Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Side 27

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Side 27
Etdur í bátum og skipum Eldar í bátum og skipum geta verið svo óútreiknanlegir, að varla er hægt að gefa yfirlit um það í stuttu máli. Skipin eru svo margvísleg að gerð og stærð, flytja svo mis- jafnan farm og aðstæður til slökkvistarfa svo breytilegar að það tekur heila bók að gera því sæmileg skil sem æskilegt væri að benda á. Hér skal þó stiklað á stóru. Ef skip er í höfn þegar eldur kemur upp eða kemur brennandi í höfn, þá skal fyrst hafa tal af yfirmönnum skipsins og fá hjá þeim al'lar þær upplýsingar sem hægt er um eldinn. Fyrsta atriðið er að sjálfsögðu hvar eldur- mn sé í skipinu, hvernig hægt sé að komast að honum og hvert eldsneytið sé. Ef menn eru í hættu vegna eldsins, þarf að sjálfsögðu að gera allt til að bjarga þeim, en fyrst þarf að fá vitneskju um ofangreind atriði. Vistarverur í skipi, geymslur, lestarrúm, velarrúm o. s. frv. eru með svo margvíslegu móti, að varla er hægt að búast við því að slökkviliðsmenn þekki það, — sem þó getur komið fyrir. Farmur skips er mismunandi eldfimur og hættulegur, og nauðsynlegt er að fá um hann fyllstu upplýsingar til að ákveða hvaða að- ferðir skuli viðhafa til að slökkva eld í hon- um og hvað helst beri að varast. Skipstjóri ber ábyrgð á skipinu og farmi Þess, bæði gagnvart eigendum og vátryggj- endum. Hann veit manna best um sérein- kenni skipsins og þ.ol þess, sömuleiðis hversu SLÖKKVILIÐSMAÐURINN dýrmætur farmurinn er og hvaða tegundar. Ef nauðsynlegt er að dæla miklu vatnsmagni ofan í skipið verður að hafa samráð um það við skips'jóra eða fulltrúa hans, því að tak- mörk eru fyrir því hvað skipið þolir og ekki sama hvar vatnið er í skipinu, né hvar skip- ið er statt. Þar þarf að koma til dómgreind og ábyrgð skipstjórans. Straumar, veður og nálægð annarra skipa hafa þar einnig sitt að segja og hversu mikinn og þungan farm skip- ið er með og margt annað. Ef skip er í höfn getur einnig þurft að leita ráða hafnarstjóra um slökkvistarf, ef eldurinn er mikill, og hætta á að hann breið- ist út, skipið þurfi að færa vegna þess að það ristir dýpra við aukið vatnsmagn um borð, eða ef til greina kemur að sökkva því. Meðal annars af þessum sökum eru eldar í skipum ávallt erfiðir og vandslökktir. Fles.ir skipa- og bátaeldar hafa það sam- eiginlegt, að þá þarf að sækja ofan frá, sem auðvitað er miklu verra, því að hiti og reykur leita upp og því oft mjög erfitt að komast að eldstæðinu. Þar bætist við að aldrei er öruggt að fara ofan í brennandi skip án þess að vera með gott öndunartæki, því að miklar líkur eru fyrir því, að súrefnisskortur sé niðri í skipinu, eða skaðlegar lofttegundir. Ef eldur er í les^arrými þarf strax að fá upplýsingar um hvaða farmur sé í lestinni. og hvernig honum sé komið fyrir. Jafnvel þótt mikill eldur sé í lest og sjálfsagt að sprauta miklu vatni í lestina getur það gert illt verra, því að dæmi eru til þess að slíkur farmur hefur þrútnað svo af vatninu að hann sprengdi skipið utan af sér og það sökk. Þá geta sprengihæf efni verið í lestinni, gashylki, ýmis kemisk efni eða viðkvæmur farmur, sem eyðileggst af vatni. Þá þarf e. t. v. að nota aðrar slökkviaðferðir eins og t. d. að fylla lestina kolsýru og loka henni þar til eldurinn hefur kafnað. Oft er hægt að koma slökkviefni (vatni, kolsýru) að eldinum með öðru móti en að sprauta beint á hann, og þar kemur þekking' 25

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.