Víkurfréttir - 09.01.2020, Blaðsíða 1
að lágmarki 303Mb/sek og 15 stjónvarpsstöðvar innifaldar
Hefur þú skoðað
verðin okkar?
frá 7.490 kr/mán
Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 • kv@kv.is
www.kv.is • www.facebook.com/kapalvaeding
NETTÓ Á NETINU
- ÓDÝRT OG ÞÆGILEGT -
Sparaðu tíma og gerðu matarinnkaupin á netinu.
Þú velur um að fá heimsent eða að sækja
í Nettó Krossmóum.
á Keavíkurugvelli
Óveðursvakt
Átján ára piltur úr Reykjanesbæ
var stunginn fimm sinnum með
hnífi í átökum tveggja hópa manna
að morgni nýarsdags. Voru hnífs-
stungurnar lífshættulegar og gekkst
maðurinn undir aðgerð en hann
missti mjög mikið blóð. Hann er
nú á batavegi.
Átökin áttu sér stað í heimahúsi og
fyrir utan það í Reykjanesbæ.
Voru mennirnir færðir í fanga-
klefa á lögreglustöðinni í Keflavík
og tveir þeirra í framhaldi færðir í
gæsluvarðhald grunaðir um þátt í
verknaðinum. Þeir voru þar í tvo
sólarhringa og sleppt að því loknu.
Lögreglan verst allra frétta af mál-
inu og segir það á viðkvæmu stigi þar
sem enn sé verið að vinna úr gögnum
sem tengjast málinu.
Ungi maðurinn sem varð fyrir
hnífsstungunum hefur birt mynd
af sér á Instagram þar sem hann segir
frá málinu, m.a. hafi miltað verið
tekið í aðgerðinni sem hafi tekið
fjórar klukkustundir og hann hafi
misst 4,5 lítra af blóði. Hann þakkar
fyrir batakveðjurnar og segist koma
sterkari og vitrari til baka.
Kristín tilnefnd til
dönsku kvikmynda-
verðlaunanna
Kristín Júlla Kristjánsdóttir hefur
verið tilnefnd til dönsku kvikmynda-
verðlaunanna, Robert Award, fyrir
besta smink/gervi í Valhalla. Verð-
launin verða afhent síðar í mánuð-
inum.
Valhalla er ævintýramynd um vík-
ingabörn og ævintýraför þeirra frá
Miðgarði til Valhallar með guðunum
Þór og Loka.
Í stuttu samtali við Víkurfréttir sagði
Kristín tilnefninguna vera algjörlega
sturlaða.
Stunginn fimm
sinnum með hnífi
– eftir átök tveggja hópa á nýársdagsmorgun.
Kominn úr lífshættu. Tveir menn í gæsluvarðhald.
Ungi maðurinn sem varð fyrir
hnífsstungunum hefur birt mynd
af sér á Instagram.
Kristín Júlla
Kristjánsdóttir
úr Garðinum hefur
náð langt í sínu fagi.
Börnin höfðu gaman af því þegar Grýla og jólasveinninn sprelluðu á hátíðarsviði þrettándagleðinnar í
Reykjanesbæ á mánudagskvöldið. Góð þátttaka var í hátíðarhöldunum. Fleiri myndir í blaðinu í dag og á vf.is
Keflvíkingurinn Samúel Kári Frið-
jónsson, atvinnumaður í knatt-
spyrnu, er ungur að árum en er
að upplifa draum margra ungra
stráka og stelpna, að vinna við það
að sparka bolta. Hann lék sinn
fyrsta leik í stórmóti með íslenska
landsliðinu síðasta haust og hefur
leikið með erlendum félagsliðum
gegn stórliðum á borð við Real Ma-
drid og Manchester United. Víkur-
fréttir hittu kappann, sem er 23 ára,
í Reykjaneshöllinni í byrjun árs og
fengu þær fréttir frá Samúel að hann
væri mjög líklega á leið til annars
atvinnumannaliðs á næstu dögum.
Viðtalið við Samúel Kára er
í íþróttaopnu Víkurfrétta í dag
en viðtal við hann er einnig í
Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta
á fimmtudagskvöld kl. 20:30 á
Hringbraut og vf.is. Lengri útgáfa
viðtalsins verður á vf.is á fimmtu-
dagskvöld kl. 21:00.
Draumur Samúels Kára
Ánægð börn á þrettándagleði
fimmtuDagur 9. janúar 2020 // 2. tbl. // 41. árg.
Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum ■ aðalsímanúmer 421 0000 ■ auglýsingasíminn 421 0001 ■ fréttasíminn 898 2222