Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.01.2020, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 09.01.2020, Blaðsíða 16
Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Rétturinn Ljúffengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-14 alla virka daga Flugstefna Verið er að vinna flug- stefnu fyrir Ísland af krafti og liggja fyrstu drög hennar fyrir sem grænbók. Stefnan er í eðli sínu bæði pólitísk og fagleg. Drögin taka fyrst og fremst á faglega þættinum. Nú liggur fyrir að fá umsagnir sem fjalla um félagslega og pólitíska þáttinn, ásamt umhverfismálum flugsins. Þar koma við sögu sveitarfélög, þingflokkar og ríkisstjórn, auk sérfræðinga. Stjórnarflokkarnir hljóta setja sinn svip á stefnuna í samræmi við samstarfssamn- ing ríkisstjórnarinnar. Tryggja verður að landshlutar hafi áhrif á stefnuna í innan- og utanlands- flugmálum. Innanlandsflug á að vera, samanber grænbókina, hluti almenningssamgangna í landi með byggðamynstri eins og hér er. Farmiðaverð, fartíðni, fjöldi flugvalla í heilsársrekstri og lega góðs flugvallar á höfuðborgar- svæðinu eru önnur mikilvæg at- riði. Hlutverk höfuðborgar skil- yrðir hraðsamgöngur frá helstu bæjum til hennar. Allir varavellir landsins eru alþjóðaflugvellir að vissu marki og eiga að vera not- hæfar gáttir að hóflegum straumi fólks inn og út úr landinu, með bættri tækni. Það gefur auga leið að uppbygg- ing meginfluggáttarinnar til lands- ins, á Miðnesheiði, mun taka mið bæði að flugstefnunni og megin- stefnu stjórnvalda í ferðaþjónustu. ISAVIA er ekki eyland í samfélaginu og verið er að vinna ríkifyrirtækinu eigendastefnu. Þar hlýtur að koma fram að ferðaþjónusta, sem hefur sín þolmörk í ljósi sjálfbærni, lýtur stýrðri þróun sem markar upp- byggingunni ramma. Áætlanir að uppbyggingu Leifsstöðvar eiga að taka mið af honum. Það verður til þess að fjölda ferðamanna inn til Íslands og millilend- ingafarþega verða tak- mörk sett. Þar með er flugþjónusta á Íslandi takmörkuð auðlind og afmörkuð stærð, í bland við aðrar atvinnugreinar, á hverju tilteknu tímabili. Mikilvægt er að minna á að stefna ríkisstjórnarinnar hefur líka komið fram, í orðum Sigurðar Inga Jóhannssonar ráðherra og samgönguáætluninni, að hluta af hagnaði eða gjaldtöku ISAVIA skal nota í að bæta varaflugvelli milli- landaflugsins. Það hefur aftur áhrif á aðra flugvelli með því að annað fjármagn fæst þá til að bæta ástand og rekstur þeirra. Þetta er væntalega líka hluti flugstefnu Íslands. Þróun flugvéla og leiðsagnartækja er hröð og margt vinnst þar í þágu umhverfis- og loftslagsmála með hverju ári. Það er engu að síður ein- földun að klifa á rafvæðingu flugs eins og hún sé meginleið til að minnka losun frá loftförum. Um all- langa hríð munu rafflugvélar verða algengar sem tveggja til átta eða tíu manna loftför. Stærri farþegavélar nýta margar „grænt eldsneyti“ svo sem vetni, alkóhól og lífdísil. Öfl- ugar eða langfleygar vélar á nor- rænum veðurslóðum verða þeirrar gerðar um hríð. Flugstefnan hlýtur að taka mið af þeim raunveruleika. Ítreka verður að hún vinnst í fá- einum stórum skrefum með góðu samráði fagaðila, hagaðila, stjórn- valda, þingflokka og almennings. Tekur mið af raunveruleikanum. Ég óska lesendum gæfu og gengis á nýju ári. Ari Trausti Guðmundsson. Höfundur er þingmaður VG í Suðurkjördæmi. Beina leið áfram Reykjanesbær sem sveitarfélag hefur undangengin ár þurft að takast á við fjölmargar áskoranir og fjöl- margar áskoranir bíða okkar á nýju ári. Þó er með réttu hægt að halda því fram að hagur sveitarfélagsins okkar hafi farið batnandi og er því ekki síst að þakka þeim vilja og viðleitni starfsmanna til þess að koma sveitarfélaginu á réttan kjöl. Á köflum hefur það verið snúið og erfitt en nú horfir til betri vegar í þeim efnum. Auknar fjárfestingar Samkvæmt fjárhagsáætlun er verið að reikna með verulegum fjárfestingum á nýju ári sem veita munu viðnám gegn auknu atvinnuleysi. Fjárfestingar vegna Stapaskóla munu nema um 2,5 milljörðum króna á þessu ári, en ásamt þeirri fjárfestingu er gert ráð fyrir að fjárfest verði fyrir 700 milljónir til viðbótar. Áætlað er að fara í endurbætur á úti- svæði sundmiðstöðvarinnar (Vatna- veröld) sem kosta 200 milljónir króna og þá er einnig ráðgert að fjárfesta í gerfigrasvelli vestan Reykjaneshallar fyrir rúmar 200 milljónir. Þá mun einnig verða farið í ýmis önnur verk- efni s.s körfu- og sparkvöll á Ásbrú svo dæmi sé tekið. Aukin þjónusta Á sama tíma er verið að bæta þjón- ustu við íbúa. Nú hefur verið ákveðin lækkun á fasteignaskatti og veita á talsverðum fjármunum í að bæta stöðu íbúa. Hvatagreiðslur verða hækkaðar, ókeypis verður í sund fyrir ung- menni bæjarins, aukinn stuðningur við barnmargar fjölskyldur vegna mataráskriftar í skólum. Þá er stuðningur sveitarfélagsins við ungmenni sem fara í landsliðs- ferðir tvöfaldaður ásamt því að gerðir verða samstarfssamingar við íþrótta- félögin sem mun gera þeim betur kleift að sinna því góða starfi sem þar fer fram. Áfram á sömu braut Reykjanesbær hefur á mörgum sviðum verið brautryðjandi. Við vorum fyrst stórra sveitarfélaga til að bjóða upp á ókeypis námsgögn í grunnskólum og við höfum ráðið til okkar lýðheilsufræðing til þess að vinna að lýðheilsumálum ásamt því að hafa hér starfandi verkefnastjóra fjölmenningar. Við ætlum að halda áfram á sömu braut á nýju ári. Gleðilegt nýtt ár. Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi og oddviti Beinnar leiðar. Svipaður fjöldi erlendra ferðamanna á næsta ári – Töluverð fækkun skiptifarþega Í farþegaspá Isavia fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir að heildarfjöldi far- þega sem fara um Keflavíkurflugvöll dragist saman um 7,6% frá 2019. Spá Isavia um fjölda farþega sem áætlað er að fari um Keflavíkurflugvöll árið 2020 var gefin út í lok desember. Samkvæmt farþegaspánni er gert ráð fyrir að farþegar sem fara um Kefla- víkurflugvöll 2020 verði tæplega 6,7 milljónir og fækki því um 7,6% frá því sem var árið 2019. Heildarfjöldi komu- og brottfararfarþega verði tæpar 2,6 milljónir sem er 1,2% samdráttur frá í fyrra. Stærsti hlutinn er vegna fækkunar skiptifarþega en annað árið í röð fækkar þeim mest. Þeir fara úr rétt rúmum 2 milljónum í rúmlega 1,5 milljón eða niður um 24,3 prósent. Komu- og brottfarar- farþegum fækkar aðeins um 1,2 prósent Þegar horft er til ársins 2019 er rétt að hafa í huga að fyrstu þrjá mánuðina var WOW air starfandi en félagið féll í lok marsmánaðar. Að frátöldum farþegum Wow air fækkar farþegum í heild um 1,9%. Komu- og brottfararfarþegum fjölgar um 3,3% en skiptifarþegum fækkar um 16,2% „Farþegaspá Isavia fyrir Kefla- víkurflugvöll er unnin í náinni sam- vinnu við notendur flugvallarins og við erum að gera ráð fyrir fækkun í heildarfjölda farþega sem fara munu um Keflavíkurflugvöll á næsta ári,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Því má ekki gleyma að stærsta hluta fækkunarinnar má rekja til þess að WOW air var starfandi fyrstu þrjá mánuði ársins á síðasta ári. Það jákvæða er að þessi spá gerir ráð fyrir að að komu- og brottfararfarþegum fækki einungis um rétt rúmt eitt prósent á komandi ári.“ Íslenskum ferðalöngum fækkar nokkuð Í tengslum við farþegaspá hefur Isavia á síðustu árum einnig gefið út ferða- mannaspá. Það er nokkur óvissa varðandi ferðamannaspánna en fyrstu niðurstöður benda þó til að íslenskum ferðalöngum fækki um sjö til átta pró- sent frá 2019, á móti gæti fjöldi erlendra ferðamanna staðið nokkurn veginn í stað milli ára. Þetta er þó ekki endanleg niðurstaða. „Ef þetta mat gengur eftir fækkar erlendum ferðamönnum ekki á Íslandi á nýju ári,“ segir Sveinbjörn. „Mikilvægt er að gæta að því að viðhalda þeim flugtengingum við umheiminn sem við höfum og fjölga þeim til framtíðar, enda er bein tenging milli þeirra og hagvaxtar í landinu. Það skilar sér til okkar allra.“ Farþegaspárfundur haldinn á nýju ári Farþegaspáin byggir á upplýsingum úr kerfum Isavia og samtali við þau flugfélög sem eru notendur flug- vallarins, til viðbótar við þær fréttir og fregnir sem almennt hafa borist af flugfélögum. Hún er þannig unnin úr samanteknum upplýsingum um öll þau flugfélög sem fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli eða hafa hafið sölu á ferðum til og frá flugvellinum. Áformað er að boða til opins fundar um farþegaspánna á nýju ári og þar verður fjallað nánar um horfurnar fyrir árið 2020, útlitið í fjölda ferðamanna og þær áskoranir sem bíða á næstu mánuðum. Einnig verður þar fjallað um þau tækifæri sem eru til staðar í rekstri Keflavíkur- flugvallar í alþjóðlegu samkeppnisum- hverfi og mikilvægi flugtenginga fyrir íslenskt efnahagslíf og þjóðfélagið í heild sinni. Janúaropnun Skáldaskáps í Bókasafni Sandgerðis Listaverkefnið Skáldaskápur var formlega opnað laugardag 16. nóvem- ber 2019 á Degi íslenskrar tungu en það er hugarfóstur listamannsins Gunnhildar Þórðardóttur. Skáldaskápur er búinn að vera tvo mánuði í Bókasafni Reykjanesbæjar og hefur kynnt tvö ný skáld en mun núna fara á flakk til Sandgerðis. Janúaropnun Skáldaskáps verður í Bóka- safni Sandgerðis fimmtudaginn 9. janúar kl. 17. Skáldaskápur kynnir tvö skáld til leiks, Guðmund Magnússon úr Garðinum og Helenu Rós Bjarnveigardóttur frá Keflavík, í janúar en þau munu lesa upp úr verkum sínum á opnuninni. Helena er 22 ára, fædd og uppalin í Keflavík og lauk stúdentprófi frá Verzlunarskólanum. Hún er nem- andi við Tónlistarskóla Reykjanes- bæjar og spilar á píanó en tónlist er mikill partur af lífi hennar. Árið 2017 byrjaði hún að skrifa ljóð og texta sér til skemmtunar og hefur haldið áfram skifa mikið. Að hennar sögn skrifar hún til að róa hugann og það hjálpar henni að halda utan um hugsanir. Guðmundur Magnússon er úr Garðinum eins og áður sagði og skrifar ljóð og smásögur. Hann hefur einnig gert heimildamyndir og skrifað handrit að kvikmynd. Hann er meðlimur Bryggjuskálda og hefur unnið að margvíslegri menningarstarfsemi í Garðinum og annars staðar. Markmið Skáldaskáps er að hvetja íbúa Suðurnesja til að semja ljóð, smásögur, vísur, kvæði og efla skap- andi skrif. Verkefnið er samfélagslegt þar sem allir íbúar, óháð kyni, aldri, þjóðerni og tungumáli, eru hvattir til þess að taka þátt. Verkin eru sýnd í sérstökum skáp frá Byggasafni Suðurnesja en það er hægt að fylgjast með viðburðum á Facebook-síðu Skáldaskáps undir Skaldaskapur- Poetry-Cupboard og senda efni á skaldaskapur@gmail.com. Allir velkomnir og léttar veitingar. 16 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 9. janúar 2020 // 2. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.