Víkurfréttir - 09.01.2020, Síða 20
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
Mundi
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
Ég byrja að telja á einum.
Byrjar þá ekki nýr áratugur 2021?
Burn 2000
Nýtt ár leggst bara ansi vel í mig enda
2020 falleg tala. Það eru örlítið merkari
tímamót núna en við „hefðbundin“ ára-
mót enda glænýr áratugur að hefjast. Þá
lítur maður tilbaka og hugsar um það
liðna, persónulega finnst mér það allt of
stutt síðan að menn fögnuðu t.d. alda-
mótunum. Hugsa sér, það eru komin 20
ár! Það var mikið gert úr því þegar við
fórum inní nýja öld, 1999 varð að 2000
og ýmsar hrakspár í gangi. Tölvur áttu
að hrynja og sumir töluðu um heims-
endi en ekkert breyttist í raun og veru.
Þessi aldamót voru mér persónulega
afar merkileg, kannski ekki á góðan
hátt en svo sannarlega eftirminnileg.
Við félagarnir ætluðum svo sannarlega
að fagna aldamótunum með stæl enda
ungir og flottir (bara flottir í dag) og
mikið partýhald planað. Það var gríðar-
leg stemmning í áramótapartýinu allt
þangað til ég tók upp á því að sprengja
sjálfan mig í tætlur. Reyndar algjört
slys, það var heimatilbúin brenna fyrir
utan og ég fleygði einhverju á brennuna
sem var víst afar eldfimt og það sprakk
með þeim afleiðingum að ég brenndist
afar illa. Sú mikla sprenging sem varð
olli því að eldurinn læsti sig í mér en
sem betur fer þá var ég í ullarfrakka
sem bjargaði miklu. Blessunarlega
var ein ung og ólétt stúlka á svæðinu
ökufær sem gat komið mér hratt og
örugglega uppá HSS. Takk Eygló Anna.
Það voru strax settar á mig kælium-
búðir og svo brunað með mig inná
Landsspítala. Mömmu var tilkynnt
að ég hefði brennst örlítið á putta en
hún ætti samt að kíkja niðureftir, áfall
hennar var mikið þegar hún sá þessar
brunarústir. Á Landspítalanum eyddi
ég næstu fimmtán dögum og sem betur
fer þá fór mun betur en á horfðist. Sár
mín gréru að fullu, það tók sinn tíma
en þetta voru erfiðir tímar fyrir ungan
mann sem ætlaði bara að „taka djamm
aldarinnar“ þetta gamlárskvöldið en
endaði í staðinn á gjörgæslu. Hef áður
skrifað um það en heilbrigðisstarfs-
fólk okkar Íslendinga er stórkostlegt.
Vinir mínir og fjölskylda voru dugleg
að heimsækja mig og stöppuðu í mig
stálinu. Vinirnir færðu mér Kentucky
Fried þegar ég var kominn með leið
á matnum á spítalanum og meira að
segja sumir þeirra voru tilbúnir að gefa
mér skinn af líkama sínum ef ígræðslu
þyrfti. Ég er þakklátur að ekki kom til
þess enda gréri allt eðlilega að lokum.
Ég var farinn að spá mikið í því hver
vina minna væri með mýkstu og fal-
legustu húðina (sér í lagi ef mig vantaði
á andlitið) en blessunarlega er mjúkur
bossi Páls Kristinssonar ennþá á sínum
stað óskaddaður.
Gleðilegt ár, megi 2020 færa ykkur
öllum gæfu og gleði.
LO
KAO
RÐ
ÖRVAR Þ. KRISTJÁNSSON
vf is
Þú finnur allar
nýjustu fréttirnar
frá Suðurnesjum á
Samúel Kári
SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA Í ÞESSARI VIKU
Viltu auglýsa í sjónvarpsþáttum Víkurfrétta?
Sendu okkur línu á pket@vf.is
er á dagskrá Hringbrautar og vf.is
fimmtudagskvöld kl. 20:30
Draumurinn
að komast að hjá stórliði
á Keavíkurugvelli
Óveðursvakt
PLÚS Ítarlegri útgáfa af viðtalinu við Samúel Káraí Sjónvarpi Víkurfrétta á vf.is á fimmtudagskvöld kl. 21:00
Hvernig er
Keavíkurugvelli
haldið opnum í 25 m/s
og hita við frostmark?
SJÁÐU ALLA
ÞÆTTI ÁRSINS 2019
Á VF.IS