Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Side 5

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1978, Side 5
/973 L.S.S. 1978 Nú þegar L.S.S. verður 5 ára 12. maí, er sjálfsagt að líta til baka og leiða hugann að því hvernig L.S.S. varð til og hvernig það hefur starfað þessi fimm ár. Hér verður að- eins stiklað á stóru og eflaust gleymist margt. Snemma árs 1972 fór Guðmundur Haralds- son þá slökkviliðsmaður á Keflavíkurflugvelli ásamt fleirum að huga að stofnun samtaka slökkviliðsmanna fyrir allt landið, þetta hafði verið reynt áður en ekki tekist. Þessi hópur hafði samband við öll þau slökkvilið er til Voru og greindu frá hugmyndum sínum. Vel var tekið í þetta mál og skipuð nefnd til að vinna að málinu áfram. Undir forustu Guð- mundar H. voru haldnir margir fundir og einn þeirra alsherjar-fundur með slökkviliðsmönn- um er staddir voru á námskeið í Reykjavík. Þar var ákveðið að boða til stofnufundar vor- ið 1973 í Reykjavík. Eftir mikla vinnu nefnd- arinnar var boðað til fundar í Reykjavík 12. maí að hótel Esju. Á þennan fund mættu full- trúar frá 18 slökkviliðum og voru þar sam- þykkt drög að lögum fyrir sambandið og jafn- GuBmundur Haraldsson fyrstx form. L.SS. Tekifi á framhaXdsstofnþingi 1973. SLÖKKVIUÐSMAÐURINN Núverandi formafiur L.S.S. Ármann Pétursson. framt ákveðið að boða til framhaldsstofn- þings um haustið. Kosin var undirbúnings- stjórn og var formaður hennar Guðmundur Haraldsson, verkefni hennar var að kynna þetta betur þeim slökkviliðum er ekki sendu fulltrúa og undirbúa haustþingið. Á fram- haldsstofnþinginu var gengið frá lögum fyrir sambandið og stefnuskrá þess mörkuð í höf- uðatriðum. Undirbúningsstjórnin var öll kos- in sem fyrsta stjórn sambandsins. Hennar fyrsta mál var að samræma laun slökkviliðs- manna um land allt og með góðum stuðningi frEimkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitafélagar gekk það fljótt fyrir sig, en áð- ur höfðu þessir menn í mörgum tilfellum ver- ið ótryggðir og ólaunaðir. Þessi samræming gekk ekki alveg hljóðalaust fyrir sig og enn í dag mætir hún mótspyrnu þó veik sé. Með þessari samræmingu fékkst einnig það að nú var greitt fyrir skylduæfingar sem eru 20 tímar á ári en þessar æfingar eru venjulega um helgar og raska á margan hátt frítímum slökkviliðsmanna, þetta gerði einnig það að verkum að menn mættu betur á æfingar sem var til hagsbóta fyrir viðkomandi sveitafélag. Þessu fylgdi einnig greiðsla fyrir bakvaktir um helgar að sumri til en þau sveitafélög er tekið hafa ábyrga afstöðu í eldvarnamálum hafa óskað eftir því við slökkviliðsmenn að þeir færu ekki allir burt úr sveitarfélaginu um helgar. Eins og sjá má hefur hér verið unnið aðallega að málum slökkviliðsmanna er ekki hafa þetta starf að aðalatvinnu enda hafa 3

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.