Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2020, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 23.01.2020, Blaðsíða 10
Hafdís Hulda Garðarsdóttir, dúx Fjölbrautaskóla Suðurnesja: Fór líka í handavinnu og forritun til að prófa eitthvað nýtt „Ef þú lærir vel alveg frá byrjun þá byggir þú á góðum grunni,“ eru hvatningarorð Hafdísar Huldu Garðarsdóttur, dúx Fjölbrautaskóla Suðurnesja, til verðandi nýnema. Hafdís Hulda útskrifaðist í desember af raunvísindabraut skólans með hæstu meðaleinkunn og hlaut í kjölfarið 100 þúsund króna námsstyrk úr skólasjóði FS ásamt 30 þúsund króna styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi. Aðspurð hver lykillinn að svo góðum námsárangri sé svarar Hafdís því að mikilvægt sé að reyna að gera sitt besta. „Fyrir mig snerist þetta um að vinna öll verkefnin vel og vandlega, líka í þeim fögum sem geta verið erfið og eru utan áhugasviðsins.“ Hafdís Hulda fékk viðurkenningar frá skólanum fyrir góðan árangur í efnafræði, stærðfræði og líffræði, verðlaun frá Íslenska stærðfræðifélag­ inu fyrir árangur sinn í stærðfræði, viðurkenningu frá þýska sendiráðinu fyrir góðan árangur í þýsku, gjöf frá Þekkingarsetri Suðurnesja fyrir ár­ angur sinn í náttúrufræðigreinum og viðurkenningu frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í stærðfræði og raungreinum. Hún segist sátt með námið í FS, það hafi verið krefjandi en einnig skemmtilegt. „Ég var á raunvísinda­ braut svo það var mjög mikið af raun­ greinum, sérstaklega stærðfræði, en svo fór ég líka í handavinnu og forritun til að prófa eitthvað nýtt.“ Eftir útskriftina stefnir Hafdís á að taka önn í Hússtjórnarskólanum, vinna smá og halda svo áfram með námið. „Mögulega verður það forritun en ég hef ekki ennþá valið mér skóla.“ • Önnur sérverk • Vélskúrun • Sérhæfð þrif á steinteppum • Teppahreinsun • Bónleysing, bónun og viðhald gólfa • Alhliða hreingerningar • Reglulegar ræstingar Hagkvæmar lausnir fyrir þitt fyrirtæki Hafið samband við söludeild s:580 0600 sala@dagar.is Keilir brautskráði 89 nemendur við hátíðlega athöfn í Hljómahöll- inni í Reykjanesbæ föstudaginn 17. janúar 2020. Við athöfnina voru brautskráðir 57 nemendur af Há- skólabrú, 25 atvinnuflugmenn og sjö nemendur úr fótaaðgerðafræði. Var þetta í fyrsta sinn sem útskrift Keilis fer fram í Hljómahöllinni en fjölmennar útskriftir skólans voru búnar að sprengja utan af sér Andrews Theater á Ásbrú þar sem þær höfðu farið fram undanfarin ár. Jóhann Friðrik Friðriksson, fram­ kvæmdastjóri Keilis, flutti ávarp og stýrði athöfninni, auk þess sem Magnús Scheving flutti hátíðarræðu. Samtals hafa nú 3.648 nemendur lokið námi við deildir skólans sem var stofn­ aður á Ásbrú í Reykjanesbæ í maí 2007. Í lok ársins 2019 voru yfir eitt þúsund nemendur skráðir í nám og námskeið á vegum Keilis og hafa aldrei fleiri aðilar lagt stund á nám við skólann en nú. Fjöldi nemenda við skólann hefur aukist um 50% frá því í febrúar á þessu ári en munar þar mestu um nýnema í Menntaskólanum á Ásbrú sem hófu nám í ágúst á stúdentsbraut með áherslu á tölvuleikjagerð og atvinnuflugnema sem lögðu áður stund á nám í Flug­ skóla Íslands en hann sameinaðist Flug­ akademíu Keilis í byrjun ársins 2019. Þá tók Keilir einnig við umsjón með námskeiði til inntökuprófs í læknisfræði en þau hafa verið haldin undanfarin ár við góðan orðstír framhaldsskóla­ nema af öllu landinu. Eftir sem áður eru stærstu námsbrautirnar Háskólabrú og atvinnuflugnámið. Útskrift Háskólabrúar Keilis Háskólabrú Keilis brautskráði sam­ tals 56 nemendur úr öllum deildum. Berglind Kristjánsdóttir, forstöðu­ maður Háskólabrúar, stýrði útskrift og afhenti viðurkenningarskjöl ásamt Margréti Hanna, verkefnastjóra. Dúx Háskólabrúar var Eva Lind Weywadt Oliversdóttir, með 9,56 í meðaleinkunn. Hún fékk gjafir frá Íslandsbanka og Keili sem viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Valdimar Anton Eiríks­ son flutti ræðu útskriftarnema. Með útskriftinni hafa samtals 1.911 nemendur útskrifast úr Háskólabrú Keili frá fyrstu útskrift skólans árið 2008 og hafa lang flestir þeirra haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis. Aldrei hafa jafn margir nemendur stundað frumgreinanám í Keili og á þessu námsári en á annað hundrað umsóknir bárust í fjarnám Háskólabrúar sem hófst í byrjun janúar. Þeir bætast við fjölmennasta hóp ný­ nema í Háskólabrú sem hófu nám síðastliðið haust og stunda þar með núna hátt í þrjú hundruð nemendur frumgreinanám í Keili. Á fjórða hundrað atvinnuflugnemar hafa útskrifast frá Keili Flugakademía Keilis ­ Flugskóli Ís­ lands brautskráði 25 atvinnuflugnema. Samtals hafa 332 atvinnuflugmenn út­ skrifast sem atvinnuflugmenn frá Keili, ásamt Flugskóla Íslands hafa skólarnir tveir brautskráð yfir tólfhundruð at­ vinnuflugmenn frá stofnun þeirra. Að jafnaði leggja á þriðja hundrað nem­ endur stund á flugnám við skólann á ári hverju. Björn Ingi Knútsson, forstöðumaður Flugakademíu Keilis ­ Flugskóla Ís­ lands, stýrði útskrift og afhenti at­ vinnuflugmönnum prófskírteini ásamt Baldvini Birgissyni, skólastjóra. Arnar Freyr Jónsson fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur Fjölmenn útskrift Keilis í Hljómahöllinni í atvinnuflugmannsnámi með 9,82 í meðal einkunn. Þetta er önnur hæsta meðal einkunn í sögu Flugakademí­ unnar. Fékk hann gjafir frá Icelandair, Air Iceland Connect, Norland Air og Air Atlanta. Ræðu útskriftarnema í atvinnuflugnámi hélt Lars Gustaf Daniels son. Fótaaðgerðafræðingar útskrifast í þriðja sinn Sjö nemendur brautskráðust í þriðju útskrift námsbrautar Keilis í fótaað­ gerðafræði. Arnar Hafsteinsson, for­ stöðumaður Íþróttaakademíu Keilis, stýrði útskrift og Jóhanna Björk Sigur­ björnsdóttir, þróunarstjóri námsins, aðstoðaði við brautskráninguna. Aðalheiður Hjelm fékk viðurkenn­ ingu fyrir góðan námsárangur með 9,21 í meðaleinkunn en þetta er hæsta lokaeinkunn sem gefin hefur verið í fótaaðgerðafræðinámi Keilis frá upphafi. Fékk hún gjafir frá Praxis og Áræði. Ræðu útskriftarnema fyrir hönd fótaaðgerðafræðinga flutti Anna Vilborg Sölmundardóttir. Keilir hefur boðið upp á nám í fótaað­ gerðafræði frá febrúar 2017 og stunda að jafnaði á annan tug nemenda námið hverju sinni. Fótaaðgerðafræði er lög­ gilt starfsgrein og teljast fótaaðgerða­ fræðingar til heilbrigðisstétta. Keilir brautskráði 89 nemendur við hátíðlega athöfn í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ föstudaginn 17. janúar 2020. Ljósmyndir: Oddgeir Karlsson Magnús Scheving flutti hátíðarræðu við útskrift Keilis á föstudaginn. Jóhann Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Keilis. 10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 23. janúar 2020 // 4. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.