Víkurfréttir - 09.01.2020, Page 15
U M S Ó K N A R F R E S T U R :
2 . F E B R Ú A R
U M S Ó K N I R :
I S AV I A . I S/ S U M A R S T O R F
V I L T Þ Ú V E R Ð A H L U T I
A F G Ó Ð U F E R Ð A L A G I Í
S U M A R ?
F J Ö L B R E Y T T S U M A R S T Ö R F Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I
Við leitum að einstaklega þjónustulunduðum, glaðlyndum, snyrtilegum og
reyklausum einstaklingum sem hafa góða samskiptahæfileika, lipra og þægilega
framkomu, eru sveigjanlegir og geta unnið undir álagi. Óskað er eftir starfs fólki
bæði í hluta- og heilsdagsstörf en um er að ræða vaktavinnu.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í maí og unnið út ágúst.
Nánari upplýsingar á isavia.is/sumarstorf.
Helstu verkefni eru m.a. úthlutun
loftfarastæða, innritunarborða
og annarra innviða, eftirlit með
farþegaflæði, fasteignum og
búnaði.
Hæfniskröfur
• Stúdentspróf eða
sambærileg menntun
• Aldurstakmark 20 ár
• Góð færni í ensku og íslensku
er skilyrði
• Góð tölvukunnátta er skilyrði
• Reynsla af upplýsingakerfum
er kostur
R E K S T R A R -
S T J Ó R N S T Ö Ð
Helstu verkefni eru flæðis-
stýring, þjónusta við farþega,
umsjón og eftirlit með upp-
lýsingaborðum sem og eftirlit
með búnaði sem farþegar nota.
Hæfniskröfur
• Aldurstakmark 18 ár
• Góð færni í ensku og íslensku,
þriðja tungumál er kostur
• Sjálfstæð vinnubrögð og lipurð
í samskiptum
Starfið felst m.a. í öryggisleit
og eftirliti í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar og á flughlöðum.
Hæfniskröfur
• Aldurstakmark 18 ár
• Gott vald á íslenskri og
enskri tungu, bæði í rituðu
og mæltu máli
• Rétt litaskynjun
• Lágmark tveggja ára
framhaldsnám eða
sambærilegt nám
Allir umsækjendur þurfa að geta
sótt undirbúningsnámskeið áður
en þeir hefja störf og standast
próf í lok námskeiðs.
Helstu verkefni eru umsjón
með farangurskerrum í og við
flugstöðina, almenn þjónusta
og aðstoð við viðskiptavini á
bílastæðum flugstöðvarinnar,
tilfærslur á ökutækjum og
sótthreinsun á veiðibúnaði.
Hæfniskröfur
• Aldurstakmark 18 ár
• Góð færni í íslensku og ensku
• Bílpróf er æskilegt
• Sjálfstæð vinnubrögð
F A R Þ E G A -
Þ J Ó N U S T AF L U G V E R N D
B Í L A S T Æ Ð A -
Þ J Ó N U S T A
Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar
lögreglu og vera með hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar er að finna á isavia.is.
Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra sem fara um
flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið. Isavia ber Jafnlaunamerkið með stolti enda er það staðföst trú okkar
að launaákvarðanir skuli ávallt byggja á faglegum og málefnalegum rökum.