Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.01.2020, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 09.01.2020, Blaðsíða 1
að lágmarki 303Mb/sek og 15 stjónvarpsstöðvar innifaldar Hefur þú skoðað verðin okkar? frá 7.490 kr/mán Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 • kv@kv.is www.kv.is • www.facebook.com/kapalvaeding NETTÓ Á NETINU - ÓDÝRT OG ÞÆGILEGT - Sparaðu tíma og gerðu matarinnkaupin á netinu. Þú velur um að fá heimsent eða að sækja í Nettó Krossmóum. á Keavíkurugvelli Óveðursvakt Átján ára piltur úr Reykjanesbæ var stunginn fimm sinnum með hnífi í átökum tveggja hópa manna að morgni nýarsdags. Voru hnífs- stungurnar lífshættulegar og gekkst maðurinn undir aðgerð en hann missti mjög mikið blóð. Hann er nú á batavegi. Átökin áttu sér stað í heimahúsi og fyrir utan það í Reykjanesbæ. Voru mennirnir færðir í fanga- klefa á lögreglustöðinni í Keflavík og tveir þeirra í framhaldi færðir í gæsluvarðhald grunaðir um þátt í verknaðinum. Þeir voru þar í tvo sólarhringa og sleppt að því loknu. Lögreglan verst allra frétta af mál- inu og segir það á viðkvæmu stigi þar sem enn sé verið að vinna úr gögnum sem tengjast málinu. Ungi maðurinn sem varð fyrir hnífsstungunum hefur birt mynd af sér á Instagram þar sem hann segir frá málinu, m.a. hafi miltað verið tekið í aðgerðinni sem hafi tekið fjórar klukkustundir og hann hafi misst 4,5 lítra af blóði. Hann þakkar fyrir batakveðjurnar og segist koma sterkari og vitrari til baka. Kristín tilnefnd til dönsku kvikmynda- verðlaunanna Kristín Júlla Kristjánsdóttir hefur verið tilnefnd til dönsku kvikmynda- verðlaunanna, Robert Award, fyrir besta smink/gervi í Valhalla. Verð- launin verða afhent síðar í mánuð- inum. Valhalla er ævintýramynd um vík- ingabörn og ævintýraför þeirra frá Miðgarði til Valhallar með guðunum Þór og Loka. Í stuttu samtali við Víkurfréttir sagði Kristín tilnefninguna vera algjörlega sturlaða. Stunginn fimm sinnum með hnífi – eftir átök tveggja hópa á nýársdagsmorgun. Kominn úr lífshættu. Tveir menn í gæsluvarðhald. Ungi maðurinn sem varð fyrir hnífsstungunum hefur birt mynd af sér á Instagram. Kristín Júlla Kristjánsdóttir úr Garðinum hefur náð langt í sínu fagi. Börnin höfðu gaman af því þegar Grýla og jólasveinninn sprelluðu á hátíðarsviði þrettándagleðinnar í Reykjanesbæ á mánudagskvöldið. Góð þátttaka var í hátíðarhöldunum. Fleiri myndir í blaðinu í dag og á vf.is Keflvíkingurinn Samúel Kári Frið- jónsson, atvinnumaður í knatt- spyrnu, er ungur að árum en er að upplifa draum margra ungra stráka og stelpna, að vinna við það að sparka bolta. Hann lék sinn fyrsta leik í stórmóti með íslenska landsliðinu síðasta haust og hefur leikið með erlendum félagsliðum gegn stórliðum á borð við Real Ma- drid og Manchester United. Víkur- fréttir hittu kappann, sem er 23 ára, í Reykjaneshöllinni í byrjun árs og fengu þær fréttir frá Samúel að hann væri mjög líklega á leið til annars atvinnumannaliðs á næstu dögum. Viðtalið við Samúel Kára er í íþróttaopnu Víkurfrétta í dag en viðtal við hann er einnig í Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta á fimmtudagskvöld kl. 20:30 á Hringbraut og vf.is. Lengri útgáfa viðtalsins verður á vf.is á fimmtu- dagskvöld kl. 21:00. Draumur Samúels Kára Ánægð börn á þrettándagleði fimmtuDagur 9. janúar 2020 // 2. tbl. // 41. árg. Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum ■ aðalsímanúmer 421 0000 ■ auglýsingasíminn 421 0001 ■ fréttasíminn 898 2222

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.