Víkurfréttir - 23.01.2020, Blaðsíða 6
V Í K U R F R É T T I R Í 4 0 Á R • F I M M T U D A G U R I N N 1 2 . J A N Ú A R 1 9 8 4
Hvers vegna var ekki vakt í bátunum?
Þessar eru trúlega ónýtar eftir ferðalagið, sagði í texta með myndinni.
Voru mannleg mistök orsök tjónanna?
„Það tjón sem varð á Suðurnesjum í óveðrinu á
dögunum, flokkast að mestu undir mannleg mis-
tök, þó furðulegt sé. Er aðalástæðan sú að þrátt
fyrir ítrekaðar aðvaranir um veðurlag og sjávar-
gang virðist fólk ekki hafa tekið þær til greina og
því fór sem fór,“ sagði í frétt Víkurfrétta 1984.
Samtímasaga Suðurnesja
í fjóra áratugi
Á þessu ári fögnum við þeim
tímamótum að Víkurfréttir hafa
komið út í 40 ár. Frá fyrsta tölublaði
Víkurfrétta sem kom út 14. ágúst
1980 hafa komið út nærri 1900
tölublöð, síðurnar yfir 20.000 og
fréttirnar næstum óteljandi. Til að
fagna afmæli Víkurfrétta á þessu
ári ætlum við reglulega að glugga í
gömul blöð og rifja upp fréttir, sýna
ykkur gamlar myndir og jafnvel að
heyra í fólki og taka stöðuna eins og
hún er í dag. Í þessari viku skoðum
við frétt af óveðri sem gerði þann
5. janúar 1984 þegar stórtjón varð,
m.a. í höfninni í Sandgerði þar sem
margir bátar skemmdust og munaði
minnstu að yrði manntjón.
Frétt úr Víkurfréttum
fimmtudaginn 12. janúar 1984
Það tjón sem varð á Suðurnesjum í
óveðrinu á dögunum, flokkast að mestu
undir mannleg mistök, þó furðulegt
sé. Er aðalástæðan sú að þrátt fyrir
ítrekaðar aðvaranir um veðurlag og
sjávargang virðist fólk ekki hafa tekið
þær til greina og því fór sem fór. Koma
hefði mátt fyrir mestan hluta tjónsins í
Sandgerði ef menn hefðu verið á vakt í
skipum sínum, eða betur hefði verið frá
þeim gengið. Ef sjóvarnargörðunum í
Höfnum hefði verið haldið við eins og
vera ber, hefði tjón af völdum sjávar-
gangs án efa orðið mun minna. Svona
má telja áfram.
Fyrri óveðursdaginn lokaðist Reykja-
nesbrautin vegna þess að tveir gáma-
bílar frá Eimskip voru á leið inn eftir.
Stöðvaði annar bílstjórinn bíl sinn,
en hinn hélt áfram þar til hann lenti
þversum á brautinni og lokaði henni þar
með. Tók góða stund að opna brautina á
ný, því erfiðlega gekk að lagfæra bílinn.
Þrátt fyrir mikið óveður víða um land
fyrri daginn er ekki hægt að tala um
óveður hér um slóðir, að vísu komu
annað slagið snarpar vindhviður og í
einni fauk hluti af þaki á Gluggaverk-
smiðjunni Ramma í Njarðvík, en þar
var nýbúið að skipta um járn og var ekki
búið að ganga alveg frá því. Að öðru
leyti urðum við ekki vör við óveðrið
nema varðandi samgöngutruflannir
þær sem áður er sagt frá á Reykjanes-
braut svo og hins að rafmagnið fór af
í rúmar 5 klukkustundir.
Síðari daginn var það sjávargangurinn
í Sandgerði, Höfnum og Grindavík sem
minnti okkur óþyrmilega á veðrið, en
trúlega eru 5 litlir þilfarsbátar frá 8 og
upp í 14 tonn mikið skemmdir ef ekki
ónýtir og fjöldinn allur af öðrum bátum
varð fyrir tjóni, sem þó varð mest á
Sjávarborginni, en hún hefur eins og
kunnugt er legið ónotuð í Sandgerðis-
höfn um tíma og beðið eftir loðnu-
veiðileyfi sem hún hafði loks fengið
er óhappið varð.
Í Höfnum flæddi sjór upp að 7 húsum,
þar af voru 2 fiskverkunarhús og
spennistöð staðarins og stóð sjávar-
gangur að þessum húsum á þriðja tíma,
en tjón varð ekki teljandi, nema hvað
rafmagn hefur sennilega skemmst í
tveimur húsum og þá grófst undan
sökkli hússins. epj./pket.
Í blaðinu árið 1984 voru viðtöl við
tvo sjómenn í Sandgerði sem urðu
vitni að óhöppunum. Þar fóru níu
litlir þilfarsbátar og þrír stórir upp
í fjöru og tveir bílar fóru í höfnina,
vörubíll með einum skipstjóranum
og lítill bíll sem fauk út í og kramdist
milli skips og bryggju áður en hann
sökk undir bátinn. Víkurfréttir frá
þessum tíma má nálgast á Timarit.is.
Stór hluti vertíðarflota Sandgerðinga skemmdur og hús urðu umflotin sjó í Höfnum.
„Svavar Ingibersson fór á vörubíl niður á bryggju í veðrinu þar sem koma
átti böndum á bátana og hugmyndin var að draga þá frá grjótinu með
vörubílnum. Sjórinn tók vörubílinn hins vegar eins og eldspýtustokk og
henti honum út í sjó. Það bjargaði Svavari, sem fór niður með bílnum, að
það var maður á bryggjunni sem náði honum strax þegar hann kom út
úr bílnum. Var hann orðinn þrekaður en hafði þó meðvitund og var strax
fluttur á sjúkrahús,“ segir í fréttinni frá því í janúar 1984.
Frá flóðasvæðunum í Höfnum.
„Já ég man vel eftir þessu óveðri, því björgunarsveitin
Sigurvon var kölluð út um klukkan sjö að morgni og
sagt að það væri mikið óveður og mikið um að vera í
Sandgerðishöfn. Margir bátar voru
slitnir frá bryggju og komnir upp í
grjótgarðinn við ljósvitann,“ segir
Sandgerðingurinn Reynir Sveinsson
þegar hann var beðinn um að rifja
upp atburðinn í ársbyrjun 1984.
„Ég var á jeppa og fór beint út að
suðurbryggju og stoppaði við báta-
brautina. Þá var Sjávarborgin komin
upp í grjótgarðinn. Svo varð mér litið út um vinstri gluggann
á bílnum og sé að það kemur mjög stór alda landmegin
og fer yfir veginn þar sem ég var staðsettur. Mér leist ekki
á blikuna þegar sjórinn gusaðist á bílinn minn sem stóð
þetta af sér en aldan fór yfir bílinn og inn í höfnina. Það
var heilmikið starf að koma bátunum upp á land sem
margir hverjir voru mikið skemmdir og sumir ónýtir
eftir veðurofsann.“
„Leist ekki
á blikuna“
Þessar gömlu myndir úr safni Reynis Sveinssonar sýna vel hvernig
aðstæður voru við Sandgerðishöfn áður en sjóvarnagarðar voru
settir upp við norðurgarðinn. Hér koma fyllurnar yfir hafnargarðinn.
6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 23. janúar 2020 // 4. tbl. // 41. árg.