Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.01.2020, Síða 13

Víkurfréttir - 09.01.2020, Síða 13
VINNUVERNDARSKÓLI ÍSLANDS // 578 4000 // vinnuverndarskoli.is Vinnuverndarskóli Íslands Námskeið í boði árið 2020 Áhættumat Farið er yfir þrjú meginatriði áhættumats, þ.e. skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði, áhættumat (greining og mat) og áætlun um heilsuvernd (úrbætur). Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði Farið yfir helstu málaflokka vinnuverndarstarfs á vinnustöðum s.s. inniloft, líkamsbeitingu, hávaða, lýsingu, efnahættur, félagslega og andlega áhættuþætti, einelti og áreitni, vinnuslys og fleira. Vinna í hæð - Fallvarnir Hvað er vinna í hæð? Hvenær á að hefja undirbúning fyrir vinnu í hæð? Meginmarkmið námskeiðsins er að kynna nemendum fjölda leiða sem hægt er að nota til að koma í veg fyrir fall úr hæð. Meðal annars er fjallað um frágang vinnupalla, notkun mannkarfa á vinnuvélum, skæralyftur, körfukrana, stiga, öryggisbelti og línu o.fl. Einelti og áreitni, stefna og viðbragðsáætlun Hvað er einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi? Fjallað verður um hvað vinnustaðir geti gert til að minnka líkur á einelti og áreitni? Einnig verður fjallað um mikilvægi þess að taka markvisst á slíkum málum, komi þau upp. Verkstjóranámskeið Farið er yfir ábyrgð og skyldur verkstjóra á vinnustað. Allur búnaður á að vera góður og öruggt skipulag verður að ríkja á vinnustað sem verkstjóri hefur umsjón með. Vinnuverndarlögin nr. 46/1980 eru kynnt og helstu reglugerðir sem falla undir þau. Vinnuslys Fjallað er um orsakir og tíðni vinnuslysa og helstu forvarnir til að koma í veg fyrir þau. Farið yfir skilgreiningu vinnuslysa, skráningu þeirra ásamt upplýsingum og miðlun þeirra. Öryggisnámskeið fyrir stjórnendur í fiskvinnslu Farið er yfir ábyrgð og skyldur stjórnanda á vinnustað. Allur búnaður á að vera góður og öruggt skipulag verður að ríkja á vinnustað sem stjórnandi hefur umsjón með. Vinnuverndarlögin nr. 46/1980 eru kynnt og helstu reglugerðir sem falla undir þau. Öryggisnámskeið fyrir almennt starfsfólk í fiskvinnslu Farið er yfir ábyrgð og skyldur starfsfólks á vinnustað. Vinnuverndarlögin nr. 46/1980 eru kynnt og helstu reglugerðir sem falla undir þau. Fjallað verður um vinnuverndarstarf, öryggisnefndir, áhættumat, notkun persónuhlífa, notkun hnífa, hávaða, lýsingu, hættuleg efni og inniloft, líkamsbeitingu, andlegt og félagslegt vinnuumhverfi, einelti og áreitni. Vinnuverndarnámskeið fyrir stjórnendur Farið er yfir ábyrgð og skyldur stjórnenda varðandi það að gæta fyllsta öryggis, góðs aðbúnaðar og hollustuhátta á vinnustað. Vinnuverndarlögin nr. 46/1980 eru kynnt og helstu reglugerðir sem falla undir þau. Öryggismenning Á þessu námskeiði er gerð grein fyrir því hvernig hægt er að innleiða öryggismenningu á vinnustað, þ.e. breyta hugsun og hegðun starfsmanna og stjórnenda til langs tíma. Efnið er byggt á sænskri aðferðafræði sem kallast „Byggt á öryggi“. Nánari upplýsingar um námskeiðin, dagsetningar, verð, kennslufyrirkomulag og skráning fer fram á heimasíðu Vinnuverndarskólans: www.vinnuverndarskoli.is Skólinn býður upp á sveigjanlega og skilvirka vinnuverndarfræðslu sem lagar sig að þörfum hvers fyrirtækis fyrir sig. Leiðbeinendur búa yfir áralangri reynslu af vinnuverndarfræðslu og byggja námskeiðin á nýstárlegum kennsluháttum Keilis. Námskeiðin eru haldin reglulega, bæði í Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ og í húsnæði Rafmenntar í Reykjavík. Þá býður Vinnuverndarskóli Íslands vinnustöðum upp á nýja og aukna þjónustu í námskeiðum og fyrirlestrum um vinnuverndarmál, þar sem sérfræðingur frá skólanum heimsækir vinnustaðinn og undirbýr námskeið í samráði við öryggisnefnd eða fulltrúa vinnustaðarins. Vinnuverndarskóli Íslands Nýtt námsframboð á vegum Keilis með áherslu á vinnuvernd

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.