandsins. Skrifstofan hefur verið flutt frá
Hverfisgötu 82 að Laugavegi 89. Um leið og
flutt var kom fram hugmynd um að auka
skrifstofutímann og janframt að greiða fyrir
þá vinnu á einhvern hátt. Það var ákveðið að
gjaldkeri sambandsins Eigill Ólafsson tæki að
sér þetta starf sem kalla mætti framkvæmda-
stjórastarf. Þetta verður nokurskonar reynslu-
tími og að honum loknum verður kannað
hvort grundvöllur sé fyrir hendi að halda
þessu áfram. Með þessu hyggst stjórn sam-
bandsins auka þjónustu við félagsmenn, en
fyrst í stað verður ekki ákveðinn skrifstofu-
tími en símsvari mun gefa upplýsingar. Starf
Egils mun einnig verða tengt útgáfu Slökkvi-
liðsmannsins að einhverju leiti. Sambands-
félagar geta eftir sem áður leitað til stjórnar-
manna með mál sín. Skólanefndin sem kosin
var á síðasta þingi hefur verið að afla sér
upplýsinga um þessi mál og vonast er til að
eitthvað liggi fyrir í haust, en þetta mál verð-
ur ekki afgreitt í fljótheitum en þó má það
ekki dragast á langinn. Stjórn sambandsins
vill ítreka það að hún er ávallt tilbúin til að-
stoðar þeim félagsmönnum er til hennar leita
um félagsmál, öryggismál, störf sín og annað.
í vor og í haust áður en þing hefst munu ein-
hverjir af stjórnarmönnum fara á þá staði er
enn hafa ekki stofnað félag og aðstoða við
stofnun þeirra.
Eins og sést við lestur þessa blaðs þá hafa
ísfirðingar séð um hluta þess bæði hvað varð-
ar greinar og auglýsingar, og vonast stjórn
sambandsins til þess að aðrir láti ekki sitt
eftir liggja þegar leitað verður til þeirra af
ritstjórn Slökkviliðsmannsins.
Með sambands kveðju.
Á.P.
ViS framleiðum frábærar
eldavarnarhurðir sem smíðaðar eru
eftir sænskri fyrirmynd og eru
eins vandaðar af efni og tæknilegri
gerð og þekking framast
leyfir. Eldvarnarhurðimar eru
sjálfsagðar fyrir miðstöðvarklefa,
skjalaskápa, herbergi sem geymd
eru í verðmæti og skjöl, milli ganga
í stórhýsum, sjúkrahúsum og
samkomuhúsum, þar sem björgun
mannslífa getur oltið á slíkri vörn
gegn útbreiðsliu elds.
Eldvarnarhurðir GLÓFAXA
eru viðurkenndar af Brunamálastofnun
ríkisins og Slökkviliði
Reykjavíkurborgar.
Glófaxi hf.
Ármúla 24 - Sími 34236
2
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN