Víkurfréttir - 09.01.2020, Blaðsíða 2
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
Helga Jóhanna til HS Veitna
Helga Jóhanna Oddsdóttir hefur verið ráðin í starf sviðsstjóra rekstrar-
sviðs HS Veitna. Undir rekstrarsvið heyra málaflokkarnir mannauðsmál,
gæða- og skjalastjórnun, öryggismál, upplýsingatækni, þjónustuver og
markaðs- og kynningarmál. Eins er sviðsstjóri rekstrarsviðs staðgengill
forstjóra fyrirtækisins.
Helga Jóhanna er B.Sc í viðskipta-
fræði og lauk M.Sc. gráðu frá Há-
skóla Íslands með áherslu á stjórnun
og stefnumótun. Helga hefur m.a.
starfað sem forstöðumaður starfs-
mannaþjónustu Reykjanesbæjar á
árunum 2003–2008, framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs Opinna kerfa
2008–2011. Haustið 2011 stofnaði
Helga stjórnendaþjálfunar- og ráð-
gjafarfyrirtækið Carpe Diem ehf.
sem síðar sameinaði krafta sína
Strategic Leadership ehf. sem Helga
hefur stýrt undanfarin ár.
Helga Jóhanna Oddsdóttir.
70 ára
70 ára afmæliskaffi
Stjórnendafélags Suðurnesja
(áður Verkstjórafélag Suðurnesja)
Í tilefni 70 ára afmælis félagsins er
félögum boðið í afmæliskaffi,
mánudaginn 13. janúar 2019, kl. 18:00,
að Hafnargötu 15, í Reykjanesbæ.
Gauja lætur af störfum eftir rúm
38 ár í starfi við Njarðvíkurskóla
Guðríður Vilbertsdóttir, umsjónar-
maður fasteigna í Njarðvíkurskóla,
lét af störfum um áramótin eftir rúm
38 ár í starfi við skólann. Gauja hefur
svo sannarlega sett mark sitt á skóla-
samfélagið í Njarðvíkurskóla.
Á heimasíðu skólans segir að starfsfólk
Njarðvíkurskóla þakki henni fyrir gott
samstarf og óskar henni velfarnaðar á
komandi árum.
Sigmundur Már Herbertsson hefur
tekið við starfi umsjónarmanns fast-
eigna í Njarðvíkurskóla.Sigmundur og Gauja.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a,
4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222, hilmar@vf.is
// Blaðamenn: Marta Eiríksdóttir, sími 857 8445, marta@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, vf@vf.is
// Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & umbrot:
Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is,
Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslands-
póstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á mánudegi
fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist
fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing
blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur frétta, vf.is. Það
er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni,
texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Már „Alive“ í Hljómahöll 13. mars
Már Gunnarsson heldur Stór-Stór-
tónleika „Alive“ ásamt færustu hljóð-
færaleikurum Póllands í Stapa 13.
mars nk. Einn virtasti útsetjari þar
í landi, Hadrian Tabecki, snýr aftur
til Íslands ásamt átta frábærum tón-
listarmönnum sérstaklega fyrir þetta
tilefni.
Margt hefur gerst hjá þessum unga
tónlistarmanni og sundkappa undan-
farna mánuði. Má þar nefna stórtón-
leika á erlendri grundu og þátttaka
á stórum sundmótum erlendis með
einstökum árangri!
Már hefur áunnið sér gríðarlega gott
orð fyrir tónlist sína, íþróttaiðkun,
og það sem meira skiptir máli, fyrir
einlæga og fallega framkomu.
„Már er svo heppinn að eiga sem
systur hina undurfögru og geislandi
söngkonu, hana Ísold, og verður hún
honum til halds og trausts á sviðinu.
Gestasöngkona í ár er hin sjarmer-
andi Sigríður Thorlacius en hver
þekkir ekki slagarann Líttu sérhvert
sólarlag og verður það að sjálfsögðu
tekið fyrir,“ segir í tilkynningu frá
Hljómahöll.
Almennt verður tónlistarstíll-
inn mjög fjölbreyttur og vonandi
eitthvað fyrir alla, t.d rokk, popp,
Country, Latino, rapp, dægurlaga-
tónlist og instrumental-tónlist.
Húsið og barinn opna 13. mars á
slaginu 18:30 en sýningin hefst kl.
19:30 og stendur yfir í tæpar tvær
klukkustundir með fimmtán mínútna
hléi. Miðaverð 3.900 kr. Miðasala er
á tix.is og á vef Hljómahallar.
Kristín GK varð vélarvana utan við Grindavík
Línuskipið Kristín GK, sem er í eigu útgerðarfélagsins
Vísis, varð vélarvana suðaustur af Grindavík að kvöldi
2. janúar. Mikill viðbúnaður var vegna atviksins en skip-
verjum tókst að koma vél Kristínar GK í gang og skipið
sigldi fyrir eigin vélarafli í fylgd björgunarskips til hafnar
í Grindavík.
Björgunarskipið Oddur V. Gíslason, lóðsbáturinn Bjarni
Þór og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út en þó var
ekki talin hætta á ferðum. Samt var brugðist hratt við þar
sem veðurspáin var ekki góð.
Hilmar Bragi var í Grindavík og tók þessar myndir á
vettvangi.
Björgunarskipið Oddur V. Gíslason
fylgdi Kristínu GK til hafnar.
Lögregla við skipshlið.
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 9. janúar 2020 // 2. tbl. // 41. árg.